Freyr - 01.05.1999, Qupperneq 21
92-323, og því blend-
ingur úr hyrndu. Garpur
var gríðarvænn, lang-
vaxinn og einstaklega
útlögumikill með frábær
lærahold.
Þriðji í röðinni ogjaíh-
framt annar í röð “koll-
óttra” var Krókur 97-238
í Beingarði í Hegranesi,
sonur Frama 94-996.
Krókur er öngulhymdur
samanrekinn og lágfætt
holdakind.
Fjórði í röð og jafn-
framt annar í röð
hyrndra hrúta varð
Hnallur 97-031 á Brúna-
stöðum í Fljótum, sonur
Galsa 93-963. Hann
varð þess heiðurs að-
njótandi að mælast með
þykkasta bakvöðvann í
Skagafirði, auk þess er
hann mjög vel holdfyllt-
ur að öðru leyti en gall-
aður á ull. Skilaði hann
öllum þessum eiginleik-
um vel til afkvæma
sinna.
Fimmti varð Svali 97-
655 á Stóru-Ökrum 1 í
Blönduhlíð, sonur Svaða
97-998. Hér er á ferðinni
einn allra glæsilegasti
sonur Svaða sem til er.
Svali er lágfætt, sérlega
harðholda, jafn - og lang-
vaxin hörkukind með
góða ull. Hann skilaði
einstaklega góðu kjötmati
hjá afkvæmum sýnum í
haust (vöðvi 9,76 stig) og
sýndi þar með að í raun er
hann líklega besti hrútur
héraðsins þegar á allt er
litið.
Sjötti var Klumpur
97-528 á Syðri-
Hofdölum í Viðvíkur-
sveit, sonur Hnykks 91-
958. Gríðarvænn, bol-
langur kjötklumpur en
helst til feitur og gulur
á ull.
Sjöundi var Fjárvís
97-258 í Litlubrekku
sem er heimaræktaður
undan Fjára 95-414. Sér-
lega útlögumikill með
ágæt bakhold og góða
ull.
Áttundi var Moli 97-
319 í Miðhúsum í Ós-
landshlíð, sonur Spóns
94-993. Moli er kattlág-
fættur, samanrekinn
holdahnaus eins og
Strandafé gerist best en
aðeins gallaður á ull og
fótum.
Þessum hrútum til
viðbótar var hópur
glæsilegra einstaklinga.
Fyrsta bera að nefna
hrútana á Syðra-Skörðu-
gil á Langholti, þá Sikil
97-434, son Stikils 91-
970, og Gassa 97-435,
son Galsa 93-963. Þeir
eru báðir ákaflega
glæsilegar kindur, Stik-
ill allur stærri og lengri
en Gassi lágfættur og
samanrekinn. Þeir eru
gott dæmi um velheppn-
aða blöndu Snæfellsnes-
og Hestsfjár. Þá koma
fjárskiptahrútarnir á
Gauksstöðum á Skaga,
þeir Fantur 97-062 frá
Mávahlíð og Völlur 97-
064 frá Brimilsvöllum,
undan Þrótti 95-572,
sem eru báðir glæsilegir
fulltrúar snæfellskrar
sauðfjárræktar. Þá er
einn Snæfellingurinn
enn, Mávi 97-378 á
Stóru-Gröf-ytri á Lang-
holti. Mávur er frá
Mávahlíð, sonur Spaks
93-049, sem stóð efstur
á siðustu héraðssýningu
á Snæfellsnesi.
Næst er að geta nokk-
urra hrúta sem eru upp-
runnir úr Þistilfirði í
móðurætt. Sómi 97-329
á Óslandi, sonur Galsa
93-963, er samanrekinn
köggull en full stuttur
og gulur. Hnykill 97-
503 í Álftagerði, sonur
Blævars 90-974, er katt-
lágfættur með vel hold-
fylltan afturpart. Gosa
97-396 á Hlíðarenda í
Óslandshlíð, sonur
Galsa 93-963, er gríðar
útlögumikill en full fitu-
sækinn.
Þá er komið að nokkr-
um kollóttum hrútum
sem flestir eru ættaðir af
Ströndum. Brundur 97-
500 i Ásgeirsbrekku,
keyptur frá Smáhömr-
um, sonur Parts 94-406,
er langvaxinn með frá-
bærar útlögur og mikil
lærahold en gallaður á
fótum og ull. Tuttugu og
einn 97-726 á Úlfsstöð-
um í Blönduhlíð, sonur
Hnykks 91-958, er
blendingskind og sýnir
Svalur 97-236 á Krossum á Árskógsströnd. (Ljósm. Ó. V.).
hvernig unnt er að bæta
kollótt fé með hyrndu.
Sóli 97-514 í Hofstaða-
seli í Viðvíkursveit er
ein af mörgum góðum
sonum Sólons 93-977
sem fram komu i Skaga-
firði í haust og þeirra
glæsilegastur. Flosi 97-
237 í Beingarði í Hegra-
nesi, sonur Spóns 94-
993, er mikill fram með
þétt lærahold og ullar-
prúður en lausholda.
Að lokum skal nefna
Sólonssynina, Sólon 97-
145 á Minni-Reykjum í
Fljótum, Sölva 97-317 í
Miðhúsum Óslandshlíð
og Sóla 97-642 á Minni-
Ökrum í Blönduhlíð,
Galsasoninn Krók 97-
592 á Frostastöðum í
Blönduhlíð, Kúnnason-
inn Tuma 97-441 í
Geldingaholti á Lang-
holti, Klettssoninn
Hnoðra 97-044 á Stóra-
Holti í Fljótum, Mjald-
urssoninn Bút 97-391
skólabúsins á Hólum í
Hjaltadal, Dropasoninn
97-263 í Eyhildarholti í
Hegranesi og Fenrisson-
inn Fenri 97-482 í
Keldudal í Hegranesi.
Allt eru þetta prýðilega
gerðir hrútar og bera því
vitni að sú vinna sem
lögð er i ræktunarstarfið
skilar sér.
Eyjafjarðarsýsla
í Eyjafjarðarsýslu
voru sýndir verulega
fleiri hrútar en haustið
FREYR 5-6/99 - 21