Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.2005, Blaðsíða 54
54 LAUGARDAGUR 15. OKTÓBER 2005
Menning DV
Putin Meetir ekki
til Gunnars í Kópa-
voginn.
Ilmur Kritjánsdóttir
I titilhlutverkinu.
EDDAN hélt hóf á fimmtudag
með getraunum, snittum og öli.
Hinar ýmsu útgáfur Eddunnar
lögðu fram stóra og ítarlega bálka
um útgáfur haustsins sem óhjá-
kvæmilega hvolfast yfir þjóðina
eins og haustrigningar. Þegar hafa
]PV og Bjartur birt sína iista og þá
eru hinir stóru póstar taldir.
SMÆRRI útgáfur eru ekki eins
fyrirferðarmiklar í péerrinu. Þó
eru margar athyglisverðar útgáfur
að verki í prentsmiðjunum þessi
kvöld. Athyglisverð eru ný forlög
blekbænda á borð við Jakob F.
%- Ásgeirsson og Rúnar Helga sem
Pliimtr báðireruað
>- - komasérupp
útgáfum. Salka og Ari eru
kvennamegin og er gott að vita
að konur skuli festast í útgáfú.
STÓRI
katalókurinn,
Bókatíðind-
in, er vænt-
anlegur
innan
skamms.
Þar eru þó
ekki allir taldir.
Ýmsir einna
eða tveggja
bóka útgefend-
ur treysta sér
Guðrún Eva skáld-
kona Flutt frá Bjarti
til Eddu og gefur út
skáldsögu
ekki þangað inn, sem er miður.
Raunar er kominn tími til að Fé-
lag bókaútgefenda sýni stórlæti
og gefi jafnharðan út á vefsíðu
allar útgefnar bækur og bæklinga.
Það er nauðsynlegt að almenn-
ingur eigi kost á yfirliti af því tagi.
„VERÐA ÞETTA tíðindamikil
bókajól?" er gjaman spurt. Sjaldan
er hægt að svara því nema með
því að líta um öxl
- mánuðum
seinna. Bók-
mennta-
sveiflan í
þjóðinni er
enn vertíð
og í hrot-
unni er erfitt
að sjá skóginn
fyrir ttjánum.
sagnaskáld-
skapur er ótrú-
lega sterkur
þáttur í þjóðarvitund okkar -
ábyrgðarmenn sögunnar eru þó
ekíd útgefendur - þeir eru veitur
en skáldin sjálf eru þeir sjáendur
sem við treystum og trúum að
skili okkur sannari skýrslum um
lífshætti okkar en hagtölumar
gefa.
FIMM HUNDRUÐ titla hátíð
sem gengur eins og brimskafl yfir
þjóðlífið og fjarar svo út býður
v þeirri hættu heim að verk sem
' skipta máli hverfi í rótinu. Fjöl-
miðlum ber að
sinna texta-
framleiðslu
allt árið,
umfjöllun
um
Þóra Sigurðar og
Marta María Ráö-
ast í skáldsöguskrif
- saman.
menn-
ingu á
ekki að
vera eins og
jólaskrautið í
búðargluggum,
koma upp í októ-
ber og fara niður
milli jóla og nýárs. Ef þeir vilja
standa undir kröfum um al-
mennan metnað í menningar-
umfjöllun.
Vilborg Davíðs- |
dóttir Söguleg
skáldsaga frá
Grænlandi.
Umsjon: Pall Baldvin Baldvinsson pbb@dv.is
'i
iX 'á- *
■ -
iflS
Essens Kjarvals
ka verði:
sviði Bo
það í an
kiavíkur
Salka gekk inn í þjóðlífið
skömmu eftir hina örlagaríku
för skáldsins til vesturheims
sem er meginefrii sýningar Þjóð-
leikhússins Halldór í Hollywood
sem var frumsýnd í gærkvöldi.
Salka varð til sem hugmynd
vestur í Kaliforníu. Það er furðu-
leg hending að þessir partar í lífi
skáldsins skuli koma á svið nán-
ast samtímis.
Salka hefur ratað á svið í leik
og dansi og komist á hvíta tjald-
ið þangað sem henni var ætlað
að fara fyrst í stað.
