Freyr

Árgangur

Freyr - 01.03.1999, Blaðsíða 36

Freyr - 01.03.1999, Blaðsíða 36
fjórum reitum, á tvo af þeim reitum var kúm beitt á haustin 1969 og 1970. Niðurstöðurnar sjást í töflu 3. Notuð var Heuma hjólmúgavél. Léttur rakstur þýddi að tindar vélarinnar hvíldu með um 6 kg þunga á túninu. Þungur rakstur var það þegar tindarnir hvíldu með 18 kg þunga á túninu, þ.e. með fullum þunga. Eins og sjá má á uppskeru- tölunum er munur á uppskeru eftir aðferðum við heyskapinn óverulegur. Það var heldur ekki veruleg uppskerurýrnun eftir því hvort kúm hafði verið beitt á landið nýræktarárið og haustið eftir. Árið 1970 var metið hve mikið vélarnar rifu upp á tveimur til- raunaliðum, niðurstöðuna má sjá á súluritinu. Það virtist sem för eftir klaufir kúnna í grassverðinum hafi orðið til þess að múgavélin reif frekar upp plöntur. í athugun sem gerð var ný- ræktarárið, 1969, kom í Ijós að það voru fyrst og fremst vallarfoxgras- plöntur sem rifnuðu upp. Á móti hverri einni plöntu af vallarsveifgrasi eða túnvingli sem rifnuðu upp, lágu tvær plöntur af vallarfoxgrasi í valnum. Áhrif greiðusláttuvéla, siáttutætara og sláttu- þyrlu á uppskeru. Tilraun nr. 154-64. Landið, sem tilraunin var á, var ræst fram árið 1960 og plægt og kýft næsta ár. Árið 1963 var flagið tætt og sáð í það A-blöndu SÍS. Niðurstöðurnar má sjá í töflu 4. Árin 1964 og 1965 voru c-og d- liðir slegnir með sláttutætara en 1966-1969 voru þeir slegnir með sláttuþyrlu. Það var dálítil mold saman við grasið sem slegið var með sláttutætara og sláttuþyrlu, þess vegna eru uppskerutölurnar af c- og d-liðum ef til vill full háar. í töflu 5 sjást niðurstöður gróðurathugana sem gerðar voru með oddamælingu. Það vekur furðu að öllu meira virðist vera af vallarfoxgrasi þegar slegið var nærri með sláttuvélunum. Hins vegar var meira um eyður þegar slegið var með sláttutætara og sláttuþyrlu. eins og flestum hefði þótt líklegt. Árin 1964-1967 var prótein mælt í uppskerunni. Það voru nokkur vandkvæði á að mæla próteinið vegna þess hve skítugt grasið var af reitunum, sem slegnir voru með sláttutætara. Það var ekki unnt að sjá á tölunum að það væri munur á þeim eftir því hvort slegið var nærri eða fjarri. Tölurnar um prótein voru notaðar til að reikna út hve mikið köfnunarefni var tekið upp. Tölurnar sem sjást í töflu 6 gefa til kynna að það sem tekið var með uppskeru af köfnunarefni hafi verið um það bil sama magna og borið var á. Lega heyflekkja á túni. Tilraun nr. 235-69. Gerð var ein tilraun til að athuga hvort það hefði áhrif á sprettu túna að heyflekkir lægju í langan tíma á túninu. Niðurstöðurnar eru settar upp í töflu 7. Árið 1971 var töluverð úrkoma í júlímánuði, eða 85,2 mm. Árið eftir var gott sprettuár en óþurrkasamt. Önnur ár var ekki mikill munur á uppskeru liða. Hugsanlegar skýringar á því Tafla 3. Áhrif heyvinnuvéla á uppskeru túna 1969-1972. Uppskera hey hkg/ha, meðaltal 4 ára. Ekki beitt 1969 og 1970 Beitt a. Rakað með hrífu, ekki ekið á reitunum. 50,4 51,5 b. Rakað með hrífu og ekið á reitunum í samræmi við liði c og d. 48,8 49,7 c. Heyi rakað létt með hjólmúgavél, tvær umferðir. 50,8 49,9 d. Heyi rakað þungt með hjólmúgavél, tvær umferðir. e. Rakað létt með hjólmúgavél, ein umferð með heyi 50,9 47,6 og tvær umferðir á auðu túninu. f. Rakað þungt með hjólmúgavél, ein umferð með heyi 51,3 48,2 og tvær umferðir á auðu túninu. 51,1 49,4 g. Heyi snúið tvær umferðir með þyrlu. 50,9 49,5 Meðaltal: 50,6 49,4 Það er ekki raunhæfur munur á milli liða. 36- FREYR 2/99

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.