Freyr

Árgangur

Freyr - 01.05.1999, Blaðsíða 20

Freyr - 01.05.1999, Blaðsíða 20
Broddanesi var stór hópur úrvalsgóðra hrúta. Þar stóðu samt fremstir Pjakkur 97-094, sonur Atrix 94- 824, Loki 97-092, sonur Riddara, og Hnykill 97- 095, sonur Dropa 96-090, en allir þessir hrútar em sérlega ræktarlegar kindur, mjög lágfættir, jafnvaxnir og grónir í holdum og þeir tveir síðasttöldu alhvítir. í Felli var einnig mjög góður hrútahópur þar sem Smári 97-078 frá Smáhömmm og Broddi 97-076 frá Jóni i Broddanesi bám af, báðir mjög lágfættir og þéttholda og glæsilegir hrútar. Dalur 97-058 í Gröf frá Heydalsá, sonur Þyrils 94-399, er mjög góð kind, hreinhvítur, útlögugóður og ákaflega vel holdfylltur en mætti vera heldur bollengri. í Bæjarhreppi var mikill hópur veturgamalla hrúta sem vom margir keyptir af öflugustu fjárræktarbúun- um norðar í sýslunni. Á sameiginlegri sýningu vom athyglisverðustu hrútamir fra búunum í Bæ, Glámur 97-466 hjá Þorgerði og Gunnari er öflug holdkind, með góð lærahold og góða ull og Ás 97-479 hjá Þór- ami er þroskamikill, sterk- byggður, bollangur og vel holdfylltur en hann er fra Ásgarði í Hvammssveit. Glúmur 97-466 í Laxár- dal er ágætur hrútur með mjög góð lærahold og vel hvítur, en hann er son- arsonur Skjanna 92-968. Norðurland Vestur- Húnavatnssýsla Þar í sýslu voru nú sýndir talsvert færri hrútar en haustið áður eða samtals 87 hrútar og voru 12 þeirra úr hópi eldri hrúta. Veturgömlu hrútarnir 75 voru 82,5 kg að meðaltali að þyngd og fengu 73 þeirra I. verðlauna við- urkenningu sem er frá- bær niðurstaða flokkun- ar enda orðið mjög skipulegt val ásetnings- hrúta á þeim búum sem sýna hrúta. Besti hrútur í sýslunni var Muni 97-092 á Bergs- stöðum á Vatnsnesi. Muni er sonur Svaða 94- 998 og dóttursonur Gosa 91-945. Hann er hvítur, fmbyggður með frábær bak-, mala- og lærahold. Eins og fram kemur í grein um afkvæmasýn- ingar sýndi hann einstaka niðurstöðu þar, þannig að kostir hans erfast vel til afkvæma. Hálfbræðumir Kóngur 97-707 og Sopi 97-709 á Vatnshóli, sem em synir Dropa 91-975, eru báðir feikilega þroskamiklir hrútar og allir ákaflega vel holdfylltir en aðeins gulir á ull. Gerð afkvæma þeirra var áberandi betri en annarra hrúta á búinu. Aðrir athyglisverðir hrútar sem ástæða er til að nafngreina voru af hymd- um hrútum: Fantur 97- 728 á Sauðá, sonur Kletts 89-930, Spuni 97-093 á Bergsstöðum á Vatnsnesi, undan Svaða 94-998, Trítill 97-143 á Bergs- stöðum í Miðfírði, undan Berg 93-149, Baldur 97- 554 á Fremri-Fitjum, undan Hnykk 91-958 og Bergur á Illugastöðum frá Bergsstöðum á Vatnsnesi, sonur Úða 94-613. Af kollóttum hrútum voru hins vegar þeir bestu: Stúfur 97-717 í Núpsdals- tungu, sonur Svala 96- 714, og Bryti 97-166 í Miðhópi frá Grund í Kirkjubólshreppi. Allt em þetta mjög jafnvaxnir hrútar með ágæt hold og gallalitla ull. Austur- Húnavatnssýsla Miklu fleiri hrútar vom nú sýndir í sýslunni en haustið 1997 eða samtals 111 og vom 17 þeirra úr hópi eldri hrútanna. Vet- urgömlu hrútamir, 94 að tölu vom 81,6 kg að jafn- aði að þyngd. Af þessum hrútum fengu 62 eða 66% I. verðlaun og er það tals- vert lakari flokkun en haustið 1997. Eins og oft var bestu hrúta sýslunnar að flnna á Akri, en bestur þeirra allra var Hermir 97-471, ákaflega jafnvaxinn og vel holdfylltur hrútur en með gul hár í ull. Hrútur þessi er sonarsonur Fóstra 90-943, en faðir hans, Bryti 92-451, er fjárskiptahrútur frá Hjarðarfelli. Einnig eru Hringur 97-470 og Vinur 97-472 á Akri báðir mjög vel gerðir einstakl- ingar. Gestur á Stóra- Búrfelli er mjög vel gerður Qárskiptahrútur, fenginn frá Gestsstöðum í Kirkjubólshreppi. Þessi kollótti hrútur er prýði- lega jafnvaxinn, sterk- legur með mjög góða holdfyllingu. Spakur 93- 335 á Tjörn á Skaga er rnjög vel gerður sonur Kletts 89-930. Skagafjarðarsýsla í haust voru margir veturgamlir hrútar til í Skagafirði og þátttaka í sýningarhaldi því miklu meiri en árið áður. Sam- tals voru sýndir 273 hrútar og voru sjö þeirra í hópi eldri hrútanna. Veturgömlu hrútarnir 264 voru 79,3 kg að meðaltali og fengu 199 þeirra I. verðlauna viður- kenningu, eða 75% hrút- anna, sem er nokkru betra hlutfalla en hjá jafnöldrum þeirra á svæðinu árinu áður. Við þá miklu fækkun sveitarfélaga sem varð í Skagafirði á árinu og þá staðreynd að hvergi var sameiginleg sýning vegna sjúkdómavarna þá verður hér gerð grein fyrir hrút- unum í stigaröð óháð bú- setu. Besti veturgamli hrút- ur SkagaQarðar haustið 1998 var Ugluspegill 97-257 í Litlubrekku á Höfðaströnd, sonur Burkna 94-412 sem er heimaalinn. Ugluspegill er glæsikind, hreinhvít- ur, jafnvaxinn með frá- bær mala- og lærahold og þykkan bakvöðva. Annar i röðinni og jafnframt besti kollótti hrúturinn var Garpur 97-347 í Sólheimum í Sæmundarhlíð. Hann er fæddur á Heydalsá á Stöndum, sonur Stera 20- FREYR 5-6/99
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.