Freyr

Volume

Freyr - 01.05.1999, Page 41

Freyr - 01.05.1999, Page 41
Þegar litið er á niðurstöður fyrir hrútanna, sem voru nýir á stöð, hvað varðar hyrndu hrútana, skal bent á eftirfarandi: Garpur 92-808 sýnir mjög góða niðurstöðu. Afkvæmi hans hafa þykkan bakvöðva, frambygging mætti stundum vera betri, lærahold eru oft frábær, en ullargallar eru of áberandi. Húnn 92-809 á ekki stóran lambahóp, en þó koma lömbin all- vel út en gefa ekki tilefni til mikilla ályktana. Bjartur 93-800 mætir til leiks með feikilega stóran hóp afkvæma. Um margt sýna þessi lömb mjög at- hyglisverða niðurstöðu. Stundum má fínna að herðabyggingu, bak- vöðvi mælist þykkur, en ef til vill eru þessi lömb full feit. Lærahold er góð. Mjög mikilsverður kostur af- kvæma hans, umfram afkvæmi margra hinna hrútanna, er feikilega góð og vel hvít ull, sem stundum mætti vera heldur meiri. Peli 94-810 er með allstóran lambahóp sem sýnir prýðilega út- komu. Hér er á ferðinni hrútur sem skilar ákaflega jafnri gerð afkvæma sem auk þess eru yfirleitt með ágæta ull, bæði að magni og gæð- um. Hnoðri 95-801 á mjög stóran lambahóp meðal skoðaðra lamba. Margt feikilega vel þroskaðra og vænna lamba var undan honum. Herðabygging var oft gölluð, þessi lömb stóðust ekki samanburð um þykkt bakvöðva við afkvæmi öfl- ugustu hrútanna en höfðu oft mjög góð mala- og lærahold. Því miður voru ullargæði hjá þessum lömb- um of breytileg þó að hluti þeirra væri vel hvítur eins og Hnoðri sjálfur. Bjálfi 95-803 er, ásamt Garpi og Bjarti, að skila lömbum með þykk- ast bak af nýju stöðvarhrútunum. Hér er mikill kjötgæðahrútur á ferðinni en verulega skortir oft á ullargæði hjá afkvæmum hans. Serkur 95-811 skilar engum um- talsverðum kostum hjá afkvæmum sinum. Mölur 95-812 er líklega sá af hymdu hrútunum nýju á stöðvun- um sem stendur hvað síst undir þeim væntingum sem við hann vom bundnar. Undan mörgum kollóttu hrútanna eru ekki það stórir afkvæmahópar að um þá sé hægt að fella marktæk- an dóm. Bakþykkustum afkvæmum em þeir að skila Spónn 94-993 og Jökull 94-804. Spónn átti stóran hóp sona og í heild vom þetta vel gerð lömb um margt. Sama má segja um mun minni afkvæmahóp undan Jökli. Feikilega stór lambahópur kemur í skoðun undan Byl 94-803. Þetta vom margt afar væn lömb en gerð þeirra var talsvert breytileg og stóð- ust þar vart samanburð við af- kvæmi bestu hrútanna. Sólon 93-977 skilar eins og áður miklu af mjög vel gerðum lömbum þar sem oft eru ágæt lærahold, en þykkt bakvöðva mætti vera meiri. Búri 94-806 átti langstærsta af- kvæmahópinn af kollóttu hrútunum sem notaðir höfðu verið á stöðinni í Laugardælum. Þessi lömb höfðu ekki nægjanlega þykkan bakvöðva að meðaltali, en vora mörg bollöng með fremur jafna gerð. 1 heild sýna mjög margir af yngri hrútunum á sæðingarstöðvunum vemlega góða niðurstöðu hjá af- kvæmum sínum, og endumýjun hrútastofhsins á stöðvunum virðist hafa tekist að vonum. IVlolar Umhverfi, vinnuskilyröi og viðskipti í Bandarfkjunum Bandaríska tímaritið World Per- spectives, WPI, fjallaði nýlega um það að ríkisstjórn Clintons vilji að umhverfismál og málefni vinnu- verndar tengist viðskiptaumræð- um. Clinton forseti hefur æ ofan í æ síðustu mánuði kornist þannig að orði í ræðum sínum að „efnahags- mál heimsins verði að sýna mann- legt andlit“. I tengslum við þessi ummæli hefur hann síðan skýrt út þá ætlun Bandaríkjanna að halda áfram að vinna að viðskipta- samningum sem hafí að geyma ákvæði um vinnuskilyrði; heilsu- vemd, öryggismál og umhverf- ismál. Tímaritið minnir einnig á um- mæli forsetans á ráóherrafundi hjá Alþjóða viðskiptastofnuninni. WTO, í maí 1998 þar sem for- setinn sagði að „við verðum að gera ineira til að samkeppni í við- skiptum milli landa Ieiði okkur ekki til botns í umhverfísmálum, neytendavemd og vinnuskilyrð- um.“ Ummæli sem þessi benda til að umhverfismál og vinnuskilyrði verði mikilvæg fyrir Bandaríkin í væntanlegum samningum um alþjóðaviðskipti innan WTO. Um þetta sjónarmið ríkir ekki sátt og eindrægni í Bandaríkjun- unt. Áhrifamiklir aðilar í banda- rískum landbúnaði hafa t.d. hing- að til vísað á bug öllum hugmynd- um um að fjallað verði um um- hverfisstaðla og vinnuvemd við væntanlega samningagerð. American Farm Bureau, stærstu samtök bænda í Bandaríkjunum, hafa í yfírlýsingu til yfirvalda í viðskiptamálum þar í landi, USTR, látið í ljós að umhverfis- og vinnusjónannið eigi ekki heima í samningum innan WTO. (Inemationella Perspektiv nr. 14/1999). FREYR 5-6/99 - 41

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.