Listræn forysta
Hrafrihildur Guðmundsdótt-
ir Hagah'n var fengin til að vinna
þessa leikgerð af sögunni en þær
Edda Heiðrún Backman, sem er
leikstjóri sýningarinnar, eru
nánar vinkonur. Jón Axel, eigin-
maður Eddu, gerir leikmynd við
verkið, en alls koma fram í sýn-
ingunni þrettán leikarar. Hreyf-
ingastjóm annast Lára Stefáns-
dóttir, Kári Gíslason lýsir en
Stefanía Adolfsdóttir hannar
búninga. Tónlist er í höndum
Óskars og Ómars Guðjónssona.
Þjóðfélagslegar sögur
Sagan af Sölku var lengi vel
afar vinsæl og lagðist í far með
öðmm öreigasögum sem urðu
til víða í Evrópu og síðar Amer-
í dag em liðin 120 ár frá fæðingu
Jóhannesar Sveinssonar sem fædd-
ist að Efri-Ey í Meðaliandi. Af því til-
efni er efnt til sýningar á verkum
hans í Listasafni Reykjavíkur í Gróf-
inni.
Hún hverfist um tvo meginpóla í
starfi hans eða essensa sem em
uppistaðan í lífsverki hans. Annars
vegar landið eins og það kom hon-
um fyrir sjónir í allri sinni fjöl-
breytni og hins vegar lífið í landinu,
sem í verkum hans tók á sig ólíkar
birtingarmyndir hins raunvemlega
og hins skynjaða, þess sem hugur-
inn nemur, ekki síður en þess sem
augað sér.
Titill sýningarinnar er sóttur í Ár-
degisblað listamanna sem hann gaf
út. Þar talaði hann um Essensism,
þann kjama lífsins og tilvemnnar,
sem væri að finna í listinni, og aliir
ættu að leita eftir.
Mikið safn verka úr einkaeigu
hefur verið dregið saman vegna
sýningarinnar sem þau Kristín
íku á þriðja og fjórða áratugn-
um. Bakgmnnur þeirra var upp-
lausn sveitasamfélagsins og
þéttbýlismyndun sem studdist
fyrst við selstöðukaupmennsku
og síðan varanlega viðvem smá-
kóngaveldis kaupmanna og
smáútgerðarmanna sem héldu
smáþorpum í greipum sínum.
Ferðir Halldórs árin frá
heimkomunni til þess að hann
tók að semja sín stóm verk á
íjórða áratugnum vom meðal
annars notuð til langferða um
landið þar sem hann saug í sig
kjör fólks og sérkenni í þorpum
og sveitum og notaði sem þræði
í hina stóm sagnavefi um Sölku,
Bjart og Ólaf ljósvíking.
Leikhópurinn
Salka Valka er leikin af Ilmi
Kristjánsdóttur, Sigurlína er í
höndum Hahdóm Geirharðs-
dóttur, EUert A. Ingimundarson
er svolinn Steinþór og glæsi-
mennið Amald leikur Sveinn
Geirsson. Með önnur hlutverk
fara Bergur Þór Ingólfsson,
Birna Hafstein, Guðmundur
Ólafsson, Halla Vilhjálmsdóttir,
Kristján Franklín Magnús, Þór-
haUur Sigurðsson (Laddi), Mar-
grét Helga Jóhannsdóttir, Marta
Nordal og Theodór Júlíusson.
Guðnadóttir og Eiríkur Þorláksson
stýra. Styður VIS sýninguna sérstak-
lega vegna þeirra háu trygginga sem
greiða þarf vegna lánsverkanna.
Samfara sýningunni kemur út bók
um Kjarval á vegum Nesútgáfunnar
sem hefur verið lengi í smíðum.
í vUcunni var dómtekið mál erf-
ingja Kjarvals á hendur Reykjavík-
urborg þar sem kröfur em gerðar á
borgina að hún skUi því stóra safni
verka sem komst í hennar hendur
við ævUok málarans.
Jóhannes Sveinsson Kjarval
Menning DV
LAUGARDAGUR 15. OKTÓBER2005 55
Jakob F. Asgeirs-
son Sagnfræöingur
og útgefandi.
Asta Möller þing
kona Skrifar um
ábyrgö ráöherra.
Mýrin á dagskrá
Það er hóað í þing í dag í ráðstefnusal Erfða-
greiningar í Vatnsmýrinni og þangað em kaUaðir
fræðingar um þau álitamái sem líta þarf tíl vegna
fyrirhugaðrar samkeppni um uppbyggingu 1 Vams-
mýrinni.
