Freyr - 01.05.1999, Blaðsíða 35
ins. Niðurstöður kjötmats
á þessu búi voru frábærar
svo og ómsjármælingar.
Þama kom einnig fram
ótrúlegur einstaklingur
sem er Muni 97-092 en
hann fékk 127 í kjötmats-
hluta rannsóknarinnar og
125 í heildareinkunn og
meðaleinkunn falla lamba
undan honum í rannsókn-
inni var 10,2, þ.e. tæplega
U að meðaltali. Þessi
hrútur er sonur Svaða 94-
998 og er hann albróðir
Hraða 97-229 á Sauðá. Þá
var staðfest ótrúleg bak-
þykkt hjá afkvæmum Uða
94-615, líkt og undan-
gengin haust, en hann
fékk 136 í einkunn úr óm-
sjárhluta rannsóknarinn-
ar, sem er ótrúlegt á búi
þar sem jafn öflugur
hrútakostur er og raun ber
vitni. Úði er enn einn úr-
valssona Gosa 91-945. A
Litlu-Asgeirsá bar hrútur
96-425 nokkuð af með
115 í heildareinkunn.
Austur-
Húnavatnssýsla
I Austur-Húnavatns-
sýslu komu til dóms 47
afkvæmahópar á níu bú-
um. Á Bjamastöðum bar
af Dreki 95-005 í hópi sex
hrúta með 115 i heildar-
einkunn. Á Akri bar Freyr
96-467 mjög af i hópi sex
hrúta með fádæma glæsi-
legar niðurstöður en
heildareinkunn hans var
110. Þessi hrútur er sonur
Jökuls 92-455 sem á sín-
um tíma var dæmdur
bestur hrúta í sýslunni en
hann er fjárskiptakind frá
Mávahlíð, sonur Álfs 90-
973. Á Sölvabakka stóð
efstur Salómon 95-084
með 110 í heildareink-
unn, en þar fer einn sona
Hörva 92-972. í Holti í
Svínadal vom átta hópar í
dómi og vom þar afger-
andi efstir Hjarðar 95-017
og Smekkur 95-018, báð-
ir með 113 i heildareink-
unn, með mjög jafnan
dóm beggja þátta. Þessir
hrútar em báðir frá Hjarð-
arfelli, sá fyrmefhdi son-
ur Fóstra 90-943. í Hóla-
bæ var Sporður 95-591
með 120 í ómsjárhluta, en
hann er sonur Gnýs 91-
967, og Glúmur 94-592,
sem er sonarsonur Blæv-
ars 90-974, var með 110 í
kjötmatshluta.
Skagafjörður
Hvergi á landinu var
umfang afkvæmarann-
sóknanna jafn mikið
haustið 1998 og í Skaga-
firði þar sem Jóhannes
Ríkharðsson hefur náð
mjög almennri þátttöku
bænda í skipulegu rækt-
unarstarfi. Til dóms komu
samtals 224 afkvæma-
hópar á 44 búum. Á
Hrauni á Skaga sýndi
Kollur 95-439 ótrúlega
yfirburði í hópi fimm
hrúta sem þar voru
dæmdir. Fékk hann 128 í
heildareinkunn og þar af
142 í ómsjárhluta. Þessi
mikli lambafaðir er sonur
Bjöms 89-933. í Tungu í
Gönguskörðum var stór
rannsókn með 10 hópum
og bar þar af Askur 97-
111 með 126 í heildar-
einkunn en ómsjáreink-
unn hans var hvorki meira
né minna en 149, en þessi
hrútur er sonarsonur Gosa
91-945. Þá var hrútur 97-
109 með 122 í kjötmats-
hluta og feikilega hag-
stætt fitumat. Á Ingveld-
arstöðum var Júní 91-332
með 125 úr ómsjárhluta,
en þessi gamlingi er sonur
Kokks 85-870. T Birkihlíð
var Gosi 95-367 með 124
