Freyr

Árgangur

Freyr - 15.05.1999, Síða 14

Freyr - 15.05.1999, Síða 14
'0 <r <r <r <f v Tökustaður sýnis 4. mynd. Spírunarhlutfall eftir 20 daga úr pottaathugun, flokkað eftir uppruna sýnanna. og verður túlkun að vera í sam- ræmi við það, en ekki er sjáanlegt að um sé að ræða afgerandi nei- kvæð áhrif frá botnleðjunni. Á vaxtartímanum var gefinn áburður sem nam um 450 kg/ha Græðir 5 (15-15-15). Uppskera var síðan mæld eftir 90 daga frá sáningu. Á 5. mynd má sjá með- aluppskeru á spírað fræ fyrir allar gróðurtegundirnar. Verulegur breytileiki var í uppskerutölum. Ekki var sjáanlegt samhengi milli uppskerumagns og K-gilda eða pH-gilda. Eins og sjá má hefur sáðmoldin í öllum tilvikum vinn- inginn hvað varða uppskerum- agn. Af þeim gögnum sem tiltæk eru er ekki grundvöllur til að draga ákveðnar ályktanir en þeim er hér varpað fram til umhugsun- ar og umræðu og mættu gjarnan leiða til frekari athugana á þess- um vettvangi þar sem ætla má að umrædd atriði hafí nokkuð þungt vægi í ræktunarstarfinu. Dreifing uppgraftar með áburðardreifara Um miðjan desember 1997 voru 1300 metrar af framræslu- skurðum hreinsaðir með skurð- gröfu eins og áður kom fram. Uppgröfturinn var um 1080 m3 og honum var dreift með Kverneland KD búfjáráburðardreifara sem Ingvar Helgason hf. hefur umboð fyrir. Dreifarinn er byggður fyrir að geta unnið með nánast allar | geróir áburðar með breytilegt þurrefnisinnihald. í botni hans er mjög öflugur snigill sem færir áburðinn fram að kasthjóli fremst á dreifaranum, sem þeytir honum til hægri frá dreifaranum. Að- stæður voru fremur erfiðar sökum bleytu á spildunum og á köflum var nokkuð hvassviðri. Vinnan fór þannig fram að skurðgrafan ók eftir skurðbakkanum með hefðbundnum hætti og dráttarvé- lin og dreifarinn gekk við hlið hennar. Hentugast reyndist að dreifarinn væri staðsettur þannig að fremri brún dreifara næmi við fremri brún skurðgröfubeltanna. Grafan skilaði uppgreftinum beint upp í dreifarann, en hann var hafður stöðugt í gangi og tætti niður mold og gróður og þeytti því út til hægri. Af byggingu dreifarans leiðir að bakka varð meðfram sumum skurðum, þar sem dreifarinn getur aðeins dreift til hægri mið- að við akstursstefnu. í 2. töflu koma fram afköstin eins og þau voru í þessari athug- un. Afköst skurðgröfunnar var takmarkandi þáttur í öllum tilvik- um, nema þar sem grafið var beint úr skurðruðningi, en þá reyndist afkastageta dreifarans vera takmarkandi þáttur. Á„. mynd má sjá niðurstöður mælinga á dreifíngu frákastsins frá dreifaranum en þar var magn uppgraftar á lengdarmetra nokk- uð mikið, eða um 973 kg/lengdar- metra. Ennfremur ber að hafa í huga að dreifarinn stendur nokkra metra inn á spildunni. Almennt má segja að dreifarinn reyndist vel við þessa vinnu. Öryggisbolti fyrir snigil brotnaði einu sinni, án þess að á því væri sjáanleg skýr- ing önnur en sú að mikið var í dreifaranum af þungum jarðvegi. Öryggisútbúnaður fyrir kasthjól- ið gaf eftir þegar aðskotahlutur flæktist í það. Tækið stóðst því «o ro a V) ro (0 a a 3 úr botni I úr uppgreftri sáðmold Óblandað Blandað Sáðmold sýni 5. mynd. Uppskera 90 dögum eftir sáningu. 14- FREYR 7/99

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.