Freyr

Årgang

Freyr - 01.05.1999, Side 30

Freyr - 01.05.1999, Side 30
Tafla 1. Umfang afkvæmarannsókna haustiö 1998 Svæði Fjöldi búa Fjöldi hópa Vesturland 32 170 Vestfirðir 6 32 Strandasýsla 28 167 V-Húnavatnssýsla 29 193 A-Húnavatnssýsla 9 47 Skagafjörður 44 224 Eyjafjörður 19 102 S-Þingeyjarsýsla 17 98 N-Þingeyjarsýsla 24 150 Austurlands 22 105 A-Skaftafellssýsla 10 58 Suðurlands 17 83 Samtals 257 1429 burði fyrir viðkomandi hrút í kjötmati, en til að um sé að ræða tilsvarandi yfírburði í ómsjárhluta rannsóknarinnar þarf einkunn í þeim hluta að vera komin upp í um eða yfír 120. Heildareinkunn sem byggir á jöfnum einkunnum beggja þátta í rannsókninni er því veru- lega jákvæð ef hún er orð- in 110 eða hærri, en sé hins vegar ósamræmi á milli þátta í rannsókninni er eðlilegt að meta tölur á annan hátt. Eins og fram hefur kom- ið hefur enn ekki unnist tími til mikillar heild- arvinnslu á niðurstöðum haustsins. Akveðnir þættir virðast samt augljóslega blasa við sem skipta veru- legu máli þegar niðurstöð- ur eru túlkaðar og hljóta að hafa áhrif á það hvemig nota á þær í ræktunarstarf- inu. í fyrsta lagi blasir skýrt við að í hinu nýja kjöt- mati er neikvætt samband á milli hinna tveggja sjálfstæðu þátta sem þar em metnir, vöðvafylling- ar og fítu. Hins vegar er þessi fylgni ekki sterkari en það að góðir rnögu- leikar eru á að fínna marga einstaklinga sem sameina jákvæðar niður- stöður fyrir báða þessa þætti. Það er tvímælalaust slíkum einstaklingum sem þarf að fjölga í fjár- stofninum á næstu árum með markvissu ræktunar- starfi. Annar mikilvægur þátt- ur, sem virðist blasa við, er að samband á milli óm- sjármælinga og mats á vöðvafyllingu í kjötmati er almennt ekki mjög sterkt. Út frá eldri rann- sóknum er vitað að óm- sjármælingarnar eru tví- mælalaust besti mæli- kvarði sem við getum fengið um heildar vöðva- magn einstaklingsins, en hins vegar er þar hverf- andi lítið tillit tekið til skrokklögunar kindarinn- ar, sem aftur á móti hefur vafalítið talsvert vægi í kjötmatinu. Rétt samþætt- ing á niðurstöðum úr vöðvamati og ómsjár- mælingum er því tví- mælalaust það sem þarf að stefna að í ræktuninni á næstu árum. í töflu 1 er gefíð yfírlit um umfang þessara rann- sókna síðastliðið haust. Þar sést að veruleg þátt- taka hefur náðst í þessu starfí og fullyrða má að aldrei áður hefur tekist í ræktunarstarfínu að fá jafn virka þátttöku rækt- enda í starfí. Verði niður- stöðumar notaðar á virk- an hátt við val á hrútum og þeim hrútum, sem reynast ekki vel, verði eytt úr ræktuninni mun það vafalítið skila sér í umtalsverðum ræktunar- árangri til aukinna kjöt- gæða hjá íslensku sauðfé á skömmum tíma. Taflan sýnir að rann- sóknir fóru fram á samtals 257 búum og komu þar til dóms afkvæmi samtals 1433 hrútar. Hér á eftir verður gerð aðeins nánari grein fyrir umfangi rann- sókna í einstökum héruð- um að nokkuð vikið að at- hyglisverðum þáttum sem lesa má úr niðurstöðum. Ekki verður getið í um- ljöllun rannsókna þar sem ekki komu fram neinir einstaklingar með skýra yfirburði, en slíkt gerðist að vonum allvíða, sér- staklega ef aðeins voru í dómi þrír afkvæmahópar á búinu. Eins er allvíða örðugt að draga fram í dagsljósið sigurvegara rannsóknarinnar þar sem ósamræmi í kjötmats- og ómsjárhluta rannsókn- anna er verulegt. Rannsóknir þessar voru unnar af viðkomandi bún- aðarsamböndum og önn- uðust ráðunautar í sauð- ijárrækt hjá hverju búnað- arsambandi ómsjármæl- ingar og dóma á lifandi lömbum. A svæði búnaðarsam- bands Kjalamesþings voru engrar rannsóknir gerðar eins og sést í töflunni. Vesturland Á Vesturlandi voru rannsóknir unnar á sam- tals 32 búum og leiddir þar til dóms hópar undan samtals 174 hrútum. Skiptingin var þannig að af þessum búum vora fjögur í Borgarfjarðar- sýslu, fimm í Mýrasýslu, sjö á Snæfellsnesi en um- fangið var langsamlega mest í Dalasýslu þar sem slíkar rannsóknir voru unnar á 16 búum. I Borgarfírði fóra rann- sóknir fram á fjórum bú- um. Á Bjarteyjarsandi bar hópur undan Steðja 94- 508 að öllu leyti mjög af ljórum hrútum í dómi. Á Ytra-Hólmi voru sjö af- kvæmahópur dæmdir og þar bar hrútur 97-319 mjög af í ómsjármæling- um en hrútur 97-321 fékk góðan dóm um alla þætti. Af hrútum á skólabúinu á Hvanneyri bar Ás 96-112 mjög af þremur hrútum sem þar vora dæmdir og vora yfírburðir hans skýr- ir í öllum þáttum og hafði hann 117 í heildareink- unn. Af þremur hrútum sem dæmdir voru á Grím- arsstöðum var Móses 97- 304 afgerandi bestur í öll- um þáttum. 1 Mýrasýslu vora af- kvæmarannsóknir á fímm búum. Á Gilsbakka vora hópar undan fjórum hrút- um dæmdir og þar kom Drungi 97-505 best út. Á Þorgautsstöðum vora þrír hópar dæmdir og fékk ísak 97-502 þar afgerandi bestan dóm með 113 í heildareinkunn. Sérstak- lega var fitumat hjá af- kvæmum hans hagstætt en einnig fékk hann mjög góðan dóm um lærahold við ómsjárskoðun gimbra 30- FREYR 5-6/99

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.