Freyr

Árgangur

Freyr - 01.03.1999, Blaðsíða 25

Freyr - 01.03.1999, Blaðsíða 25
í 4. töflu má sjá að framleiðslu- kostnaður á íslensku byggi er mun hærri en innflutningsverð (cif) á því byggi sem flutt er til landsins. Þar með er ekki sagt að íslensk bygg- rækt sé óhagkvæm fyrir íslenska bændur, því að þegar kostnaður, heildsala, álagning (50%) og flutn- ingskostnaður hefur verið lagður ofan á innflutningsverð erlenda byggsins horfir málið öðruvísi við. Þegar reiknað kostnaðarverð inn- lends korns er borið saman við söluverð innflutts korns reynist ís- lenskt votverkað bygg vera um 12,8% ódýrara en innflutta byggið, að teknu tilliti til álagningar og flutningskostnaðar. Þurrkaða ís- lenska kornið er hins vegar 9,5% dýrara en það innflutta miðað við að hvoru tveggja sé komið heim til bóndans. Hagkvæmnimörk kornræktar I 5. töflu er sýndur framleiðslu- kostnaður á kg af korni í saman- burði við mismunandi magn upp- skeru. A árinu 1997 var upp-skera í kornræktartilraunum Rannsókna- stofnunar landbúnaðarins [á sex stöðum á landinu] allt frá 3 tonnum á ha upp í rúmlega 4,8 tonn á ha. Þeir sem minnstu uppskeruna höfðu voru þannig með um 60% hærri framleiðslukostnað á kg af votverkuðu korni miðað við þá sem mest uppskerumagn höfðu, þ.e. 20,53 kr/kg samanborið við 12,83 kr/kg. Hagkvæmni votverkaðs korns greinist jákvæð þegar upp- skera nær 3.050 kg/ha. Flestir kom- ræktendur ná uppskerumagni sem er yfir þeim mörkum (uppskera til nytja, þ.e. sú uppskera sem kemur af akri). Tap við verkun, geymslu, völsun og gjöf getur raskað þeim tölum sem menn horfa oftast á, þ.e. brúttó uppskerutölur úr tilraunum. Ef þurrka á kornið þarf uppskeran hins vegar að ná um 3.800 kg/ha. Á 2. mynd er sýnt á myndrænan hátt hvar hagkvæmnimörkin liggja að meðaltali í íslenskri kornrækt. Breytilegar forsendur Margar forsendur, aðrar en upp- skerumagn, sem lagðar eru til grundvallar við áður gerða kostn- aðargreiningu, eru í raun breyti- legar, bæði hvað varðar einstaka bændur og eins á milli ræktunar- tímabila. Til glöggvunar verður hér á eftir gerð grein fyrir helstu breyti- legum forsendum. Jarðvegsgerð skiptir máli þar sem mismunandi áburðai'magn þarf eftir FREYR 2/99 - 25 5. tafla. Kostnaður á kg af korni eftir magni uppskeru. Uppskera kg/ha íslenskt votverkað íslenskt þurrkað Innflutt bygg 1.800 34,22 43,01 20,20 2.000 30,80 38,71 20,20 2.200 28,00 35,19 20,20 2.400 25,67 32,26 20,20 2.600 23,69 29,78 20,20 2.800 22,00 27,65 20,20 3.000 20,53 25,81 20,20 3.200 19,25 24,19 20,20 3.400 18,12 22,77 20,20 3.600 17,11 21,51 20,20 3.800 16,21 20,37 20,20 4.000 15,40 19,36 20,20 4.200 14,67 18,43 20,20 4.400 14,00 17,60 20,20 4.600 13,39 16,83 20,20 4.800 12,83 16,13 20,20 5.000 12,32 15,48 20,20 Hagkvæmnismörk kornræktar Uppskera (kg/ha) —*—Islenskt votveikað —n—- Islenskt þurikað -----Inntlutt bygg 2. mynd. Hagkvœmnismörk komrœktar á íslandi.

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.