Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.2005, Síða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.2005, Síða 25
DV mynd Pjetor DV Helgarblað LAUGARDAGUR 2. APRÍL 2005 25 ff (Framhaldá Æ\ ( næstu opnu Manndrápið á Leifsgötu Bergþóra Guðmundsdóttir var stödd ásamt Hallgrími EKssyni að Leifsgötu 10 þann 23. júlí 2000. Þar voru einnig tveir aðrir menn, annar þeirra húsráðandi. Þau höfðu setið að drykkju og notað vímuefni. Bergþóra var ákærð fyrir að hafa ráðist á Hallgrím Elísson þar sem han lá á dýnu á gólfi, sest klofvega ofan á hann og kyrkt hann þar til hann dó. Hæstiréttur taldi sannað að Berþóra sem veitti Hallgrími áverk- ana sem drógu hann til dauða og aðrir ekki átt þar hlut að máh. Hæstiréttur telur það ekki hafa verið ásetn- ing Bergþóru að verða Hallgrími að bana, hann hefði áreitt hana og hún haft af honum „nokkurt ónæði" eins og það er orðað hjá Hæstarétti. Hún var talin sakhæf og fær um að stjóma gerðum sínum þótt hún hafi verið undir miklum áhrifum eiturlyfja, áfengis og róandi lyfja. Hæstiréttur taldi atlögu hennar hrottalega og að Hallgrímur hafi verið bjargarlaus. Hæstiréttur dæmdi Bergþóm í tólf ára fangelsi og mildaði þannig fjórtán ára dóm Héraðsdóms Reykjavíkur. Eg hef engan drepið! Bergþóra Guðmundsdótt- ir, sem flestir þekkja und- ir nafninu ísaQarðar- Begga, hefur ekki átt sjö dagana sæla. Hún er alin upp við drykkjuskap og sjálf fetaði hún snemma í fótspor föðurins og drakk mjög illa. Drykkja og dópneysla hafa verið ör- lagavaldar í lífi hennar og Bakkus var þess valdandi að hún mátti sjá eftir þrem- ur börnum sínum í hendur annarra. Það var einnig Bakkus sem lagði línurnar með fangelsis- vist hennar. Hún segir sög- una alla hér á eftir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.