Freyr - 01.03.1999, Side 25
í 4. töflu má sjá að framleiðslu-
kostnaður á íslensku byggi er mun
hærri en innflutningsverð (cif) á því
byggi sem flutt er til landsins. Þar
með er ekki sagt að íslensk bygg-
rækt sé óhagkvæm fyrir íslenska
bændur, því að þegar kostnaður,
heildsala, álagning (50%) og flutn-
ingskostnaður hefur verið lagður
ofan á innflutningsverð erlenda
byggsins horfir málið öðruvísi við.
Þegar reiknað kostnaðarverð inn-
lends korns er borið saman við
söluverð innflutts korns reynist ís-
lenskt votverkað bygg vera um
12,8% ódýrara en innflutta byggið,
að teknu tilliti til álagningar og
flutningskostnaðar. Þurrkaða ís-
lenska kornið er hins vegar 9,5%
dýrara en það innflutta miðað við
að hvoru tveggja sé komið heim til
bóndans.
Hagkvæmnimörk
kornræktar
I 5. töflu er sýndur framleiðslu-
kostnaður á kg af korni í saman-
burði við mismunandi magn upp-
skeru. A árinu 1997 var upp-skera í
kornræktartilraunum Rannsókna-
stofnunar landbúnaðarins [á sex
stöðum á landinu] allt frá 3 tonnum
á ha upp í rúmlega 4,8 tonn á ha.
Þeir sem minnstu uppskeruna
höfðu voru þannig með um 60%
hærri framleiðslukostnað á kg af
votverkuðu korni miðað við þá sem
mest uppskerumagn höfðu, þ.e.
20,53 kr/kg samanborið við 12,83
kr/kg. Hagkvæmni votverkaðs
korns greinist jákvæð þegar upp-
skera nær 3.050 kg/ha. Flestir kom-
ræktendur ná uppskerumagni sem
er yfir þeim mörkum (uppskera til
nytja, þ.e. sú uppskera sem kemur
af akri). Tap við verkun, geymslu,
völsun og gjöf getur raskað þeim
tölum sem menn horfa oftast á, þ.e.
brúttó uppskerutölur úr tilraunum.
Ef þurrka á kornið þarf uppskeran
hins vegar að ná um 3.800 kg/ha. Á
2. mynd er sýnt á myndrænan hátt
hvar hagkvæmnimörkin liggja að
meðaltali í íslenskri kornrækt.
Breytilegar forsendur
Margar forsendur, aðrar en upp-
skerumagn, sem lagðar eru til
grundvallar við áður gerða kostn-
aðargreiningu, eru í raun breyti-
legar, bæði hvað varðar einstaka
bændur og eins á milli ræktunar-
tímabila. Til glöggvunar verður hér
á eftir gerð grein fyrir helstu breyti-
legum forsendum.
Jarðvegsgerð skiptir máli þar sem
mismunandi áburðai'magn þarf eftir
FREYR 2/99 - 25
5. tafla. Kostnaður á kg af korni eftir magni uppskeru.
Uppskera kg/ha íslenskt votverkað íslenskt þurrkað Innflutt bygg
1.800 34,22 43,01 20,20
2.000 30,80 38,71 20,20
2.200 28,00 35,19 20,20
2.400 25,67 32,26 20,20
2.600 23,69 29,78 20,20
2.800 22,00 27,65 20,20
3.000 20,53 25,81 20,20
3.200 19,25 24,19 20,20
3.400 18,12 22,77 20,20
3.600 17,11 21,51 20,20
3.800 16,21 20,37 20,20
4.000 15,40 19,36 20,20
4.200 14,67 18,43 20,20
4.400 14,00 17,60 20,20
4.600 13,39 16,83 20,20
4.800 12,83 16,13 20,20
5.000 12,32 15,48 20,20
Hagkvæmnismörk kornræktar
Uppskera (kg/ha)
—*—Islenskt votveikað —n—- Islenskt þurikað -----Inntlutt bygg
2. mynd. Hagkvœmnismörk komrœktar á íslandi.