Jólagjöfin - 24.12.1918, Page 28
22
Jólagjöfin.
Tieilbrig'öri skynsemi, jafnvel þótt vér fengjum ekki unniö alveg
bug á honum.
Óttinn. Eg geri ráö fyrir, aö það sé fleirum en prestum —
sem gefst auðvitað manna mest tækifæri til þess að kynnast
hugarástandi manna — fyllilega Ijóst, að þeir menn eru helst
til margir, sem þjást stöðugt af'ótta og kvíða fyrir dauðanum.
Margur maðurinn, sem sýnist kæra sig kollóttan, hvernig sem
alt veltist og hefir jafnan gamanyrði á reiðum höndum, þjáist
meira og minna af ótta við dauðann. Hann veit, að dauðann
hlýtur einhvern tima að bera að garöi, en honum finst aö
hann megi ekki til hans hugsa. Þessi ótti er með öllu ónauð-
synlegur, og á rót sína að rekja til vanþekkingar, eins og
reyndar allur ótti og kvíði, sem þjáir menn. Þeir sem vita
hvað dauðinn er í raun og veru, eru aldrei hræddir við hann.
Þeim er það ljóst, að maðurinn er nú einu sinni þannig af
guði gerður, að hann getur ekki dáið. Hann getur auðvitaö
horfiö úr jarðneska líkamanum, lagt hann af sér, eins og
slitna flík, en það er nokkuð annað. Nei, þeir kvíða ekki meira
fyrir að fara úr líkama sínum en að hafa fataskifti. Menn,
sem iifa á tuttugustu öldinni, án þess að afla sér þekkingar
á dauðanum, en eru þó sí og æ hræddir við hann, rnega sjálfum
sér um kenna, ef þeir láta umhugsunina um það þjá sig, sem
aldrei kemur fram við þá.
Margir menn kvíða því stöðugt, að þeir verði þá og þegar
fyrir eignamissi og komist á vonarvöl. Þúsundir manna, sem
hafa ekki nema til hnífs og skeiðar, sem kallað er, bera sí
og æ meiri eða minni kvíðboga fyrir því að eitthvert óhapp
beri að höndum, t. d. sjúkdómur, og þá hljóti þeir aö lenda i
mestu eymd og volæði. Og vér skulum nú gera ráð fyrir, að
slik hætta sé meira en hræðsla og ímyndun, en það eitt er
vist, að hún minkar ekki rnlikið við það, að vér hugsum sí og
æ um hana, og látum hana þjá og lama oss löngu áður en hana
ber að höndum. Þá er betra að láta hverjum degi nægja sín
þjáning.
Menn ættu helst að reyna að gera sér grein fyrir tilgangi
hinnar miklu framþróunar, sem þeir tilheyra. Ef þeir fengju
komið auga á hann, rnundi þeim þegar skiljast, að enginn at-