Freyr

Árgangur

Freyr - 01.05.1999, Síða 63

Freyr - 01.05.1999, Síða 63
Rannsókn á arfgerðum príongens í sauðfé frá nokkrum völdum bæjum á riðulausum svæðum Bakgrunnur Rannsóknir á Keldum síðustu ár hafa sýnt að mismunur er á tiðni arf- gerða príongensins í riðuveiku fé og heilbrigðu fé. Arfgerðin VRQ (bók- stafimir standa fyrir mismunandi amínósýmr í táknum 136, 154 og 171) hefur verið skilgreind sem áhættuarfgerð í íslensku fé, því að hún kemur marktækt miklu oftar fyrir í riðufé (14% arfhrein og 45% arfblendin en í heilbrigða fénu eru 4% arfhrein og 21% arfblendin). Önnur arfgerð sem finnst bæði í riðufé og heilbrigðu fé, ARQ, hefur verið skilgreind sem nokkuð hlut- laus hvað varðar riðusmit. Þriðja arfgerðin, AHQ, hefur verið skil- greind sem hugsanlega vemdandi arfgerð eða arfgerð með litla áhættu. Þessi arfgerð hefur ekki fundist í riðufé hér á landi (92 til- felli rannsökuð), en í heilbrigðu fé í litlum mæli (4-9%). Sjaldgæfur breytileiki hefur fundist í tákna 151, sem felst í því að amínósýran cysteine kemur í stað arginine. Þessi breytileiki hefur eingöngu fundist í íslensku fé og gæti skipt máli fyrir riðunæmi þess. (Sjá nánar i annarri grein hér að framan, „Kynbætur til vamar riðu“ eftir sömu höfunda). eftir Stefaníu Þorgeirsdóttur . °9 Astríði Pálsdóttur Tilraunastöð Háskóla íslands í meinafræði að Keldum í samstarfi við Rannsókna- deild dýra- sjúkdóma Markmið Markmið þessa verkefnis er að nýta upplýsingar um arfgerðir príon- gensins við kynbætur á sauðfé, sem með tímanum gætu stuðlað að útrýmingu riðusjúkdómsins á íslandi. Framkvæmd Kannaðar vom arfgerðir príon- gensins með tilliti til riðunæmis í rúmlega 500 kindum, aðallega frá þremur einangruðum svæðum á landinu þar sem aldrei hefur fundist riða, þ.e. Ströndum, Snæfellsnesi og Öræfurn. Einnig var fé athugað frá fáeinum stöðum sem staðsettir em innan riðusvæða en sem þekktir eru fyrir kynbótafé. Valdir voru í samvinnu við Jón Viðar Jónmunds- son ráðunaut BÍ alls 17 bæir sem selja hrúta á sæðingarstöðvar og líf- lömb til riðubæja vegna fjárskipta. Blóðsýnum var safnað úr völdu fé frá eftirtöldum bæjum innan hverra hinna þriggja riðulausu svæða. Öræfi (171 sýni): Smyrlabjörg, Borgarhöfn, Hof I og Svínafell I og II. Snæfellsnes (125 sýni): Hjarðar- fell, Hofsstaðir, Mávahlíð og Brim- ilsvellir. Strandir (146 sýni): Broddanes, Smáhamrar, Heydalsá (2 eig.) og Skjaldfonn. Aðrir staðir (68 sýni) vom Hestur í Borgarfirði, Oddgeirshólar í Flóa og Freyshólar í S-Múlasýslu. Upplýsingar um ætt- emi vom lagðar til grundvallar fyrir vali sýna. Einkum vom skoðaðir hrútar og einnig nokkrar ær úr hverjum dætrahópi. Sigurður Sig- urðarson dýralæknir hjá Rann- sóknadeild dýrasjúkdóma á Keld- um sá um sýnatöku. Greiningaraðferðir Erfðaefnið DNA var einangrað úr blóðsýnunum og príongenið fjöl- Tafla 1. Samanburöur milli nokkurra riöulausra svæöa á tíöni mismunandi sam sæta í táknum 136, 151 og 154 í príongeninu. Tákni Samsæta Öræfi Snæfellsnes Strandir Önnur svæði Alls 136 MN 1,8% (0-6) 1,6% (0-4) 0,7% (0-7) 2,9% (0-10) 1,6% 136 NM 16,4% (6-36) 20,8% (10-31) 11,6% (0-33) 14,7% (0-29) 15,9% 136 A/A 81,9% (58-91) 77,6% (67-90) 87,7% (60-100) 82,4% (62-100) 82,6% 151 C/C 0% 0% 0% 0% 0% 151 C/R 0% 7,2% (0-20) 0% 5,9% (5-8) 2,5% 151 R/R 100% 92,8% (80-100) 100% 94,1% (92-95) 97,5% 154 H/H 0% 0,8% (0-3) 0% 0% 0,2% 154 H/R 16,4% (11-20) 16 ,0% (4-35) 2,1% (0-5) 2,9% (0-5) 10,4% 154 R/R 83,6% (80-89) 83,2% (63-96) 98,0% (95-100) 97,1% (95-100) 89,4% Bókstafirnir standa fyrir mismunandi amínósýrur (A: alanine, C: cysteine, H: histidine, R: arginine, V: valine) á þrem stööum í príongeninu (táknum númer 136, 151 og 154). í svigum eru gefin upp lægstu og hæstu hlutfallsgildi bæja innan svæðanna. FREYR 5-6/99 - 63

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.