Freyr

Volume

Freyr - 01.05.1999, Page 6

Freyr - 01.05.1999, Page 6
finnst samt að menn reikna ekki alltaf dæmið til enda. Það er einfaldlega buddan hjá bóndanum sem ræður.“ Það þarf að auka neyslu innanlands Að mati Haraldar er of mikil áhersla lögð á útflutning á kindakjöti en á meðan sé horft ffam hjá því að neyslan hér á landi sé stöðugt að drag- ast saman, þó að hún hafi reyndar aukist örlítið á síðasta ári. „Mér fínnst að það hafi ekki verið gert nóg til að spoma gegn minni neyslu hér á landi því að það er vissulega alltaf besti markaðurinn. Ég hef ekki trú á þeirri aðferð að eyða milljónum króna í ein- hveijar sjónvarpsauglýsingar undir kjörorðinu „lambakjöt á diskinn minn.“ Ég held að þeim peningum sé ekki vel varið.“ Haraldur rifjar upp tilraun sem gerð var fyrir nokkrum árum hjá Sláturfélagi Suðurlands á vegum RALA í sambandi við B-flokkinn svokallaða en það kjöt var talið of feitt til neyslu. Þetta kjöt var fitusnyrt rækilega og slögin, aftari hluti síð- unnar, bringan, hálsinn og hæklamir voru ijarlægð. Með þessu fór um 18% af skrokknum. Þetta kjöt var að mati Haraldar úrvalskjöt þegar það kom á markaðinn. Harald langaði til að reyna að koma svona snyrtu kjöti á markað fyrir þremur áram og ætlaði að bjóða 100 slíka lamba- skrokka. Hann fór fram á það við Framleiðsluráð að 19% útflutnings- skylda, sem þá var á kjöt, yrði felld niður af þessurn 100 skrokkum. Framleiðsluráð hafnaði þessu og landbúnaðarráðuneytið gerði það líka. Þetta fannst Haraldi skrýtið, sérstaklega í ljósi þess að þessum 19%, sem áttu samkvæmt reglum að fara í útflutning, hefði hvort eð er verið fleygt. Haraldur gafst þó ekki upp og kom kjötinu í sölu með aðstoð ffá SS og KÁ, sem seldi kjötið. Það er skemmst ffá því að segja að kjötið rokseldist og þessir 100 skrokkar fóra á tveimur dögum þrátt fyrir að þetta hefði verið lítið auglýst og að- eins verið selt í KÁ á Selfossi. Haustið eftir reyndi hann þetta líka og keypti sig þá undan útflumings- skyldunni. Þá var það sama uppi á teningnum, kjötið seldist upp á skömmum tíma. í haust gerði hann þetta hins vegar ekki þrátt fyrir að vera hvattur til þess. „Ég geti ekki staðið í þessu einn ef ég fæ engan smðning ffá neinum. Ég held hins vegar að þama sé möguleiki á að auka neyslu kindakjöts innan- lands. Það er liðin tíð að menn geti bara afhent skrokkinn eins og hann kemur fyrir viðskiptavininum og sagt honum að borða þetta. Það gekk einu sinni en gengur ekki lengur.“ Haraldur er með nemendur á Hvanneyri í verknámi. Nemamir koma i verknámið effir fyrsm önnina og dveljast á bænum í þijá mánuði. „Þetta er ágætis tilhögun. Krakkamir fara yfirleitt í annan landshluta en þeir koma ffá en fá að koma með óskir um á hvemig búi þeir vilja dveljast. Flest- ir nemarnir hafa verði úrvalsfólk og það er með ólíkindum hvað við höf- um verið heppin með það.“ Harðnandi samkeppni Haraldur telur að ýmislegt þyrfti að gera til að bæta hag sauðfjárbænda hér á landi. „Við verðum að gera okk- ur grein fyrir því að við eram i bull- andi samkeppni sem mun harðna. Svínakjötffamleiðsla hefúr verið að stóraukast og það kjöt hefiir lækkað í verði um 20-30%. Það er hins vegar mjög stór spuming hvemig við getum bragðist við þessari samkeppni. Mað- ur reynir náttúralega fyrst að hagræða hjá sjálfum sér í rekstrinum en það era takmörk fyrir því hvað hægt er að gera mikið af því.“ Hann telur einnig mörgum spum- ingum ósvarað varðandi nýja sauð- fjársamninginn sem er í bígerð. „Ég held að ef það á að vera einhver ffam- þróun í þessu þarf endumýjunin í bú- greininni að verða meiri en hún er. Það er mjög mikið af litlum búum með fúllorðnu fólki sem er ólíklegt að nokkur taki við af. Nú er verið að tala um að skipta því ffamlagi sem fer til sauðfjárræktarinnar í formi bein- greiðslna niður í þijá hluta þannig að fyrsti hlutinn verði eftir greiðslu- marki, annar hlutinn verði greiddur á hvert ffamleitt kjötkíló og þriðji hlut- inn verði greiddur eftir bústærð og hvort urn lögbýli sé að ræða eða ekki. Ef það á að vera einhver ffamþróun í greininni þá tel ég að þessi framlög verði að koma að stærstum hluta á ffamleiðsluna. Þá er ekki vandamál með endumýjun ef einhver vill fara út í þessa búgrein og allir sitja við sama borð. Ég held að ekki sé hætta á stórfeldi í ffamleiðsluaukningu um- ffam það sem hægt væri að afsetja með auknum útflutningi.“ Haraldur telur að ekki verði hjá því komist að verð á kindalqöti lækki. „Þeir sem hafa hagrætt hjá sér og geta ffamleitt fyrir þetta verð halda áffam og hinir hætta. Það er bara markaðslögmálið sem gildir í þessu eins og öllu öðra. Ef beingreiðsl- umar koma aðeins á ffamleiðsluna ýtir það undir þetta. Það er alltof algengt að menn séu með sauðfé sem aukabúgrein án þess að hugsa mikið um það. Rollumar era bara þama af því að þær hafa alltaf verið þar og það er ekki einu sinni hægt að sækja sláturféð til þeirra i rigningartíð, það er ekki aðstaða til þess. Ég sé ekki ástæðu til að þessir menn sitji við sama borð og þeir sem reyna að lifa af þessu eingöngu og hugsa vel um féð og ffamleiða góða vöra fyrir markaðinn. Svo er það mjög fjarstæðukennt að beingreiðslur sem hafa verið undanfarin ár séu ekki í hlutfalli við gæðaflokkun kjötsins heldur jafnt á ffamleitt kíló kjöts. Með þessu er verið að verðlauna skussana sem hugsa ekkert um féð og ræktun þess.“ Haraldur vill brýna fyrir sauðfjár- bændum að sinna ræktunarstarfmu vel. Nú sé auðveldara um vik eftir að nýja matið er komið. „Ef neytandinn fer að læra á þetta líka getur hann val- ið besta kjötið. Þá verður bóndinn líka að standa sig í hvívetna svo þetta kjöt sé til. Dilkakjöt þarf að fá þá ímynd að vera eftirsótt hágæðavara, ffamleidd í hreinu íslensku umhverfi í sátt við landið.“ HI 6- FREYR 5-6/99

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.