Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2006, Side 18
18 LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 2006
Sport 0V
(
Svissneskt
gull hjá
brettastelpum
VETRARÓLYMPÍULEIKARNIR ÍTÓRÍNÓ
Anja Párson frá Svíþjóö tókst ekki að fylgja eftir góöum sigri í sviginu á
miðvikudag í stórsviginu á vetrarólympíuleikunum í Tórínó í gær. Hún
fékk kjörið tækifæri til þess þar sem Janica Kostelic treysti sér ekki til að
keppa vegna veikinda en náði sér ekki á strik í þokunni sem var í
Daniela Meuli
vann gull í stórsvigi
á skíðabretti í
Tórínó í fyrradag.
Hún hafði betur í
úrslitunum gegn
hinni ungu Amelie
Kober ífá Þýska-
landi eftir að hafa unnið Rosey
Fletcher ffá Bandaríkjunum í
undanúrslitum en hún hlaut þó
brons í sárabætur. Var þetta
annað gull Sviss í greininni en
Schoch-bræðumir unnu gull og
silfúr fyrr í vikunni. Fletcher var
sigurstrangleg en féll í brautinni
gegn Meuli. Hún var þó hæstá-
nægð með bronsið enda var
þátttaka hennar bæði í Nagano
og Salt Lake City martröð líkust.
Óvænt
japanskt gull
Shizuka Arak-
awa ffá Japan vann
mjög óvænt gull í
listhlaupi kvenna á
skautum í fyrra-
kvöld en hin
bandaríska Sasha
Cohen, sem var
með forystu eftir
fyrrihlutakeppn-
innar, varð að sætta sig við ann-
að sætið. Rússar, sem unnu allar
aðrar greinar í listhlaupinu og ís-
dansinum, urðu að sætta sig við
brons hjá Irinu Slutskayu. Cohen
mistókst því að viðhalda sigur-
göngu Bandaríkjanna í greininni
en löndur hennar hafa unnið
gull í greininni á síðustu tveimur
leikum.
Austurríkismenn
bannaðir?
Alþjóðaólymp-
íuneffidin hefur
ekki enn gert neitt
í málum Austurrík-
is á vetrarólympíu-
leikunum en Heins
Jungwirth, starfs-
maður austurríska
ólympíusambandsins, sagði í
vikunni að nefndin hefði hafnað
þeirri hugmynd að kjósa um
hvort banna ætti austum'ska
íþróttamenn ffá næstu vetrar-
ólympíufeilcum. Fréttastofa
Reuters hermir hins vegar að
enn eigi eftir að taka ákvörðun
um það. Mikill styr hefur staðið
um austurríska sidðagönguliðið
og ólöglega lyfjaneyslu þess.
| Julia Mancuso Fagnaði
gullinu vel og innilega en lét
þó kórónuna vanta sem sést
á innfelldu myndinni.
brekkunni í gær. Það var hins vegar hin bandaríska Julia Mancuso sem
vann fyrsta gull Bandaríkjanna 1 greininni í 22 ár.
/ r r
Julia Mancuso hefur hingað tU fyrst og fremst verið þekkt fyrir að
skíða niður brekkurnar á stórmótum með kórónu á hjálmi sín-
um. Þó svo að engin hafi kórónan verið í gær var hún sannarlega
krýnd sem drottning er hún, öllum að óvörum, vann sjaldséð
bandarískt gull í alpagreinunum. Var þetta fyrsta gull banda-
rískra kvenna í stórsvigi í 22 ár og það þriðja frá upphafi.
Mancuso hefúr aldrei áður fagn-
að sigri á stórmóti, hvorki á heims-
bikarmótaröðinni, heimsmeistara-
keppninni né á ólympíuleikum.
Besti árangur hennar til þessa í
Tórínó var sjöunda sætið í bruninu
en hún hefur þó komið sér þrisvar á
verðlaunapall í heimsbikarnum og
þá vann hún tvenn bronsverðlaun á
síðasta HM. Ekki eru nema þrjú ár
síðan hún varð heimsmeistari ung-
linga í risasvigi en Mancuso verður
22 ára í apríl næstkomandi.
Fádæma öryggi
Hún sýndi fádæma öryggi í
brekkunni í Sestriere í gær og náði
langbesta samanlagða tímanum.
Aðeins Anna Ottosson frá Svíþjóð
náði betri tíma í seinni ferðinni
enda hoppaði hún úr því 13. upp í
bronsverðlaunasætið. Stórkostlegur
árangur hjá henni og sárabót fyrir
Svía en Anja Parson, sem var með
næstbesta tímann eftir fyrri ferðina,
náði eingöngu sjötta sætinu. Sigur
hennar í sviginu á miðvikudag
höfðu gefið Svíuum miklar vonir
um sjötta gull þeirra á leikunum og
fjórðu verðlaun hennar sérstaklega
þar sem helsti keppinautur hennar,
janica Kostelic frá Króatíu, treysti
sér ekki til að keppa vegna veikinda.