Með þinginu vUja félög verkfræðinga, tækni-
fræðinga, arkitekta og landslagsarkitekta setja fram
ný sjónarmið um þá stóm ákvörðun sem stjórn-
völd Reykjavíkur standa frammi fyrir á næstu ámm
sem er framtíð Vatnsmýrarinnar. Við val á fyrir-
lesurum er leitast við að beina umræðu um framtíð
Vamsmýrarinnar inn á faglegar brautir og upp úr
skotgröfúm stjómmálanna.
Velt verður upp áleimum spurningum eins og
hvort Vamsmýrarsvæðið sé heppUegt tii sam-
keppni eins og þeirrar sem boðuð hefur verið,
hvers megi vænta af slíkri samkeppni og hvemig
eigi að standa að framkvæmd þannig að hugmynd-
imar haJdi veUi í gegnum framkvæmdatímann.
Fyrirlesarar em: Hildebrand Machkleidt sem
hefur teldð þátt í stórum skipulagsverkefrium víða
um heim, Manuel de Sola Mirales sem kom að
skipulagi Ófympíuþorpsins í Barcelona, Börkur
Bergmann sem er skólastjóri við hönnunarskóla
UQAM-háskólans í Montréal. Hakan Jonforsen lýs-
ir þegar innanlandsflugvöUur er fluttur úr borg,
GísU Már Gíslason prófessor við Háskóla íslands
fjaUa um forsendur í náttúru og umhverfisáhrif.
Bergþóra Kristinsdóttir og Samúel T. Pétursson
verkfræðingar fjalla um skipulag umferðar í Vatns-
mýri og Stefán Ölafsson prófessor heldur erindi um
félagslegar og borgarfræðUegar forsendur fyrir nýt-
ingu Vatnsmýrarsvæðisins.
Þingið hefst kl. 9 að Sturlugötu 8.
þjóðmál
Hrunadans
R-listans
Samfylklngln 01 lýóræðlj
'«saíS3BR5a^
m
Tónlistardagar Dómkirkjunnar hefjast í dag og flytur Dómkórinn þá síðla dags
Þýska sálumessu eftir Johannes Brahms með einsöngvurum, Huldu Björk Garð-
arsdóttur og Kristni Sigmundssyni, og tveimur píanóleikurum, Önnu Guðnýju
Guðmundsdóttur og Peter Maté, undir stjórn Marteins H. Friðrikssonar.
Akall lil
mannkynsins
Þýsk sálumessa er eitt glæsUeg-
asta verk Brahms og jafnframt það
sem notið hefur hvað mestra vin-
sælda. Það hefur verið flutt nokkr-
um sinnum hér á landi af söng-
sveitinni Fflharmóníu og Lang-
holtskómum ásamt hljómsveit. Að
þessu sinni verður það í fyrsta sinn
flutt í útsetningu sem tónskáldið
gerði sjálft þar sem tveir píanóleik-
arar koma í stað hljómsveitar.
Löng meðganga
Johannes Brahms vann lengi að
samningu Þýsku sálumessunnar.
Fyrstu drögin að verlcinu vom sam-
in árið 1854 og áttu að verða hluti
af sinfóm'u. Hann vann áfram að
verkinu árin 1857-59 en lagði það
síðan tU hliðar.
Um miðjan næsta áratug urðu
tveir atburðir sem höfðu þau áhrif
að sálumessan komst aftur á dag-
skrá. Árið 1865 lést móðir Brahms
og ári síðar hófst stríð Prússa og
Austurrflcismanna sem hann tók
mjög nærri sér. Fyrstu þrír hlutar
sáiumessunnar vom frumfluttir í
Vínarborg við takmarkaðan fögnuð
árið 1867. Ári síðar vom kaflarnir
orðnir sex og þá stjórnaði Brahms
sjálfur flutningi þeirra í heimabæ
sínum, Brimum í Norður-Þýska-
landi. Það var svo í febrúar 1869
sem síðasti kaflinn var fuUgerður
og þá var verkið frumflutt í hefld í
Stuttgart.
Vinsælt verk
Verkið náði strax gríðarlegum
vinsældum og áður en árið var lið-
ið hafði það verið flutt tuttugu
sinnum í Þýskalandi. Á Englandi
var verkið frumflutt árið 1871 og þá
í útsetningunni sem Dómkórinn
flytur. f stað hljómsveitar vom
komnir tveir píanóleflcarar. Sú út-
gáfa var ekki oft á dagskrá og má
raunar segja að hún hafi gleymst
um aUlangt skeið. Ástæðan var sú
að útgáfurétturinn á nótunum var
seldur til Amerflcu en eigendur
hans þar sinntu því ekki að gefa
þær út. Það var svo ekki fyrr en eft-
ir 1990 sem píanóútgáfan var end-
umppgötvuð en síðan hefur hún
verið flutt aUnokkmm sinnum.
