Freyr

Volume

Freyr - 01.05.1999, Page 65

Freyr - 01.05.1999, Page 65
Stuðningur við sauðfjárrækt á íslandi og í ESB Eftirfarandi grein er unnin upp úr verkefni sex nemenda við Samvinnuháskólann á Bif- röst. í lok hvennr námsannar vinna nemendur misserisverkefni sem tengist námsefni hennar. Verkefnin eru ýmist unnin í samvinnu við fyrirtæki eða á eigin vegum. í þessu verkefni, sem ber titilinn „Sauðfjár- rækt í evrópsku umhverfi“, er leitast við að svara spumingunni: „Hver væri staða íslenskra sauð- fjárbænda með tilliti til bein- greiðslna og afurðaverðs ef Island væri aðili að ESB?“ Höfundar þessa verkefnis eru Ása S. Haraldsdóttir, Bemhard Þór Bemhardsson, Guðmundur Ólafs- son, Hafsteinn Jóh. Hannesson, Jakob H. Kristjánsson og Jóhannes Jónsson. Landbúnaður innan ESB Þegar landbúnaðarstefna ESB var sett fram árið 1962 vom aðstæður þær að auka þurfti framleiðslu landbúnaðarafurða svo að banda- lagsríkin yrðu sjálfúm sér næg um matvæli. Stefnan leiddi til þess að bændur í ffjósamari hémðum, sem höfðu betri tækifæri til að auka ffamleiðslu sína, tóku til sín stærst- an hluta þeirra styrkja sem í boði voru. Bændur á svæðum sem höfðu fyrir lakari afkomu bám lítið úr být- um og drógust enn frekar aftur úr. Afleiðing stefnunnar varð aukinn munur á afkomu bænda, jafnframt því að framleiðsla jókst umfram þarfir og birgðasöfhun varð mikið vandamál. Þegar leið á níunda áratuginn var ljóst að steínan, með þeim breyt- ingum sem á henni höfðu verið gerðar, þarfnaðist heildarendur- skoðunar. Endurbætt landbúnaðar- stefna leit dagsins ljós árið 1993 og höfðu þá verið gerðar umtalsverðar breytingar sem ætlað var að jafna kjör bænda og færa ffamleiðslu til samræmis við þarfir markaðarins, auk þess að treysta undirstöður bú- setu á dreifbýlum svæðum. Með þessum breytingum varð landbún- aðarstefnan jafnframt hornsteinn umhverfis- og byggðastefnu sam- bandsins þar sem þær snúa að miklu leyti að landbúnaði. Auk þess má nefna að sjávarútvegur fellur undir landbúnaðarstefnu sambandsins. Hann fær þó einungis brot af þeim framlögum sem ætluð eru til framkvæmdar stefhunnar. Núverandi landbúnaðarstefna ESB byggir á eftirfarandi megin- þáttum: * Auka framleiðni í landbúnaði með þvi að stuðla að tæknivæð- ingu og skynsamlegri þróun land- búnaðarframleiðslu auk bættrar nýtingar framleiðsluþátta, þá sér- staklega vinnuafls. * Bæta lífskjör fólks sem hefur afkomu sína af landbúnaði og færa þau til samræmis við það sem almennt gerist í löndum ESB. * Koma á jafnvægi á mörkuðum. Tryggja nægt framboð landbún- aðarafurða. * Tryggja sanngjamt verð á land- búnaðarafurðum til neytenda. I landbúnaðarstefnu ESB felst vemd gegn innflutningi sem bygg- ist á tollum og fleiri innflutn- ingshöftum auk ýmissa styrkja. Þessir þættir miða að þvi að vemda ffamleiðendur á innri markaði ESB gegn samkeppni við ódýrar inn- fluttar landbúnaðarafurðir. Þær breytingar á GATT-samn- ingnum, sem gerðar vom í kjölfar Umguayviðræðnanna, höfðu tals- verð áhrif á framleiðendur landbún- aðarafurða innan ESB. Áhrifin vom þau að markaðsvemd ESB gagn- vart innflutningi var minnkuð um- talsvert en er þó enn fyrir hendi. Einnig fól samningurinn í sér að aðildarríki ESB samþykktu að draga úr stuðningi við landbúnað. Hin nýja landbúnaðarstefna ESB hefur leitt til þess að heildarstuðn- ingur við bændur hefur minnkað, jafnvel umfram áætlanir sam- bandsins. Birgðavandamál eru að mestu úr sögunni og tekjur bænda innan ESB hafa aukist. Því má segja að þrátt fyrir að stefnan sé flókin í framkvæmd hafi náðst þau markmið sem stefnt var að. Styrkjakerfi ESB Styrkjakerfi ESB er mjög fjöl- þætt en hér verður eingöngu fjallað um þann hluta sem tengist sauð- fjárbúskap. Styrkimir, sem hér um ræðir, em beinir og óbeinir styrkir til sauðfjárbænda auk byggða- og umhverfisstyrkja. í umfjölluninni verður að mestu leyti stuðst við upplýsingar um skoskan sauðfjárbúskap og hafðir i huga styrkir sem helst myndu nýt- ast íslenskum sauðfjárbændum. Nokkur aðstöðumunur er á milli ís- lenskra og skoskra sauðfjárbænda. Sem dæmi má nefna að Skotar þurfa ekki að hýsa sauðféð. Réttara gæti talist að miða umfjöllunina við norræna bændur sem búa við svip- uð skilyrði og þeir íslensku. Á það ber hins vegar að líta að saman- burður við Finna og Svía gæfi ekki rétta mynd þar sem þeir njóta enn sérstakra styrkja vegna aðlögunar í kjölfar inngöngu í ESB. Landbúnaðarstyrkir Nærri lætur að helmingur heild- arstyrkja sem veittir eru árlega af fjárlögum ESB fari til framleiðenda FREYR 5-6/99 - 65

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.