Jólagjöfin - 24.12.1918, Qupperneq 41
Jólagjöfin.
35
í sjúkrahúsið. Páll litli hafði sagt, að hann vildi miklu heldur
vera einn heima, ef mömmu hans gæti liðið betur og batnað
í sjúkrahúsinu. Og hann hafði ráðgert, að koma á hverjum
degi til hennar. Og hann var svo sem ekkert hræddur við að
vera einn á nóttunni, enda var hann orðinn svo stór. — Eg
er kominn á ellefta ár, — hafði hann sagt all-drýgindalega.
Hann varð fullra tíu vetra i vor. Einn dag hafði hann farið
eitthvað í burtu, án þess hún vissi. Og þegar hann kom heim
hafði hann sagt:
— Mamma mín, eg hefi nú fengið atvinnu. Eg hefi nú ráðið
mig sem sendisvein í viðskiftahúsið. Eg fæ tvær krónur um
vikuna og margar krónur í ómakslaun, segja hinir drengirnir,
sem eru þar.
Og hún mundi, að hún gat varla tára bundist. En hann
var svo feginn því að hafa fengið þessa atvinnu, að hún
hafði ekki brjóst í sér til að láta hann verða varan við sorg
sína og kvíða. Hún hafði þá að eins lotiö ofan að honum,
kyst hann og sagi:
— En þú ert svo lítill, elsku drengurinn minn.
— Já, sagði hann, — þeir sögðu það nú reyndar líka þarna
í viðskiftahúsinu, en eg sagði þeim að eg væri fullra tíu vetra.
Tíu vetra. Lögin, sem eiga að vernda börnin, ákveða, að
ekki megi ráða nokkurn til fastrar vinnu, fyr en það hefir
náð þessum háa aldri. En spyrja þessi nærgætnu lög hve efni-
leg og heilsugóð börnin eru? Eða hvaða viðurværi þau hafa,
að þau geti verið fær um hvaða vinnu sem er? Og er nokkurt
eftirlit með því, að börnin séu ekki látin vinna meira en
þau eru fær um á heimilunum, áður en þau eru fullra tíu
vetra, er þau eru látin rogast með yngri systkini sn, bera inn
eldivið, sækja vatn og sitthvað fleira.
Og móðir litla Páls mintist þeirra stunda, er hún hafði
beðið hans með óþreyju, síðan hann varð nógu gamall til
að stunda þessa atvinnu. Henni hafði leiðst að verða að sjá
af honum tímunum saman, er hann fór að fara í skólann, en
nú sá hún hann ekki, nema þegar hann skrapp heim til að
fá sér eitthvað að borða. Hann þurfti altaf að vera til, ef á
hann var kallað. Nú hafði hann horast svo mikið upp á síð-
3*