Freyr - 15.05.1999, Page 20
Mynd 4. Tilraun nr. 385-74 frá Hvanneyri með dreiflngartíma á kalí, fosfór,
kalsium og magníum í uppskeru 1. sláttar, meðaltal áranna 1975-1980.
eftir lifðu þar 155 grasplöntur á fer-
metra. A reitunum, sem slegið var
8. september, virtust grösin lifa
góðu lífí og þar lifðu„30 plöntur á
fermetra.
Þess má geta að í grein eftir
Magnús Óskarsson og Ríkharð
Brynjólfsson (1999), sem bíður
birtingar, segir frá tveim tilraun-
um frá Hvanneyri með dreifíngar-
tíma fosfórs. í greininni segir:
„Tilraunirnar með dreifingartíma
á þrífosfati benda báðar til þess að
best sé að bera á snemma vors.
Það var 16% og 5% lakari
uppskera að bera á að hausti en
snemma vors og 12% og 7% lak-
ari uppskera að bera á síðla vors
en snemma vors. Vafalítið fara
niðurstöður úr tilraunum með
dreifíngartíma á fosfóráburði mik-
ið eftir því hve mikið er af auð-
nýttum fosfór í jörðu.“
Eins og kemur fram hér á undan
er kalíþörf jarðvegs mikil á Hvann-
eyri og þar reyndist best að bera
kalí á tún í byrjun gróanda. Þetta
kom einnig fram í eldri tilraun, sem
gerð var með kalíþörf túna á
Hvanneyri (Þorsteinn Þorsteinsson
og Magnús Óskarsson, 1963).
Efnagreiningar á grösunum sýndu
neikvæðar víxlverkanir á milli kalís
annars vegar og kalsíum, magnium
og natríum hins vegar, þ.e. að því
meira kalí, sem var hlutfallslega í
uppskerunni, því minna var hlut-
fallslega af hinum efnunum. Þetta
er sama tilhneiging og sjá má á
mynd 4, í þeirri kalítilraun sem hér
er ijallað um.
Hólmgeir Bjömsson (1998) hefúr
skýrt frá tilraunum, þar sem dreif-
ing áburðar seinni hluta sumars eða
að hausti hefúr gefíð góða raun.
Það væri áhugavert að rannsaka
ffekar hvort sú hugmynd er ekki
gagnleg, t.d. fyrir sauðfjárbændur,
sem hafa lítinn tíma til að bera á í
byrjun gróanda og þurfa á grænu
túni að halda snemma vors, fyrir
lambfé. Hólmgeir bendir einnig á
að: „Haustdreifíng hentar .. einkum
til að nýta búfjáráburð, en þó skal
magni hans stillt í hóf.“
Heimildir:
Guðmundur Jónsson, 1979: Skrá um
rannsóknir í landbúnaði. Tilraunaniður-
stöður 1900-1965. Rannsóknastofnun
landbúnaðarins, 428 bls.
Guðni Þorvaldsson, 1998: Áhrif veð-
urþátta á byrjun gróanda og grænku
túna og úthaga. Ráðunautafundur 1998,
bls. 155-163.
Hólmgeir Bjömsson, 1998: Dreifmg-
artími áburðar. Freyr, 94, 6:18 - 22.
Magnús Óskarsson og Ríkharð
Brynjólfsson, 1999: Mismunandi teg-
undir fosfóráburðar og dreifmgartími á
fosfóráburði. Óbirt grein.
Ríkharð Brynjólfsson, 1989: Vor-
verkin. Freyr, 85, 7: 282-283.
Þorsteinn Þorsteinsson og Magnús
Óskarsson, 1963: Áhrif kalíum, magn-
íum og kalsíum í áburði á uppskeru og
steinefnamagn grasa. Árbók landbún-
aðarins 4: 223-237.
Mol i
Bændum í Svíþjóð
fækkar
Á síðasta ári, 1998, fækkaði
sænskum bændum að meðaltali um sjö
á dag. Meira en tíundi hver svínabóndi
hætti á árinu. Byggðum býlum fækkar
jaíht i jaðarbyggðum og miðsvæðis, en
miðsvæðis fækkar þeim þar sem verð á
landi er þar hátt og aðrir bændur vilja
stækka við sig.
(Norsk Landbmk nr. 9/1999).
Altalað á kaffistofunni
Deutz-græn jörð
Eftirfarandi vísa er eftir Hjörleif Hjartarson á Tjörn í
Svarfaðardal, þar sem hann tengir saman fegurð sveitar
sinnar og tækni í landbúnaði.
Þegar drifskafts-gul sól vermir Deutz-grœna jörð
og um dalina fuglarnir sveima,
þegar vorblœrinn andar á Ford-bláan fjórð
hvað er fegurra en sveitin ntin lieinta?
20 - FREYR 7/99