Brahms lýsti því sjálfur í bréfi tíl
útgefanda síns að hann hefði ákveð-
ið að útsetja verkið fyrir píanó í stað
hljómsveitar svo það yrði auðveld-
ara í flutningi og því lflclegra til lang-
lífis. Með þessum orðum vildi hann
gleðja útgefandann sem hafði
áhyggjur af því orði sem lá á píanó-
verkum Brahms að þau væm svo
erfið í flutningi. Það er svo ein af
þessum undarlegu tUviljunum að
píanóútgáfan varð gleymskunni að
bráð vestur í Bandaríkjunum. En
sem betur fer er búið að endurvekja
hana, hún á það sannarlega sldlið.
Það fagra er satt
Dómkórinn hefur
fengið tU liðs við sig
einvalalið: söngv-
arana Huldu
Björk Garðars-
dóttur og
Kristinn
Sigmunds-
son og pí- 'p
anóleik-
aramir m
Anna / '■
Guð- #
ný $
Guð-
munds-
dóttir og
Peter Maté. Kórinn hefur fengið
liðsauka við flutninginn og er því
óvenju fjölmennur á þessum tón-
leilcum.
Þýsk sálumessa verður flutt í
Langholtskirkju kl. 17, laugardag-
inn 15. október, og markar upphaf
Tónlistardaga sem standa fram tU
13. nóvember. Þá verður fmmflutt í
Dómkirkjunni verk eftir ungt ís-
lenskt tónskáld, Harald V. Svein-
björnsson, sem hann samdi að
beiðni Dómkórsins. Inn á
mUli verða svo hátíðar-
messur og tónleikar
sem nánar má fræðast
um í dagskrá Tónlist-
ardaganna sem birt-
ist á heimasíðu
kórsins - dom-
kirkjan.is
Hulda Björk Garðars-
dóttir Syngur Brahms /
dag og Benjamin Brittain
um næstu helgi.
----r-----------------
Umsagnir í breskum blööum jákvæðar
Woyzeck í Barbican
-’7
Sviðsetning Gísla Amar á
Woyzeck á sviði Barbican í City
hefúr hlotið jákvæða dóma í ensku
pressunni: Michael BUlington gaf
henni fjórar stjömur í Guardian og
er það eitt sagaklassmiði fyrir sýn-
inguna. BUlington er virtur mjög í
leilchúslífi London, hleypidóma-
laus og opinn en kröfuharður.
Sam Marlowe gagnrýnandi
Times er ekki eins jákvæður í dómi
sínum í gær: hann ber sýninguna
saman við sviðsetningu Söm Kane,
leikskáldsins áhrifamikla frá 1997
sem hann segir hafa búið yfir myrk-
um og þöglum eiginleikum, hún
hafi maskað mann í ákafa sínum.
Hann hrósar sýningunni fyrir
sjónræn brögð, hún sé afkáraleg,
stór í sniðum og oft fögur á að líta.
Harmur hetjunnar eða andhetj-
unnar sé vart finnanlegur í glamp-
andi leikbrögðum.
Tónlistarparti Nicks Cave hrós-
ar hann mest. Sýningin í heild hafi
skænislegt og yfirborðskennt útlit
eins og myndband en hafi áhrif á
einfaldan hátt. Hún sé skrýtin en
um leið dásamleg. Það tUtæki Gísla
að ná í Cave tU samstarfs skUar sér
í mikUli athygli og lofi. Hún fær
þrjár stjörnur í Times.
Sviðsetningin er óneitanlega
mUcUl sigur fyrir Gísla og hans lið,
Leikfélag Reykjavíkur sem bakkaði
verkefnið og stuðningsaðUa Vest-
urports, LeUdistarráð og borgina.
Athyglisvert er að í umsögnum
enskra blaða er ekki talað um
hreim eða fundið að framsögn, en
Woyzzek Frá
sýningunni I
London
oft er það bragð hjá gagnrýnend-
um þar í borg að tala niður tU er-
lendra flytjenda.
Hingað kemur hún í lok október
og fer þá á Stóra svið Borgarleik-
hússins en María Kristjánsdóttir
hefur orð á því í Mogganum að þar
eigi hún betur heima; sviðið í Bar-
bican sem hýsti lengi Konunglega
breska leUcflokkinn - RSC - er eklci
eins opið og Stóra svið Borgarleik-
hússins.
