Jólagjöfin - 24.12.1920, Side 9
Jóiagjöfin
um, hver hafi verið hin upphaflega merking þessa heitis.
Eg lít nú samt svo á, aö enginn vat'i geti á því leikiö, hvað
vakað hafi fyrir postulanum, er hann viðhefir það, sem sé
þetta, að það, sem var frá eilifð hjá guði, svo sem lifandi kær-
leiks-hugsun guös, hefir í mannlegri mynd og líkingu opin-
berast á jörðu í persónu Jesú. 1 honum hefir guð nálægt sig
oss í miskunnandi kærleika sinum. f honum fáum vér komið
auga á guð, eins og hann er i insta eðli sínu. í honum getum
vér eins og horfst í augu við guð sjálían, og meira en það:
vér getum skygnst inn í hjarta guðs. Svo gersamlega er sála
Jesú fylt af guöi, að alt lif og starf Jesú verður lifandi lof-
söngur um dýrð föðurlegrar elsku guðs. Svo innilegt er sam-
félag hans við föðurinn, svo þrunginn er hann af guðs anda
og krafti, að hann i einu og öllu verður lifandi opinberun föð-
ursins. Að sjá Jesúni, er að sjá föðurinn, að heyra Jesúm, er
að heyra föðurinn. Orð Jesú eru orð föðursins, verk Jesú eru
verk föðursins, kærleikslif Jesú er hiö eilífa kærleikslíf föðurs-
ins. Svo innilegt er sambandið, — svo innilega er sonurinn
sameinaður föðurnum.
Hve værum vér snauðir, ef vér ættum ekki guðfylt lif Jesú oss
til eftirbreytni og fyrirmyndar! Hve væri veröldin fátæk og
auð og tóm, án guðdómlegrar myndar hans! Hvað væri saga
mannkynsins ef ekki ætti hún í honum megin þungamiðju
sína! Gerum ráð fyrir því, að heimurinn hefði aldrei lifað
neina jólanótt, að Jesús hefði aldrei fæðst i þennan heim, aldrei
Iifað guðfyltu lífi sinu á meðal vor. Hvernig mundi útlit heims-
ins hafa orðið ])á? Eg segi yður satt: Það hefði orðið ófögur
mvnd á að líta. Þvi að væri nafn Jesú horfið úr veraldar-
sögunni, þá hyrfu þaðan í einni svipan öll fegurstu nöfnin, sem
letruð standa nú gullnum stöfum á festingu mannkynsins. Með
])ví hyrfi hvorttveggja i senn, dýrmætasta huggun lífsins, og
fegursta prýði lífsins. En svo er guði fyrir þakkandi. að Jesúm,
frelsara vorn. getur enginn frá oss tekið. Því að „i þvi birt-
ist kærleiki guðs meðal vor. að guð h e f i r sent sinn einget-
inn son i heiminn til þess að vér skyldum lifa fyrir hann.“
s.Að vér skyldum lifa fyrir hann.“ Hér sjáum vér hið guð-
dómlega hlutverk Jesú: með því að opinbera oss föðurlegt
hugarþel guðs til vor, á hann að hjálpa oss til að 1 i f a.