Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.2005, Blaðsíða 64
P/ é 11 Cttk 0 t Viö murn viö
fréttaskotum allan sólarhringinn. Fyrir hvert fréttaskot sem
birtist, eða er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta
fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000 krónur. Fullrar
^mfnleyndar er gætt. _*-* q q rj q
SKAFTAtfUÐ 24, ÍOS hEYKJáVÍK [STOFNAÐ 1910] SÍMIS5OSO0O 5 "690710 1111241
• Ein bjartasta
tjarna Sjálfstæðis-
tiokksins, Bolli
Thoroddsen, er
sagður vera að
íhuga framboð í
prófkjöri Sjálfstæð-
isflokksins fyrir
komandi borgarstjórnarkosn-
ingar. Mun Bolli setja markið
hátt, eða á þriðja sætið. Bolli
mun einnig þurfa að verja emb-
ætti sitt sem formaður
Heimdallar en sú kosning fer
fram á svipuðum tíma og próf-
kjörið. Verða því samlegðará-
hrifin mikil hjá Bolla sem er
þekktur fyrir að vera fremstur í
flokki kosningasmala. Sjálfur
neitar Bolli hvorki né játar held-
jfe hlær dátt spurður út í fram-
tíðaráform sín og segir að menn
hafi oft farið flatt á því að berjast
á tveimur vígstöðvum...
Spáð' í Bolla!
HeiDar í leikskála Melri hávaðl
Sex hundruð börn eru á biðlista fyrir leikskóla
í Reykjavík. Yfir hundrað starfsmenn vantar vegna
lélegra launa. 98,5 prósent leikskólakennara eru
konur.
En einn ástsælasti rokkari fslands leggur sitt að
mörkum. Heiðar Örn Kristjánsson í Botnleðju er
annar tveggja karlmanna í íeikskólakennara-
námi á síðasta ári í Kennaraháskólan-
um. Hinn er Haraldur Freyr Gísla-
son, trommari í Botnleðju.
Afhverju?
„Ég vann við þetta í þrjú ár
áður en ég ákvað að læra þetta.
Þetta er ein af fáum vinnum sem ég
hef verið í sem ég hef haft verulega
gaman af. Ég hef unnið við allt mögu-
legt: í fiski, í sveit og í pítsasendingum,
en þetta er það alskemmtilegasta,"
segir Heiðar Örn.
Eru launin ekki oflág?
„Launin geta bara batnað, ekki
versnað. Það er ekki hægt að lækka þessi
laun. Þau eiga bara eftir að hækka í fram-
tíðinni. Eftir að fólk áttar sig á því hversu mik-
ilvægt starfið er. Þegar fólk kveikir á perunni.
Mér finnst að störf
eigi að vera launuð
eftir ábyrgðinni, og
það er gríðarleg
ábyrgð
að ala upp börn fyrir fólk.“
Hvað hafa börn fram yfir aðra vinnu?
„Börn segja nákvæmlega það sem þau eru að
hugsa. Þau eru ekkert að skafa utan af hlutunum.
Fjögurra og fimm ára börn eru það hreinskilnasta
sem maður kemst í tæri við.“
Spilarðu fyrir börnin?
„Ég er með gítarinn allan daginn. Maður er
orðinn helvíti sleipur í þessum leikskólalög-
um. Sem er fínt. Eg komst að því að það fylg-
ir jafnmikið
stress því
að spila
fyrir
fullorðna og
börn. Það eykur
reynsluna í að koma fram.“
Vinnan erfið?
„Eftir vinnudaginn er maður
alveg búinn. Hávaðinn er í flestum
tilfellum yfir mörkum sem Vinnueftir-
litið setur. Þetta er ekki eins og í tónlist-
inni, maður hefur meira þol fyrir henni. Það getur
verið kostur. Kannski er ég búinn að skemma
heyrnina í mér.“ jontmusti@dv.is
Heiðar í Botnleðju Annar
tveggja karia á síöasta árí í
leikskólakennarartámi. Hinn
er lika í Botnleðju.
Waa—WBWWIMIIillHll I—
Dæmi um món. greiðslubyrði af 1.000.000 kr.* 1 M >
Vextir
4,95% 5,50% 6,50%
7,00%
5 ár
19.100 19.560 19.800
18.850
10 ór
10.850 11.350 11.610 í
10.580
15 ar
7.880
8.170
8.710
8.990
Lán með jafngreiðsluaöferð án verðbota
! 0|
Ertu að byggja, kaupa eða breyta sumarbústað? Þú getur auðveldlega
samið um hagstætt sumarhúsalán hjá Frjálsa fjárfestingarbankanum.
Lánið getur numið allt að 60% af verðmæti eignar. Til framkvæmda er
lánað allt að 75% af byggingarkostnaði.
Ráðgjafar Frjálsa fjárfestingarbankans veita allar nánari upplýsingar. Þú
getur komið við í Lágmúla 6, hringt í síma 540 5000 eða sent tölvupóst
á frjalsi@frjalsi.is.
! ttwiBM
SL'fBSSVl
FRJÁLSI
FJÁRFESTINCARBANKINN
www.frjalsi.is
. ■-■ ■
Ís££ Sa ií. § BÍ»8h!bh»SBBBÍ ;; mBÍb z