Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 15.05.1999, Qupperneq 7

Freyr - 15.05.1999, Qupperneq 7
nóg vatn. Hann yfírheyrði mig um tæknileg atriði við svona vatnslögn, pípuvídd og annað, en þegar ég var að kveðja sagði hann að Ásgeir L. Jónsson, vatnsvirkjaráðunautur, hefði fullyrt að þama væri ekkert vatn að fá. Þá fóru að renna á mig tvær grímur en hálfum öðmm mán- uði seinna þegar ég átti leið þama um brá mér því að þá var bóndi búinn að leggja vatnsveituna. Sem betur fór lukkaðist þetta og húsmóðirin á þessum bæ var mér alltaf afskaplega þakklát. En ég dró þann lærdóm af þessu að það gæti verið betra að vera dálítið orðvar. „Þetta var holl áminning," segir Leifur og kímir við tilhugsunina. Römm er sú taug... „Svo kom að því að við fórum að hugsa til heimferðar. Við hjón- in vorum bæði úr Breiðafírði og langaði þangað aftur. Eftir tveggja ára starf fyrir austan losn- uðu tvö störf á Vesturlandi og það var dálitil togstreita hjá mér um það hvoru ég tæki. Gunnar Guð- bjartsson óskaði eftir því að ég kæmi sem ráðunautur á Snæfells- nes og Ingimundur á Hæli, for- maður Búnaðarsambands Borgar- íjarðar, bauð mér ráðunautsstarf þar. Halldór Pálsson vildi að ég kæmi í Borgaríjörðinn. Halldór beitti þeim rökum að enginn væri spámaður i sínu föðurlandi en ég hafði hann grunaðan um að vilja hafa gott af mér í sambandi við Hestsbúið. Niðurstaðan varð sú að átthagarnir urðu fyrir valinu. Hvort sú ákvörðun var rétt eða ekki er erfítt að fullyrða.“ Þau Leifur og María settust að í Stykkishólmi þar sem hann starf- aði hjá Búnaðarsambandi Snæ- fellinga í aldaríjórðung. Jafnframt því var hann framkvæmdastjóri Búnaðar- og ræktunarsambands- ins frá árinu 1968. Hann kom til starfa árið 1959 en þá voru við- horf í landbúnaði mjög á aðra lund en nú er. „Á þessum tíma voru menn beinlínis hvattir til þess að stækka búin. Þá voru hey ónóg og ræktunarsamböndin hjálpuðu mönnum að stækka túnin með því að starfrækja jarðýtur og skurð- gröfur. Við vorum með þrjár til ijórar jarðýtur og eina eða tvær skurðgröfur og þær höfðu næg verkefni. Sunnan til á Snæfells- nesi eru miklar mýrar og þær þurfti að þurrka til þess að hægt væri að búa þar.“ Búnaðarsambandið nœr yfir Snœfellsnes- og Hnappadalssýslu j en áður hafói það líka náð yfv Dalasýslu. En hvernig var umhorfs í snœfellskum landbúnaði á þessum \ árum? „Þama var víðast hvar blandaður búskapur, kýr og kindur. Búin voru mörg lítil enda höfðu menn lifað á j útræði um langan aldur, einkum á j norðanverðu nesinu. Siðan hefur býlunum fækkað mikið.“ - En höfðu menn ekki nokkur hlunnindi? „Það var fyrst og fremst við Breiðafjöró og eftir að menn fóru að hafa tekjur af selnum var nokk- j uð um það sunnanljalls, þá helst í j Kolbeinsstaðahreppi. Við Breiða- j Qörð höfðu menn æðarvarpið, aðal- lega í eyjunum, þar til minkurinn gekk ffá því, en útgerð var að leggj- ast af til sveita. Þeir sem hana höfðu stundað fluttust flestir inn í þorpin og gerðu þaðan út en létu af búskap.“ Hrútasýningar bættu sauðfjárstofninn - Þú fórst ekki sjálfur í búskap en búféð var aldrei langt undan. þú varst oftast með nokkrar kindur og hesta. „Já, ég hef alltaf haft gaman af skepnum og nokkuð sama hvaða tegund það er. Ég var alhliða bú- fjárræktarráðunautur og altekinn af því sem ég þurfti að sinna á hverj- um tíma. Stundum var það sauð- fjárræktin, á öðmm tímum naut- I gripimir. Ég hafði gaman af þessu öllu og gerði ekki upp á milli grein- anna þótt sumir hafi talað um mig sem sauðamann. Ég neita því ekki að ég hafði gaman af sauðfjárrækt- inni. Ég hef stundum hugsað um það hvað réð því að ég gerðist ráðunaut- ur og hallast helst að því að ég hafí óafVitandi verið að feta í fótspor föður míns. Hann var það sem hét trúnaðarmaður Búnaðarfélags ís- lands á Snæfellsnesi í mörg ár með- fram búskapnum og mældi jarð- abætur í allri sýslunni. Hann fór á hverju sumri tvær til þrjár ferðir sem tóku alls upp undir mánuð því að allt var farið á hestum. Ég held ég hafí verið ellefu ára gamall þegar hann tók mig með inn á Skógarströnd undir því yfirskini að hann væri að temja tvo fola og vantaði mann til að teyma annan þeirra. Mér fannst gaman að koma á bæina og vel var tekið á móti okk- ur i gistingu og mat. Þetta var mikið ævintýri og sennilega hefur þetta haft áhrif á mig seinna meir, að minnsta kosti hvekktist ég ekki.“ - Þú starfaðir að rœktun, bœði bújjár og túna. Voru Snœfellingar opnir fyrir nýjungum á þvi sviði? „Já, mér þótti mjög gott að vinna með þeim. Þarna er mikið af snjöllum búfjárræktarmönnum og ágætum bændum. Við vorum með þeim fyrstu til að halda árlegar sýningar á veturgömlum hrútum en fram að því höfðu sýningar verið sjaldnar. Seinna var einnig farið að sýna lambhrúta og ég held að þetta sýningarhald hafí haft mikil áhrif til þess að bæta bú- stofninn. Menn hreinsuðu meira út af lélegum einstaklingum. Héraðs- sýningar voru svo haldnar annað hvert ár með úrvali úr hverri sveit. það var mikill áhugi á þessum sýningum í öllum sveitum og þetta starf skilaði sér vel. Ég gerði það stundum að gamni mínu, eftir að hafa mælt og vigtað hrútana, að hvetja ungu mennina í sveitinni til að raða þeim upp. Þetta jók áhugann því að menn höfðu gaman af því að taka sjálfír á hrút- unum en láta sér ekki nægja að hlusta á dómarann. Þá komu fram margir snjallir dómarar." FREYR 7/99 - 7

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.