Jólagjöfin - 24.12.1918, Page 42

Jólagjöfin - 24.12.1918, Page 42
36 Jólagj'ófin. kastið. Og hún hafði heyrt hann hósta ööru hvoru. Hún vonaði að hann fengi nú ekki þennan afleita hósta, sem hún hafði haft síðastliðin tvö ár, og var nú orðinn alveg hræðilegur. Aumingja litli, duglegi drengurinn hennar, hvers vegna skylai hann nú ekki koma? — Hún hrökk upp. Hún hlaut að hafa sofnað. Það var víst orðið framoröið, eftir olíunni i lampanum að dæma var klukk- an ugglaust orðin ellefu. Óttinn hafði alveg gagntekið hana. Hún hugsaði ekki um annað en að finna barnið sitt. Hún skreið fram úr rúminu, en varð tvívegis að setjast á rúmstokkinn, rneðan hóstahvið- urnar voru hvað svæsnastar. Svo neytti hún allrar orku og gekk hægt fram eftir gólfinu, til þess að ná í fötin sín. Þá kom enn þá ein hóstahviðan. Hún hneig þá örmagna niður á gólfið. Volg gusa kom þá fram úr henni og sá hún að það var blóð. Hún lagðist þá lémagna á gólfið. Hún reyndi svo að lítilli stundu liðinni að rísa á fætur. En þá kom aftur blóðgusa fram úr henni. Hún andvarpaði lágt og sagði: — Páll, elsku litli drengurinn minn. Hún hneig svo niður aftur og var örend. Verner lögmaður var orðinn mjög áhyggjufullur um kon- una sína. Það v a r auðvitað leiðinlegt, að drengurinn skyldi verða úti. En hvað um það, þau höfðu þó ekki sálgað hon- um, og gátu ekki kent sér um það þó svona færi. Þetta voru ekki annað en öfgar einar hjá henni. Hann hafði fengið tengdamóður sína til að dvelja hjá þeim, en alt kom fyrir ekki. Ellen gat ekki hætt að hugsa um þetta sama. Hún sat stundum tímunum saman og horfði í gaupnir sér. Og ef ein- hver yrti á hana, var sem hún vaknaði af draumi og svaraði að eins: — Aumingja drengurinn. Það var auðvitað ekki með öllu vonlaust um, að hún mundi ná sér aftur , — því að svona viðkvæmar konur, — hafði læknirinn sagt, — eru oft ekki eins og þær eiga að sér að vera, þegar svona er ástatt. Og svo hafði hún komist í þessa afskap-

x

Jólagjöfin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jólagjöfin
https://timarit.is/publication/872

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.