Freyr - 15.05.1999, Side 11
undir Búnaðarbankann. Stjórn
bankans var öll í stjóm deildarinnar
en við hana bættust tveir fulltrúar
frá bændasamtökunum. Einn
bankastjóranna skrifaði upp á lánin
og allan tímann var Stefán Pálsson
tengiliður bankans við deildina.
Hann þekkti vel til og samstarf
okkar gekk ágætlega.“
- Hann hefur aldrei neitaó að
skrifa upp á lán ?
„Nei, ég held hann hafí treyst mér
allvel. 1 stöku tilvikum tók hann
mál til athugunar eins og vera ber.“
- Svo breytist nafnið á Stofnlána-
deildinni í Lánasjóð landbúnaðar-
ins.
„Já, það var samþykkt á Alþingi
árið 1997 og kom til framkvæmda í
byrjun árs 1998.“
- A þessum tíma var verið að
stokka upp allt lánakerfi atvinnu-
lífsins og stofna Framkvœmda-
banka atvinnulífsins. Hvers vegna
fór Stofnlánadeildin ekki þangað
inn eins og Fiskveiðasjóður, Iðn-
lánasjóður og aðrir sjóðir?
„Ég held að það hafi aldrei kornið
til tals og það ríkti enginn ágrein-
ingur um það að halda þessum sjóði
utan við sameininguna, það var vilji
jafnt stjómmálamanna sem bænda-
samtakanna. Það má segja að þessi
sjóður sé dálítið sérstakur, ekki síst
vegna reglnanna um sjóðagjöldin.
Þær raddir heyrðust að réttast væri
að halda sjóðnum áfram í Búnaðar-
bankanum en niðurstaðan varð sú
að gera hann sjálfstæðan. Síðar var
svo ákveðið að flytja aðsetur hans
til Selfoss sem nú er verið að undir-
búa.
- Fylgdu þessu miklar breytingar
í starfsemi sjóðsins?
„Nei, það verður ekki sagt. Þetta
var tiltölulega auðvelt og samning-
ar við Búnaðarbankann um húsa-
leigu og aðra þjónustu gengu greið-
lega. Fyrst og fremst er þessi breyt-
ing stjómunarlegs eðlis, en land-
búnaðarráðherra skipar nú alla
stjóm Lánasjóðsins."
Var alltaf háður starfinu
En nú er Leifur hættur að hlutast
til um fármál bændastéttarinnar.
Hvað tekurþá við?
„Ég hef nóg að gera. Ég ákvað
fyrir allnokkru að hætta á þessu ári
eftir 15 ára starf enda er ég þeirrar
skoðunar að menn eigi helst ekki að
vera mikið fram yfír 65 ára í svona
störfum. Sumir em i erfiðum störf-
um fram til sjötugs og eiga svo ekki
nema örfá sæmileg ár eftir að þeir
hætta. Ég er mjög sáttur við mín
starfslok enda nóg af góðum mönn-
um til að taka við. Nýr fram-
kvæmdastjóri, Guðmundur Stef-
ánsson búnaðarhagfræðingur, hefur
tekið við og ég veit að sjóðurinn
mun sinna hlutverki sinu vel undir
hans stjórn.
Lánasjóðurinn hefur mjög góða
eiginíjárstöðu, eða um 2,6 milljarða
kr. og á að geta sinnt landbúnaðin-
um vel eins og hingað til. Sjóðurinn
nýtur líka trausts stjómvalda því að
hann hefur verið rekinn af ábyrgð
og með lágmarks rekstrarkostnaði.
þetta er mjög mikilvægt að menn
hafi í huga því að hann er einn fárra
sjóða sem nýtur rikisábyrgðar.
Kona mín hætti að vinna í fyrra
en hún starfaði á dvalarheimili. Mér
er ekki farið að leiðast neitt því að
ég hef verið að vinna með syni mín-
um í hestamennsku. Hann er með
hesta sem hann temur og flytur út.
Við keyptum okkur hesthús hér
skammt frá í Mosfellsbænum og
þar er hann með 20 hross á jámum.
I staðinn fyrir að hann réði sér að-
stoðarmann geng ég í verkin með
honum. Þá hefur maður vanrækt
ýmislegt á liðnum ámm sem nú
gefst færi á að bæta úr.
Ég verð að játa það að ég var allt-
af talsvert bundinn mínu starfi, háð-
ur því. Þetta er kannski vondur vani
en ég tók mér aldrei langt sumarfrí í
einu því að mér þótti leiðinlegt að
láta hlutina safhast upp á skrifborð-
inu og hefur alltaf fundist best að af-
greiða málin sem fyrst. Ég hef ekki
gert mikið af því að ferðast utan-
lands en í starfi mínu hef ég farið
mikið um landið. Það er vissulega
ágætt að fara til útlanda ef maður
vill losna alveg við vinnuna og það
hjálpaði mér ágætlega að fara til
Flórída þegar ég hætti í vetur. Hefði
sennilega farið í vinnuna ef ég hefði
verið héma heima! Við reynum að
komast út í Skáleyjar á hverju
sumri. Ég bregð mér þá á lúðu-
veiðar og við njótum eyjalífsins. Og
svo finnst mér gaman að skreppa í
lax í fallegum ám og að sjálfsögðu
að bregða mér á hestbak.“
Við þetta bætist að Leifur á stóra
ijölskyldu Börnin em fimm, fjórar
dætur og einn sonur, og bamaböm-
in orðin tíu. Það er því engin hætta
á að hann verði iðjulaus á næst-
unni. Hann segist vera sáttur við
lífið.
„Ég tel mig hafa verið mjög
heppinn með störf. Þau hafa verið
gefandi og tengst aðaláhugasviði
mínu sem er landbúnaðurinn. í
Stofnlánadeildinni fékk ég líka út-
rás fyrir hagfræðiáhugann sem allt-
af hefur blundað með mér. Ég hef
því aldrei þurft að kvíða því að
mæta til vinnu og þegar öllu er á
botninn hvolft er það kannski það
sem mest er um vert. María, konan
mín, hefur tengst störfum mínum á
margvíslegan hátt, verið nokkurs
konar símaþjónn því að skrifstofa
Búnaðarsambands Snæfellinga var
lengst af í heimahúsi okkar. Því var
oft gestkvæmt á heimilinu og henn-
ar hlutur stór í að taka á móti gest-
um og veita þeim beina og jafnvel
gistingu. Hafi ég orðið til einhvers
gagns þá á hún sinn þátt í því.
Vegna starfa minna var ég oft fjarri
heimilinu og vinnudagurinn langur
og því mæddi uppeldi bamanna og
ýmislegt fleira meira á henni en
mér. þar hef ég staðið mig illa - en
hún vel. Ég á góða fjölskyldu og
við höfum í áranna rás eignast
marga góða vini og kunningja. Það
er mikill auður sem yljar í minning-
unni. Mér finnst ástæða til að nota
tækifærið og þakka öll þau ágætu
samskipti sem við höfum átt við
fjölda fólks vítt og breitt um land-
ið,“ segir Leifur Kr. Jóhannesson
og lætur fara vel um sig í vorsólinni
í Mosfellsbænum.
Þ.H.
FREYR 7/99 - 11