Freyr - 01.12.1971, Blaðsíða 54
kring, gúrkum, epium í bátum, frÖnskum
kartöflum, saltkexi eða því sem til er af
ávöxtum eða grænmeti.
Steikið þær við vægan hita í um. þ. b. 5
mín. á hvorri hlið. Berið réttinn fram vel
heitan með soðnum eða steiktum kartöfl-
um, soðnu grænmeti og hrásalati.
Ostaídýfa
100 g olíusósa (mayon
naise) chilisósa, eða
tómatsósa
1 msk. rauð paprika,
fersk
Bragðbætið olíusósuna með chilisósu, setj-
ið smátt rifinn Tilsitter og saxaða papriku
saman við. Hrærið vel. Hræðið Gráðaost-
inn út með ákavíti og sýrðum rjóma, bætið
síðan olíusósunni smátt og smátt út í,
hrærið í á milli. Berið franskar kartöflur,
saltstengur, gúrkur og epli með ídýfunni.
Alveg tilvalið í saumaklúbbinn eða önnur
boð t. d. jólaboðin, eða við sjónvarpið.
100 g Tilsitter
50 g Gráðaostur
1 msk. ákavíti
2 msk. sýrður rjómi
Cammenbert-ídýfa
75 g Cammenbert 3 dl rjómi
75 g Gráðaostur (4 tsk. paprika
75 g smjör
Hrærið saman rifnum Gráðaosti, smátt
brytjuðum Cammenbert og 1 dl af rjóma.
Þeytið 2 dl rjóma og blandið gætilega sam-
an við. Kryddið með papriku. Setjið ídýf-
una í skál á kringlóttan bakka og raðið í
VISSNESKUR
SÉRRÉTTUR
2 eggjarauður
(4 I rjómi (má vera
mjólk)
75 g rifinn ostur 45%
salt, pipar
2 eggjahvítur
4 hveitibrauðssneiðar,
ristaðar
1 di hvítvín (má sleppa)
Ofnhiti 180°C
Tími 20—30 mín.
Smyrjið eldfast mót. Raðið smurðum, rist-
uðum hveitibrauðssneiðum í mótið. Sláið
saman eggjarauðum og rjóma, kryddið með
salti og pipar og bætið rifnum ostinum í.
Stífþeytið eggjahvíturnar og blandið
þeim gætilega saman við. Hellið sósunni
yfir brauðið, stráið dálitlu af rifnum osti
yfir og bakið ljósbrúnt. Ef vill má hella
1 dl af hvítvíni yfir brauðið áður en sósan
er látin á.
Þessi réttur er góður með á kvöldverðar-
borðið eða sem sjálfstæð máltíð, þá gjarn-
an með hráu grænmetissalati.
Brauðterta
1 hveitihrauðssneið,
skorin eftir endilöngu
brauðinu
4 msk. smjör
300 g nautahakk
2 beikonsneiðar
4 msk. rifinn ostur 45%
2 tsk. sinnep
2 msk. steinseija, klippt
salt, pipar
4 þykkar ostsneiðar
4 msk. tómatmauk
Smyrjið brauðið með smjöri og sinnepi.
(Betra er að rista brauðið í glóðarofni áð-
ur, en það er ekki nauðsynlegt). Blandið
vel saman kjöthakki, steiktu fleski í litlum
bitum, rifnum osti, steinselju og svolitlu
af salti og pipar. Breiðið kjötdeigið yfir
brauðbotninn, og setjið í 200°C heitan ofn
í 10—15 mín. Leggið þá ostinn í lengjum
yfir brauðið, þannig, að köflótt mynstur
myndist, setjið örlítið af tómatkrafti í
hvern kafla og bakið áfram í 5—6 mín.
518
F R E Y R