Finnskt silfur
Annar Norðurlandabúi deildi
sviðsljósinu með þeim Mancuso og
Ottosson en það var hin fmnska
Tanja Poutiainen sem vann silfur í
gær. Voru það fyrstu verðlaun Finna
í alpagreinum frá upphafi og var því
ærið tilefni til að fagna hjá Finnum.
Hún hefur þó áður fagnað nokkrum
sigrum í heimsbikarkeppninni og
komst tvívegis á verðlaunapall á
HM í fyrra. Ottosson hefur þrívegis
komist á pall áður, á heimsbikar-
mótaröðinni, þar sem hún hefur
einu sinni fagnað sigri.
Erfið braut
Mancuso vann í gær fyrstu
ólympíuverðlaun bandarískra
skíðakvenna frá því Picabo Street
vann gull í Naganó árið 1998. Hiin
hefur aldrei áður verið með foryst-
una eftir fyrri ferð og er sigurinn
enn merkilegri í þvf ljósi því pressan
er mikil í þeirri stöðu. Hún sýndi
hins vegar engin veikleikamerki í
síðari ferðinni þrátt fyrir að brautin
væri mjög krefjandi. Flestir gerðu
stór mistök í síðari ferðinni og ófáir
heltust hreinlega úr lestinni.
Hefði Párson komist á pall í gær
hefði hún jafnað árangur Kostelic
sem hefur unnið til sex ólympíu-
gullverðlauna.
Dagný Linda féll
Dagný Linda Kristjánsdóttir tók
þátt í stórsviginu í gær og féll úr
keppni í fyrri umferðinni. Enginn
millitími var gefinn upp hjá henni
en hún virtist hafa náð sér vel á
striken brautin varð henni þó ofviða
í erfiðum aðstæðum í Sestriere í
gær. Dagný Linda getur þó verið
afar stolt af sínu enda náði hún 23.
sæti í bæði bruni og risasvigi sem er
vonandi aðeins vísbending um það
sem koma skal hjá henni á næstu
misserum.
eirikurst@dv.is
Ótrúlegt gengi Svía á vetrarólympíuleikunum í Tórínó
Bestu vetrarólympíuleikar Svía frá upphafi
Anja Párson Fagnar einu af fimm gullverðlaunum Svia á leikunum til þessa.
Hafðist í
fimmtu tilraun
Hinni tékk-
nesku Katerina
Neumannova
tókst loksins að
vinna gull í 30 km
skíðagöngu
kvenna með
frjálsri aðferð en
þetta voru hennar
fimmtu Ólympíu-
leikar. Hafði hún
lýst því yfir fýrir
leikana að þetta yrðu hennar
síðustu og var greinin sú síðasta
sem hún tekur þátt í. Neu-
mannova, sem er 32 ára, kom í
mark á undan Julija Tchepalovu
frá Rússlandi sem vann í Nagano
árið 1998. Fagnaði hún ógurlega
með Luciu, tveggja ára dóttur
sinni, sem tók á móti henni í
markinu.
Svíar hafa undanfarnar tvær vik-
ur setið límdir við sjónvarpstækin
og fylgst með ólympfuförum sínum
keppa í Tórínó. Og þeir hafa ekki
orðið fyrir vonbrigðum. Árangurinn
í Tórínó er sá besti frá upphafi en
aldrei áður hafa Svíar unnið fimm
gullverðlaun. Og ekki er öll nótt úti
enn því Svíar gætu enn náð verð-
launum í íshokkíi karla en úrslitin
fara fram um helgina.
Það er þó í skíðagöngunni sem
Svíar hafa komið langmest á óvart.
Þrenn gullverðlaun hafa litið dags-
ins ljós og hefur Björn Lind unnið
tvö þeirra. Annað þeirra kom að
vísu í liðakeppni en árangurinn er
ekki síst merkilegur í ljósi þess að
Svíar höfðu ekki unnið gull á vetr-
arólympíuleikum í tólf ár áður en
Lind tryggði fyrsta gullið á fimmta
degi leikanna.
Árangurinn er enn sætari þar
sem nágrannaþjóðinni, Noregi,
hefur gengið átakanlega illa miðað
við oft áður eins og kom fram í DV
Sport í gær. Enginn hefði búist við
því að Norðmenn yrðu eingöngu
komnir með tvenn gullverðlaun
þegar svo langt er liðið á leikana og
þess síður að Svíar yrðu komnir
með fimm gullna kleinuhringi um
hálsinn.
Ásamt Lind er Anja Párson
skærasta stjarna Svía. Hún fagnaði
gulli í svigi kvenna á miðvikudag
en náði þó ekki að fylgja því eftir í
stórsviginu í gær. Þar varð hins
vegar Anna Ottosson óvænt í þriðja
sæti og grét hún ekki þann árangur.
„Ótrúlegt - ég var næstum búin
að pakka saman og fara eftir fýrri
ferðina," sagði hún en Ottosson
náði eingöngu 13. besta tímanum í
fyrri ferðinni. Parson var þá í öðru
sæti en féll niður í það sjötta. „í
hreinskilni sagt er ég fegin. Hún
hefur fengið svo marga verðlauna-
Nordic Photos/Getty
peninga en ég var ekki búin að fá
neinn," sagði hún með bros á vör.
eirikurst@dv.is