Freyr - 01.12.1946, Qupperneq 29
FRE YR
359
séu gó5, þá rúma stofurnar ekki svo mikið
margmenni.
Til þess að þetta geti orðið þarf brúð-
kaupið helst að fara fram að sumrinu, því
að þá er húsrúm mest áður en uppskeru
er bjargað, og tími til undirbúnings fyrir
brúðkaupið er beztur áður en uppskeru-
störfin byrja. Og þá er svo auðvelt að afla
allra þeirra blóma, grænna greiná og
annars, sem sótt er í ríki náttúrunnar —
oftast í blómagarða og aldingarða heimil-
isins og grannanna — til þess að skreyta
með því borð og veggi veizlusala.
Sjálft veizluborðið er sannkallað lista-
verk þegar það er fullbúið með fánum og
skrauti, blómum og grænum blöðum, enda
hafa vinir og kunningjar af næstu bæjum
unnið að því í félagi í marga daga og næt-
ur að safna því sem til þessa þurfti. Hafa
ungir menn og meyjar ekki talið eftir sér
að vinna að þessu og afrek þeirra eru ekki
aðeins í veizlusal heldur og í kirkjunni,
sem skreytt er blómum á stólbríkum,
grænir sveigar hanga á veggjum og í lofti,
og blómum er stráð á gólfið.
Að mörgu þarf að hyggja. Þess vegna
getur eitt eða annað gleymst, en til þess
að sjá um að slíkt hendi ekki og að ekkert
vanti, er feginn sérstakur maður — veizlu-
stjóri — sem annast gestaboð, sér um að
allt fari virðulega fram og að enginn verði
útundan við veizluhöldin.
Klukkan 12 á hádegi borðar fjölskyldan
hádegisverð, en kl. 2—3 fer athöfnin fram
í kirkjunni. Að lokinni hjónavígslu fara
brúðhjónin á undan gestum úr kirkju, en
staðnæmast í kirkjudyrum og mega ekki
víkja þaðan fyrr en allir viðstaddir hafa
óskað þeim allra heilla með handabandi.
Liggur svo leiðin til heimilis brúðinn-
ar, en þar fara veizluhöldin fram. Þó
gleymist ekki að fara til myndasmiðsins
Undir borðum í prýddum veizlusal.
og láta hann taka ljósmynd af brúðhjón-
unum í öllu skartinu.
Áður en þau koma heim hefir verið séð
um, að öllum gjöfum sem borizt hafa, og
hægt er að hafa í húsum inni, sé raðað á
borð og tekur það nú nokkurn tíma að
losa umbúðir og draga munina fram í dags-
ljósið. Þar eru munir úr silfri og gulli,
borðbúnaður úr postulíni og steini eða
gleri, vasar og skálar, lampar og ljósa-
stjakar, teppi og áklæði og hvað það nú
heitir allt saman, sem uppfyndingasemi
gefendanna hefir inn-blásið þeim, að
gagni gæti orðið eða til gamans á hinu
nýstofnaða heimili. Húsgögnin eru brúð-
argjöf frá foreldrum brúðinnar — heim-
anmundur, sem talinn er sjálfsagður ef