Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2006, Qupperneq 28
28 LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 2006
Helgarblaö DV
<íkt
/iu/'lioiu/i/tt/ut
Þórdís Brynjólfsdóttir, fyrrverandi handboltastjarna, mun halda upp á eins
árs afmæli dóttur sinnar um þarnæstu helgi. „Þetta er búið að vera ótrúlega
fijótt að líða og í rauninni finnst mér eins og ég hafi verið að fæða hana í síð-
asta mánuði," segir Þórdfs sem er ekki viss um að hún snúí aftur f handbolt-
ann. „Ég er sjálf byrjuð að æfa í World Class en ég veit ekki með boltann.
Kannski maður byrji á næsta tímabiii," segir hún en Þórdís spilaði með FH.
„Eins og staðan er f dag hef ég ekki saknað handboltans. Það er svo gott að
vera heima á kvöldin með barnínu og manninum f staðinn fyrir að vera á
endalausum æfingum um kvöldmatarleytið. Hins vegar stefni ég á að fara í
nám f haust og ætla að skella mér i hönnun í Iðnskólanum í Hafnarfirði," segir
Þórdfs sem er á leiðinni til Tenerife eftir tvær vikur með fjölskyldunni.
Gosh-varablýantur
„Þessi er frá Gosh og heitir Pink
Cloud. Hann er svona ljós, brún-
bleikur og mjög flottur. Yfirleitt set
ég á mig smá varablíant og ég er
mjög ánægð með Gosh-vörurnar.“
Gosh-gloss
„Þessi gloss er eiginlega glær. Ég
nota miklu frekar gloss en ef ég vil
fá meiri lit nota ég varalitinn."
3HE&SKISS -
Augnhára- ;
brettari
„Ég er algjörlega háð augnhára-
brettaranum mínum. Yfirleitt mála
ég mig ekki mikið, set aðeins á mig
maskara og gloss en
augnhárabrettarinn er ;
hættulega ávanabind-
andi.“
Athafnakonan
Ragnhildur Magnúsdóttir, fyrrverandi útvarps-
kona, er með mörg járn í eldinum. Ragga, eins og hún er kölluð,
örvæntir ekki þótt hún hafi sagt starfi sínu lausu á útvarpsstöð-
inni Kiss FM enda vel menntuð heimskona hér á ferðinni.
„Ég er ein af þeim sem flnnst
skemmtilegt að vinna og hef gaman
af því að takast á við ögrandi verk-
eflii," segir Ragnhildur Magnúsdóttir
útvarpskona. Það vakti mikla athylgi
þegar Ragga, eins og hún er kölluð,
sagði upp störfúm á útvarpsstöðinni
Kiss FM en þar hafði hún unnið síðan
2003. Ragga segir enga óvild milli
hennar og ráðamanna á Kiss FM, það
hafi einfaldlega verið kominn tími til
að prófa eitthvað nýtt.
Ragga er vel menntuð og tækifær-
in eru mörg og hún hefur litlar
áhyggjur afþví að vera atvinnulaus til
lengdar. Hún er með BA-próf í stjórn-
málafræði frá háskóla í San Francisco
í Bandaríkjunum en hún bjó í Berkel-
ey í Norður-Kaliforníu og tók auk
þess námskeið í faginu í Háskóla ís-
lands eftir að hafa flutt heim frá
Bandaríkjunum. Hún hefur auk þess
unnið á verðbréfamarkaði í Banda-
ríkjunum, rekið nýsköpunarfyrirtæki
á íslandi og framleitt sjónvarpsaug-
lýsingar og tónlístarmyndbönd fyrir
íslenskan og evrópskan markað.
Er svolítill einfari
„Ég fæddist í Reykjavík en er upp-
alin í litla fallega sjávarþorþinu
Stykkishólmi. Mamma mín og fóst-
urpabbi ákváðu að flytja út þegar ég
var átta ára og á næstu tíu árum flutt-
um við að meðaltali einu sinni á ári,
annað hvort innan Bandaríkjanna
eða til íslands og út aftur," segir
Ragga sem viðurkennir að rótleysið
hafi haft áhrif á hennar karakter. „Ég
þekkti náttúrulega ekkert annað en í
kjölfarið hef ég rosalega aðlögunar-
hæfni enda hef ég alltaf þurft að byrja
upp á nýtt. Það erfiðasta var samt að
kveðja vinina sem ég hafði eignast á
hverjum stað. í dag á ég fáa en góða
vini sem hafa reynst mér vel,“ segir
hún og bætir við að hún sé svoh'till
einfari í sér. „Þótt ég elski fólk og sé
ofsalega opin er ég nettur lóner.“
Samsæriskenningar á litla
íslandi
Ragga segist vita til þess að Gróa á
Leiti hafi farið á fullt skrið þegar frétt-
ist af uppsögn hennar á Kiss FM. Þótt
hún elski ísland segir hún baktalið og
slúðrið sem fýlgi svona litlu samfé-
lagið ákaflega þreytandi. „Það höfðu
einfaldlega orðið svo miklar breyt-
ingar, bæði á stjómendum fyrirtæk-
isins, dagskrár- og framkvæmda-
stjórum, eigendum og stefnunni al-
mennt. Fyrst reyndi ég að fylgja flæð-
inu en sumt sem var að breytast var
ekki samkvæmt minni sannfæringu.
