Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.2005, Side 62
62 LAUGARDAGUR 3. DESEMBER 2005
Siðast en ekki síst DV
Rétta myndin
Heyrðu! Við erum að reyna að tala saman hérna.
DV-mynd E. Ól.
Textagerðarmorðingi á ísafirði
Textagerðarmenn eru ekki í há-
vegum hafðir á íslandi þar sem
meira er lagt upp úr útliti en inni-
haldi. Þetta hefur margoft sýnt
sig og sannast nú síðast á
ágætum vef Heilbrigðistofn-
unar Isaíjarðarbæjar - fsi.is
í stuttri frétt greinir frá
því þegar þeir Rúnar örn
Rafnsson og Benedikt Ein-
CTJgE1 arsson frá BT komu
LULU hlaðnir pinklum á
sjúkrahúsið. í tilefni eins árs
afmælis BT á ísafirði færðu þeir
stofnuninni nokkrar gjafir sem...
„miða fyrst og fremst að
því að stytta yngri sjúklingum lífið
meðan þeir dvelja innan veggja
hennar."
Undir ritar Svavar Þór
Guðmundsson. Að
stytta yngsta fólkinu
stundir með DVD-
spilara, Playstation-
tölvu auk 13 leikjum
og 13 DVD-kvik-
myndum er góðra
Halldór Halldórsson bæj-
arstjóri Ætlihann viti afþví
að í bænum leikur textagerð-
armorðingi lausum hala?
gjalda vert. En ætlun þeirra BT-
manna er örugglega ekki að stytta
þeim lífið þó svo að ýmsir vilji ætla
að tölvuleikir og sjónvarpsgláp sé
andlega niðurdrepandi iðja.
(Ög einmitt núna, þegar ýtt er á
hnappinn „Birta frá PC“, sem þýðir
að þessi klausa er að fara í umbrot,
þá má sjá að fréttinni hefur verið
breytt til betri vegar í þeirri von að
enginn hafi orðið vitni af þessari
meintu morðtilraun textagerðar-
mannsins. Þarna koma kostir raf-
rænnar útgáfu berlega í ljós. En
hérna megin, úbbs.. of seint. Það er
farið í prent.)
Hvað veist þú um
Víðistaðaskóla
1. í hvaða bæjarfélagi er
skólinn?
2. Við hvaða götu stendur
hann?
3. Hvað heitir skólastjóri
. skólans?
4. Hvenær var skólinn
stofnaður?
5. Hvað eru margir nem-
endur í skólanum?
Svör neðst á síðunni
Hvað segir
mamma?
„Þegarhann
var I fótboltan
um þá kom
^ hann alltaf
halturheim en
aldrei sást á
honum eftir
boxið/segir
Guðlaug
Skúladóttir,
móðirSkúla
Steins Vil-
bergssonar
hnefaleikakappa.
„Hann er rosalega ákveðinn, fastur fyrir,
skapmikill en mjög heiðarlegur. Hann
hefur verið viðriðinn Iþróttir frá þvl að
hann var smá strákur en hann er ótta-
lega keppnisfullur og mikil keppnisharka I
honum. Ég styð hann í hnefaleikunum og
^ hefekki beðið hann að hætta því. Þetta er
gott fyrir heilsuna og heldúr fólki frá rugli.
Annars hefég aldrei getað horft á hann
keppa. Mér finnst það hálfóhugnalegt að
sjá hann kýla eða vera kýldur. Hnefaleikar
eru án efa betri Iþrótt en fótboltinn hvað
varðar meiðsli. Hann slasaðist aðallega I
boltanum en litið sem ekkert i hnefaleik-
unum."
Guðlaug Skúladóttir er móðir Skúla
Stelns Vilbergssonar hnefalelka-
kappa sem alilr á fslandl þekkja sem
Skúla „Tyson". Skúll er fæddur árlð
1984 og er allnn upp (bftlabænum
Keflavfk þar sem hann hefur æft
hnefalelka af kappl í mðrg ár.
Gott hjá Helgu Árnadóttur uppeld-
isfulltrúa sem steig fram og talaði
þegar henni ofbauð að óprúttinn
einstaklingur fái að leika lausum
hala ÍVIÖistaðaskóla I Hafnarfirði og
kúka í töskur samnemenda.
* 1. Hann er í Hafnarfirði. 2. Hann stendur við Hrauntungu.
3. Hann heitir Sigurður Björgvinsson. 4. Hann var stofn-
aður árið 1970.5. Þaö eru 479 nemendur ískólanum.
Kjarval, Jón Stefáns og
Asgrímur slegnir
Uppsveilla í uppboðum
„Á hveiju uppboði eru merkileg
verk slegin. Alltaf hreint," segir
Tryggi Páli Friðriksson hjá Gallerí
Foid semmun standa reffilegur með
hamar í hönd í Súlnasalnum næst-
komandi sunnudagskvöld og slá
mönnum meistaraverk vinstri
hægri.
Tryggvi Páll segir að verkin á
þessu uppboði verði ekkert sérstak-
Íega mörg en merk mörg hver.
„Þarna eru myndir bæði eftirÁsgrím
og Kjarval. Og svo verður að nefna
myndir eftir Kristján Davfðsson sem
eru frá ‘45 og ‘47. Þetta er þegar karl-
inn er að koma heim. Já, og margar
skemmtilegar myndir aðrar. Ein
Louisu-mynd, ein eftir Jón Stefáns-
son... já, þetta er svona dittinn og
dattinn af fínum verkum."
Málverkauppboðin eru í upp-
sveiflu nú um stundir og Tryggvi
Páll telur markaðinn vera að jafna
sig eftir niðursveiflu. Þar spilar eink-
um tvennt inní að mati Tryggva:
Heldur meira góðæri er í þjóðfélag-
inu núna en oft áður og er það að ná
inn í þennan geira. Og svo eru menn
að jafna sig á fárinu sem varð í
tengslum við Stóra málverkafölsun-
armálið svokallaða.
Sfðasta uppboð sem haldið var er
:<msss&æ
Tryggvi f Fold Hér við eitt meistaraverkið sem slegið veröur á sunnudagskvöld. Uppsveifla ernúi uppboðum og oft er hasar þegar menn slást
um verkin.
tfi marks um þetta en þá var dýrasta
verkið sem slegið var Kjarvalsverk
og fór það með gjöldum á 2,5 millj-
ónir. Það var haldið í október. „Já,
síðustu uppboð hafa verið betri en í
langa tíð. Það hefur verið að koma
upp verðið á þessum gömlu góðu
verkum. En þessi sem eru kannski
ekkert sérstakt, það hefur lítið
breyst í því."
Talsverður hasar getur orðið á
uppboðunum og slást menn þá um
sumar myndanna. Tryggvi Páll seg-
ist stöðugt sjá ný og ný andlit í
Súlnasalnum en svo er þar góður
hópur sem mætir alltaf hreint og
hefur gert í áratugi.
jakob@dv.is
wuim
...skoöaðu jólakortin ó
www.myndval.ls og veldu
kort, sendu okkur myndina og
textann sem þú villt hafa
og víö sjáum um aö klára
jólakortin fyrir þig
...einnig getur þú komiö
meö mynd og texta
til okkar í Mjóddína
1-39 kort.
ikr./stk.
40 kort+ 1 3Skr./stk.
umslag fylgif, lágmarkspöntun lOstk.
Álfabakka 14 - 557 4070
myndval@myndval.is