Jólagjöfin - 24.12.1918, Qupperneq 9
inmmwwrtwimw
Jó lin, Jólinl
Hugleiðing eftir
sr. Fr Friðriksson.
*wmr3iwB7sii
3nm
Upp úr sólhvörfunum koma jólin. Þau eiga mikiö erindi og
vegsamlegt. Þau boöa stærstb tíöindin, sem gerst hafa á
þessari jörð:
„Frelsarinn er fæddur
í foldarreifa klæddur!“
Því hljómi’ um allan heim í dag.
Af hjartans gleöi dýröarlag
Dýrö sé Guði’ í himnanna hæöum.
Hann sem var í skauti fööursins, fæddur fyrir allar aldir
og alt upphaf; hann sem frá upphafi haföi opinberað guö
og framkvæmt alt sköpunarverk fööursins; hann sem haföi
birst feðrunum, og setið til borös meö Abraham og fylgt Is-
rael, sínum útvalda lýö á leið þeirra gegn um eyðimörkina
til fyrirheitna landsins, og talað til lýös síns fyrir munn sinna
heilögu spámanna, hann er nú kominn til jarðarinnar, ekki
eins og hann kom áöur í ýmsum opinberunarmyndum, heldur
til þess að dvelja hjá oss, sem einn af oss, fæddur eins og hvert
annað barn, reifaöur og lagöur á brjóst móður sinnar, til þess
svo að alast upp og dvelja sem sannur maöur á meðal manna.
Þessi miklu tíðindi flytja jólin. —
„Sá guö er ræður himni háum
Hann hvílir nú í dýrastalli lágum.
Sá guö er öll á himins hnoss
Varö hold á jörö og býr með oss.“
Hefir nokkur atburöur oröiö stærri á jörðunni, en fæöing