Freyr

Volume

Freyr - 01.12.1971, Page 54

Freyr - 01.12.1971, Page 54
kring, gúrkum, epium í bátum, frÖnskum kartöflum, saltkexi eða því sem til er af ávöxtum eða grænmeti. Steikið þær við vægan hita í um. þ. b. 5 mín. á hvorri hlið. Berið réttinn fram vel heitan með soðnum eða steiktum kartöfl- um, soðnu grænmeti og hrásalati. Ostaídýfa 100 g olíusósa (mayon naise) chilisósa, eða tómatsósa 1 msk. rauð paprika, fersk Bragðbætið olíusósuna með chilisósu, setj- ið smátt rifinn Tilsitter og saxaða papriku saman við. Hrærið vel. Hræðið Gráðaost- inn út með ákavíti og sýrðum rjóma, bætið síðan olíusósunni smátt og smátt út í, hrærið í á milli. Berið franskar kartöflur, saltstengur, gúrkur og epli með ídýfunni. Alveg tilvalið í saumaklúbbinn eða önnur boð t. d. jólaboðin, eða við sjónvarpið. 100 g Tilsitter 50 g Gráðaostur 1 msk. ákavíti 2 msk. sýrður rjómi Cammenbert-ídýfa 75 g Cammenbert 3 dl rjómi 75 g Gráðaostur (4 tsk. paprika 75 g smjör Hrærið saman rifnum Gráðaosti, smátt brytjuðum Cammenbert og 1 dl af rjóma. Þeytið 2 dl rjóma og blandið gætilega sam- an við. Kryddið með papriku. Setjið ídýf- una í skál á kringlóttan bakka og raðið í VISSNESKUR SÉRRÉTTUR 2 eggjarauður (4 I rjómi (má vera mjólk) 75 g rifinn ostur 45% salt, pipar 2 eggjahvítur 4 hveitibrauðssneiðar, ristaðar 1 di hvítvín (má sleppa) Ofnhiti 180°C Tími 20—30 mín. Smyrjið eldfast mót. Raðið smurðum, rist- uðum hveitibrauðssneiðum í mótið. Sláið saman eggjarauðum og rjóma, kryddið með salti og pipar og bætið rifnum ostinum í. Stífþeytið eggjahvíturnar og blandið þeim gætilega saman við. Hellið sósunni yfir brauðið, stráið dálitlu af rifnum osti yfir og bakið ljósbrúnt. Ef vill má hella 1 dl af hvítvíni yfir brauðið áður en sósan er látin á. Þessi réttur er góður með á kvöldverðar- borðið eða sem sjálfstæð máltíð, þá gjarn- an með hráu grænmetissalati. Brauðterta 1 hveitihrauðssneið, skorin eftir endilöngu brauðinu 4 msk. smjör 300 g nautahakk 2 beikonsneiðar 4 msk. rifinn ostur 45% 2 tsk. sinnep 2 msk. steinseija, klippt salt, pipar 4 þykkar ostsneiðar 4 msk. tómatmauk Smyrjið brauðið með smjöri og sinnepi. (Betra er að rista brauðið í glóðarofni áð- ur, en það er ekki nauðsynlegt). Blandið vel saman kjöthakki, steiktu fleski í litlum bitum, rifnum osti, steinselju og svolitlu af salti og pipar. Breiðið kjötdeigið yfir brauðbotninn, og setjið í 200°C heitan ofn í 10—15 mín. Leggið þá ostinn í lengjum yfir brauðið, þannig, að köflótt mynstur myndist, setjið örlítið af tómatkrafti í hvern kafla og bakið áfram í 5—6 mín. 518 F R E Y R

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.