Freyr - 01.05.1999, Side 19
Víkingur 97-484 er mjög
jafnvaxinn, holdþéttur og
lágfættur en hann er sonur
Vals 90-934.
Hrútur nr. 97-067 á Á á
Skarðsströnd var einn
allra besti einstaklingur
sem sýndur var á Vestur-
landi. Hrútur þessi, sem
er sonarsonur Kráks 87-
920, er samræmisgóður,
útlögumikill og með
feikna góðan og harð-
holda afturpart.
Baröastrandar-
sýslur
I sýslunni voru nú sýnd-
ir 102 hrútar og voru tveir
þeirra í hópi eldri hrút-
anna. Veturgömlu hrút-
amir em umtalsvert fleiri
en haustið áður og er sú
aukning öll í Vesturbyggð
en þar var stór hópur af
aðfengnum veturgömlum
hrútum. Veturgömlu
hrútamir vom að meðaltali
82 kg að þyngd og fengu
72 þeirra I. verðlaun.
í Reykhólahreppi var
bestur hrúta Púki 97-320 i
Neðri-Gufúdal en hann er
aðfenginn úr Hafnardal
við Djúp. Þessi hrútur er
lágfættur, jafnvaxinn og
samanrekinn holdahnaus
með góða ull. Jömndur
97-323 á sama bæ er einn-
ig úrvalshrútur þó að ekki
séu hann jafnoki Púka að
læraholdum. Kútur 97-
037 í Árbæ er mjög vænn,
bollangur með feikna bak-
og lærahold. Depill 97-
106 í Gautsdal er frá Árbæ
undan Hnykli 95-820.
Þessi hrútur er ákaflega
jafnvaxinn og feikna hold-
ugur hvar sem á hann er
litið og em læraholdin
frábær, ullin kostamikil en
veikleiki í fótum.
Besti hrúturinn í Vest-
urbyggð var Hnoðri í
Kvígindisdal frá Kambi í
Reykhólahreppi. Þessi
kollótti hrútur er mjög
jafnvaxinn og vel gerð
holdakind með góða ull.
Stebbi 97-003 í Innri-
Múla stóð honum næstur
en hann er ffá Broddanesi
á Ströndum, einnig mikil
kostakind og gefur
Hnoðra lítið eftir. Fjöl-
margir fleiri góðir kollótt-
ir aðkomuhrútar voru
þama. Af hymdum hrút-
um var Jói á Hamri best-
ur, mjög útlögugóður og
vel gerður hrútur aðfeng-
inn frá Brjánslæk.
ísafjarðarsýslur
Þó að ekki væm sýn-
ingar á öllu svæðinu vom
sýndir álíka margir hrútar
og árið áður. Einn eldri
hrútur og 52 veturgamlir
vom skráðir á sýningu.
Veturgömlu hrútarnir
vom 77,8 kg að þyngd að
jafnaði og fengu 43
þeirra, eða 83,7%, I. verð-
laun sem er verulega betri
flokkun en árið áður.
Af hymdum hrútum
stóð efstur Veggur 97-400
á Kirkjubóli í Valþjófsdal,
ákaflega mikil kostakind
að allri gerð með frábæra
holdfyllingu en þessi
öðlingskind er sonur
Dropa 91-975. Valur í
Ytri-Hjarðardal var í öðm
sæti með feikilega góða
holdfyllingu i afturhluta en
ull ekki nema í meðallagi
að gæðum. Valur er sonur
Galsa 93-963 og næstur
honum stóð hálfbróðir
hans Stapi 97-142 á
Kirkjubóli í Dýrafirði.
Besti kollótti hrúturinn
var einnig í Kirkjubóli í
Valþjófsdal en það var
Hnykill 97-402, bollangur,
jafnvaxinn með þykkan
vöðva en ull í meðallagi að
gæðum. Þessi hrútur er
sonur Hnykils 90-976 og
albróðir hans Hnoðri 97-
401 var einnig mjög vel
gerð kind. Næstur Hnykli í
röð af kollunum stóð Gnýr
97-628 í Botni í Súganda-
firði, mikil kind á velli
með mjög góða gerð og
góða ull. Hann ber nafh
föður síns nr 91-967.
Strandasýsla
Þátttaka í sýningarhaldi
eins og öllum þáttum
ræktunarstarfsins var al-
menn og góð í Stranda-
sýslu. Sýndir vom sam-
tals 234 hrútar og vom 14
þeirra úr hópi eldri hrúta.
Veturgömlu hrútarnir
vom 220 og voru þeir
82,9 kg að meðaltali,
jafnþungir jafnöldmm
sínum í Borgarfirði, en í
þessum tveimur sýslum
vom veturgamlir hrútar
jafhvænstir haustið 1998.
Af veturgömlu hrútunum
voru 195 með I. verð-
launa viðurkenningu, eða
89%, sem er talsvert betri
flokkun en haustið áður.
í Ámeshreppi voru ekki
einstaklingar sem skör-
uðu áberandi fram úr, en
hrútastofninn að vanda
ákaflega vel gerður og
holþéttur, en hrútar léttir í
samanburði við aðrar
sveitir sýslunnar.
Boði 97-310 á Bassa-
stöðum bar af hrútum í
Kaldrananeshreppi, ákaf-
lega holdgróinn, sérstak-
lega í mölum, og læmm, en
þessi holdaköggull er sonur
Nökkva ffá Melum.
Glæsilegur hrútahópur
var í Hafnardal við Djúp,
en þar bám af Dindill 97-
536 sem er sonur Byls 94-
803, kattlágfættur, útlögu-
mikill holdaköggull, og
Prins 97-539 sem er
þroskamikill, jafhvaxinn
og ákaflega vel gerður
hrútur, en hann er sonur
Hamars 93-515. Hjá
Nönnu Magnúsdóttur á
Hólmavík varNasi 97-387
ákaflega fagur einstakl-
ingur með vel hvíta ull, en
sá hrútur er ffá Heydalsá
sonur Kölska 96-481.
í Kirkjubólshreppi bám
hrútar á Smáhömmm og
Heydalsá af í stórum hópi
athyglisverðra hrúta. Sónar
97-507 á Smáhömmm er
feikilega mikil kjötkind,
lágfættur og vöðvaþykkur,
en hann er sonur Eirs 96-
466, Sindri 97-505 er einn-
ig mjög glæsilegur ein-
staklingur af sömu hrúta-
línu, sonur Kóps 95-825.
Hjá Braga á Heydalsá bar
af Hreinn 97-511 sem er
hymdur hrútur sonur
Hnoðra 95-801. Þessi
hrútur er feikilega þroska-
mikill, sterkbyggður og
gróinn í holdum, Trix 97-
510 ffá Broddanesi, sonur
Atrix 94-824, er mjög jafn-
vaxinn og vel gerður hrút-
ur. 1 hrútahópi Halldóm á
Heydalsá stóð fremstur
Arður 97-520 sem er ákaf-
lega glæsilegur einstakling-
ur, jafnvaxinn, feikilega út-
lögugóður og allur gróinn í
holdum, en hann er sonur
Bjarts 96-480. Gauti 97-
527 á Gestsstöðum er ágæt-
lega gerður hrútur með
góða ull en hann er ffá
Gautsdal í Geiradal.
I Broddaneshreppi var
mikið hrútaval. Hjá Jóni í
FREYR 5-6/99 - 19