BITE-hátíðin var sett upp tU að
fylla Barbican-leikhúsið, en RSC
yfirgaf það fyrir fáum árum. Þar
eru tveir salir, lítiU og stór. Hátíðin
leggur undir sig stóran hluta leik-
ársins og kaUar til leUchúsmenn
víðsvegar að úr heiminum. Þar
verða sett á svið verk eins og Bubbi
kóngur og ást Fedru eftir fyrr-
nefnda Söru Kane, en öU eiga þau
það sameiginlegt að vera skrifuð af
ungum höfundum.
Nýtt tímarit
kemur út
Jakob F. Ásgeirs-
son sagnfræð-
ingurstendurl
stórræðum.
Hann hefurá
þessu ári sent
frá nýrri bóka-
útgáfu sinni
nokkrar bækur:
gaf út greina-
söfn Ólafs Teits
og sitt eigið, Frá
mfnum bæjar-
dyrum. Nýlega sendi hann þrjár er-
lenda þýðingar frá forlaginu eftir
metsöluhöfundana Jack Higgins,
Patriciu Caldwell og Maeve Binchy.
Nýlegt rit um kommúnismann var
ritdæmt hér (gær.
(fréttatilkynningu frá Uglunni, út-
gáfu Jakobs, er greint frá nýju tlma-
riti sem komið er af stað og Jakob
ritstýrir: Þjóðmál kallast það og mun
koma út fjórum sinnum á ári. Þvf er
ætlað að vera„...vettvangur fýrir
frjálshuga fólk sem er orðið þreytt á
yfirborðslegri og einhliða fjölmiðlun
um stjórnmál og menningu".
Engin undirgefni
Ritið muni flytja„...vel skrifaðar og
fgrundaðar greinar þar sem ýmislegt
f stjórnmálum og þjóðlffinu almennt
er tekið til skoðunar án undirgefni
við margvfslegan rétttrúnað sem
tröllríður okkar litla
samfélagi".Rit-
stjórnarstefnu
Þjóðmála sé
„...að öðru
leyti best lýst
með orðun-
umrírelsi og
hæfilegt fhald".
Meðal efnis f 1.
hefti má nefna að
Björn Bjarnason
sicrifaraf vett-
vangi stjórnmálanna, Magnús Þór
Gylfason gerir (tarlega
úttekt á valdaferli R-
listans f Reykjavík,
Þórður Pálsson
skrifar um„evr-
óþska ástand-
ið" og kúreka-
kapltalisma,
Glúmur Jón
Björnsson fjall-
ar um ósam-
ræmið milli
starfshátta
Samfylkingar-
innar og lýð-
ræðisboðskap- ' -----
ar forystumanna hennar, Ragn-
hildur Kolka skrifar um vanda Sam-
einuðu þjóðanna, Haraldur Johann-
essen segir sannleikann um örlög
Þjóðhagsstofnunar, Ásta Möller skrif-
ar um ráðherraábyrgð, og Páll Vil-
hjálmsson, Matthfas Johannessen og
Jónas H. Haralz skrifa um Davíð
Oddsson.
Skaðlegt rit og ritdómar
Einnig er birt f ritinu áður óbirt sam-
tal við Helga heitinn Sæmundsson
skáld og ritstjóra, fjallað um bók-
menntalff á kaldastríðsárunum á (s-
landi, birtur listi yfir„skaðlegustu"
bækur sfðustu alda og sagt frá
marxistastjórn Salvadors Allendes f
Chile.
(tarlegir bókadómareru f ritinu.Jó-
hannes Nordal ritar um hina nýju
wsögu Stjórnarráðs ís-
‘ lands, Þorbjörn
Broddason skrif-
ar um Fjöl-
miðla 2004
eftir Ólaf Teit
Guðnason,
Björn
Bjarnason
fjallar um
bókina Fodfejl
eftir Uffe Ellem-
ann-Jensen,Guð-
mundurHeiðar
Frfmannsson
skrifar um forsæt-
isráðherra Islands og Helgi Skúli
Kjartansson fjallar um endurútgáfu á
riti Kristjáns Albertssonar um Hann-
es Hafstein og bók Jóns Þ. Þórs um
dr. Valtý Guðmundsson.
Þjóðmál er 96 bls.og kostar 1.000 kr.
f lausasölu en fjögur hefti (áskrift
kosta 3.500 kr. ef greitt er með
kreditkorti.
Björn Bjarnason
ráðherra Á tvær
I nýju tímariti.