í ómsjárhluta og er hér á
ferð enn einn sonur Gosa
91-945. í Stóru-Gröf ytri
bar Breki 97-377 af í hópi
fimm hrúta með 112 í
heildareinkunn. Á Syðra-
Skörðugili vom í rann-
sókn sjö hópar, en þar gaf
að lita eitt allra besta mat
í gerð í nokkurri rannsókn
í haust. Efstur í heildar-
einkunn var Gassi 97-435
með 115 í heildareinkunn
og feikihátt ómsjármat,
en hann er sonur Galsa
93- 963. Nagli var þó með
enn glæsilegri niðurstöð-
ur kjötmats þar sem hann
var með 115 i einkunn og
meðaltal fyrir gerð 10,5
eða tæplega U. Hann er
sonarsonur Hörva 92-
972. í Álftagerði vom sex
hrútar í rannsókn þar sem
Fóli 93-602 sýndi nokkra
yfirburði með 116 í heild-
areinkunn en hann er son-
ur Fóla 88-911. Einnig
var góð útkoma hjá
Hnykli 97-503 sem er
sonur Blævars 90-974, en
hann var með 111 í heild-
areinkunn. Meðal sex
hrúta, sem prófaðir vom í
Reykjaborg, sýndu tveir
synir Gnýs 91-967 mikla
yfirburði, Glókollur 97-
623 með 118 í heildar-
einkunn og Gnýr 97-624
með 114. Landi 96-665 á
Þorsteinsstöðum, frá
Hagalandi í Þistilfirði, bar
mikið af í ljögurra hrúta
rannsókn þar á bæ með
117 í heildareinkunn. Á
Hofsvöllum var Hjörvi
94- 770 langfremstur í
hópi fjögurra hrúta með
114 í heildareinkunn.
Á Stóm-Ökrum I kom
fram einn af athyglisverð-
ari hrútum haustsins,
Svali 97-655, en hann var
með 115 í kjötmatshluta
og meðaltal fyrir gerð
falla var 9,9 hjá afkvæm-
um hans. Þessi hrútur er
sonur Svaða 94-998. í
Flatatungu vom sex hrút-
ar i dómi og bar þar af
Bjössi 92-531 með 121 í
heildareinkunn og 132 úr
ómsjárhluta. Þessi gaml-
ingi er fjárskiptahrútur frá
Smáhömrum, sonur
Kráks 87-920. í hópi sex
hrúta á Minni-Ökrum
komu fram tveir eflirtekt-
arverðir hrútar. Sóli 97-
642 var með 126 í heild-
areinkunn, en hann gaf
mjög þykkan bakvöðva
og fítulítil foll. Hann er
sonur Sólons 93-977.
Bóri 97-643 var með 110
í heildareinkunn en það er
sonur Móra 87-947. í
Keflavík bar Frissi 96-
201 mikið af meðal fimm
hrúta með 128 í heildar-
einkunn en hann gaf mjög
þykkan vöðva og gott
mat. Þessi hrútur er af
ættmeiði Kokks 85-870. í
Enni í Viðvíkursveit bar
Prins 95-401 mikið af í
hópi fímm hrúta með 114
í heildareinkunn, en hér
er á ferð sonur Gosa 91-
945. Nóni 95-381 bar
mikið af átta hrútum í
rannsókn í Syðri-Hofdöl-
um með 122 í heildar-
einkunn og 135 úr óm-
sjárhluta. Þessi hrútur er
sonur Hörva 92-972. í
Enni í Unadal, þar sem
voru sex hrútar í dómi,
bar Búi 97-297 verulega
af öðrum hrútum með 115
í heildareinkunn og 128
úr ómsjárhluta. Þessi
hrútur er sonarsonur Gosa
91-945. Á Óslandi bar
Smári 96-324 verulega af
meðal sjö hrúta með 117 í
heildareinkunn. Þessi
hrútur er af Þistilfjarðar-
fé.
FREYR 5-6/99 - 35