Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.2005, Page 25
DV mynd Pjetor
DV Helgarblað
LAUGARDAGUR 2. APRÍL 2005 25
ff
(Framhaldá Æ\
( næstu opnu
Manndrápið
á Leifsgötu
Bergþóra Guðmundsdóttir var stödd
ásamt Hallgrími EKssyni að Leifsgötu 10
þann 23. júlí 2000. Þar voru einnig tveir
aðrir menn, annar þeirra húsráðandi. Þau
höfðu setið að drykkju og notað vímuefni.
Bergþóra var ákærð fyrir að hafa ráðist á
Hallgrím Elísson þar sem han lá á dýnu á
gólfi, sest klofvega ofan á hann og kyrkt
hann þar til hann dó. Hæstiréttur taldi
sannað að Berþóra sem veitti Hallgrími áverk-
ana sem drógu hann til dauða og aðrir ekki átt þar
hlut að máh. Hæstiréttur telur það ekki hafa verið ásetn-
ing Bergþóru að verða Hallgrími að bana, hann hefði áreitt
hana og hún haft af honum „nokkurt ónæði" eins og það er orðað
hjá Hæstarétti. Hún var talin sakhæf og fær um að stjóma gerðum
sínum þótt hún hafi verið undir miklum áhrifum eiturlyfja, áfengis
og róandi lyfja. Hæstiréttur taldi atlögu hennar hrottalega og að
Hallgrímur hafi verið bjargarlaus. Hæstiréttur dæmdi Bergþóm í
tólf ára fangelsi og mildaði
þannig fjórtán ára dóm
Héraðsdóms Reykjavíkur.
Eg hef engan
drepið!
Bergþóra Guðmundsdótt-
ir, sem flestir þekkja und-
ir nafninu ísaQarðar-
Begga, hefur ekki átt sjö
dagana sæla. Hún er alin
upp við drykkjuskap og
sjálf fetaði hún snemma í
fótspor föðurins og drakk
mjög illa.
Drykkja og
dópneysla
hafa verið ör-
lagavaldar í
lífi hennar og
Bakkus var
þess valdandi
að hún mátti
sjá eftir þrem-
ur börnum
sínum í
hendur
annarra. Það
var einnig
Bakkus sem
lagði línurnar
með fangelsis-
vist hennar.
Hún segir sög-
una alla hér á
eftir.