Ég var undir restina í því hlutverki að
leysa af í annarra manna þáttum sem
tekur tíma að móta, svo sem í morg-
unþættinum, og var einfaldlega ekki
að þrífast lengur í starfinu. Ég hefði
viljað bara vera á þeim tíma sem ég
var upphaflega, með fasta vakt þrjá
tíma á dag. Ég sá ekki fyrir mér ffam-
tíð þama lengur og fannst ég hafa
lært það sem ég vildi læra á þessum
Stjórnmálafræð-
ingur Ragga kláraði
stjórnmálafræðina í
háskóla I Bandaríkj-
unum þegar hún var
aðeins22ára.
stað og á þessari útvarpsstöð og
ákvað að segja þetta gott. Þetta var
erfið ákvörðun en um leið og ég var
búin að taka hana hef ég ekki snúið
aftur eina sekúndu og fer með bros á
vör aftur á atvinnumarkaðinn, góða
reynslu og ffábærar minningar. Hins
vegar var þetta engin skyndiákvörð-
un,“ segir hún og bætir við að það sé
algjör óþarfi hjá fólki að ímynda sér
hinar ýmsu samsæriskenningar í
kringum brottför hennar. „Ég hef
heyrt að ég og fyrrverandi samstarfs-
kona mín, Guðrún Dís Emilsdóttir,
höfum verið reknar með skömm en
það er algjör misskilningur. Það er
ekkert dramatískt við þetta og alls
enginn heimsendir þótt við séum
hættar. Þetta er svolítið fjöl-
miðlatýpískt - að halda að fólk hljóti
að fara í einhverjum leiðindum eða
að það hljóti nú að hafa verið upp-
sagnir og læti. Soldið dramatískt
finnst mér. Ég útskýrði mitt mál og af
hverju ég vildi ekki semja um endur-
ráðningu og er bara hætt. Þetta er allt
í góðu."
Ragga flutú til íslands aftur þegar
hún var 25 ára. Hún ætlaði sér aðeins
að kíkja heim en hefur verið hér síð-
an. „Þetta æxlaðist einhvern veginn
enda var gott að vera komin aftur. Ég
hafði ekki komið til íslands í fjögur ár
áður en ég settist hér að og var orðin
algjör Ameríkani í mér," segir Ragga.
Það vita það fáir en Ragga er íþrótta-
kona sem keppú bæði í víðavangs-
hlaupum og frjálsum íþróttum öll
háskólaárin úú. Hún er enn að
hlaupa og æúar meira að segja að
skella sér í maraþonið í sumar. „Ég
fer ekki í hlaupið til að keppa, er ein-
faldlega að þessu fyrir sjálfa mig því
það er gott að hafa eitthvað til að
stefna að,“ segir hún og bætir við að
hún hlaupi ein nokkrum sinnum í
viku úú í náttúrunni.
Varðandi framtíðina segist Ragga
horfa björtum augum fram á við.
Hún býst við að vera hér á landi en
æúar sér þó að kíkja til úúanda á
hverju ári enda vön að vera á þeyúngi
um heiminn. „Eins og staðan er í dag
er ég að skoða ýmsa möguleika sem
tengast sérverkefnum í fjölmiðlageir-
anum. Einnig hef ég verið að skoða
félagasamtök því ég hef áhuga á að
gera eitthvað sem lætur gott af sér
leiða. Ég held nefnilega að ég sé nett-
ur samfélagshippi í mér efúr öll þessi
ár í Berkeley."
indiana@dv.is
Kanebo-gel
„Þetta gel frá Kane-
, bo er alveg ómissandi.
' Ég er ekki mikið fyrir að
púðra mig og nota eigin-
lega aldrei kökumeik.
Þetta gel hressir hins
vegar aðeins upp á and-
litið og ég hef notað þetta
síðan ég byrjaði að mála
mig.“
Clinique-maskari
„Ég er að prófa þennan
maskara í fyrsta skiptið og
hann er langt því frá að
vera sá besú. Maskarinn frá
Helenu Rubenstein er hins
vegar í uppáhaldi. Ég
kaupi mér alltaf maskara
sem eiga að lengja og
þykkja þótt ég þurfi í
irauninni ekki á því að
halda."
Lancome-varalitur
„Þennan ljósbleika vara- '
lit frá Lancome nota ég
stundum. Annars nota ég
ekki mikið varaliti, miklu
frekar gloss og smá varablý- j|
ant."
r *
Ri
IIOTEL
^ i w ;i !«• fct* hl
á Fjalakettinum
á Uppsölum bar & bistro
iréhirúvt
Aðalstræti 16
Komdu inn úr kuldanum í rjúkandi
heita stemmningu
Fáðu Sangria á barnum, pantaðu glóðheitan
spánskan mat eldaðan af matreiðslumönnum
Fjalakattarins
Leyfðu vínþjónunum að velja gott spánskt vín
fyrir ykkur og njótið lífsins um leið og það er
stjanað við ykkur!!!
Pantaðu borð í dag í síma 514-6060
X
WYVW. iMAKKARtNf'ilS
HEILDVERSLUN air
BAR&CAtK
Aðalstræti 16
Eldhúsið opið alla daga vikunnar 11:30 til 22:00