Freyr - 15.05.1999, Qupperneq 35
Endurrœktað lífrœnt tún i Þórisholti í Mýrdal. (Ljósm. Ó.R.D.).
lýsingum, aðstoða við gerð staðla
og útgáfa bóka og tímarita.
Opinber afskipti af lífrænum
landbúnaði heijast um 1980. Þá er
byrjað að leggja skatt á tilbúinn
áburð og kemísk vamarefni til að
draga úr notkun þeirra. Einnig eru
reistar nýjar tilraunastöðvar á
Norðurlöndunum í lífrænum land-
búnaði sem ætlað var að þróa að-
ferðir og skila þekkingu til bænda.
Beinir styrkir til bænda, sem voru
að breyta yfir í lífrænan landbúnað,
komu fyrst til sögunnar á árunum
1987-1992 á Norðurlöndunum, í
Austurríki, Þýskalandi og Sviss.
Ástæður þess að landbúnaðar-
stefna þessara landa var sveigð í átt
að lífrænum landbúnaði vom:
* jákvæð áhrif lífræns landbúnaðar
á umhverfið,
* jákvæð áhrif á byggð í dreifbýli,
* ljölbreytni í atvinnuháttum,
* nýting og varðveisla þekkingar-
arfs bænda,
* auknir tekjumöguleikar fjöl-
skyldubúa, minni vandamál
vegna offramleiðslu landbúnað-
arvara og þar af leiðandi minni
framlög hins opinbera vegna of-
framleiðslu,
* aukin eftirspum almennings eftir
lífrænum landbúnaðarvörum.
Lífræn ræktun á íslandi
Þróunin á Islandi hefst líkt og í
öðmm löndum með starfi áhuga-
fólks.
Sólheimar í Grimsnesi em upp-
hafsstaður lífrænnar ræktunar hér á
landi. Þar hefur verið rekið vist-
heimili frá 1930 og unnið eftir hug-
myndum Rudolf Steiner. Einstakir
bændur hófú að fikra sig áfram með
ræktun og stofnuðu árið 1993 með
sér félag lífrænna bænda; VOR.
Félagið Lífrænt samfélag i Mýrdal
var einnig stofnað 1993.
Bændasamtök Islands sáu þörf á
aukinni ráðgjöf og réðu landsráðu-
naut í lífrænum landbúnaði sem
unnið hefúr brautryðjendastarf um
nokkurra ára skeið.
Hið opinbera hóf afskipti af líf-
rænum landbúnaði árið 1992 með
undirbúningi að setningu laga nr.
162 árið 1994 og reglugerðar nr. 219
árið 1995 um kröfúr sem gerðar em
til viðurkenndra lífrænna fram-
leiðsluhátta. Þessi reglugerð byggir
á grunnreglum frá IFOAM en er
sniðin að íslenskum aðstæðum.
Ríkið hefur einnig veitt nokkrum
fjármunum til átaksverkefna á sviði
markaðsmála, rannsókna og fram-
leiðslu landbúnaðarafurða.
Fagráð í lífrænum landbúnaði var
stofnað árið 1997 og er það skipað
fulltrúum bænda, rannsóknarstofn-
ana, menntastofúana og stjórnsýslu.
Hlutverk fagráðs er að vera vett-
vangur fyrir faglega umræðu og
samræmingu á sviði fræðslu, leið-
beininga og rannsókna í þágu líf-
ræns búskapar.
Árið 1998 var bændum gert
kleift að sækja um styrki til að fara
yfir í lífræna sauðijárrækt til út-
flutnings á dilkakjöti.
Samkvæmt búnaðarlögum em nú
einnig veittir styrkir til endurrækt-
unar lands sem ætlað er til lífrænn-
ar ræktunar svo og til ræktunar í
gróðurhúsum.
Hér á landi vom árið 1998 um 30
framleiðendur á lífrænum vörum
og„ fyrirtæki vottuð til meðhöndl-
unar á lífrænu hráefni.
Rannsóknir og menntun í lífræn-
um landbúnað em einnig í þróun
hér á landi og fara fram á Bænda-
skólanum á Hvanneyri, Rann-
sóknastofnun landbúnaðarins og í
Garðyrkjuskóla ríkisins á Reykjum.
Á Bændaskólanum á Hvanneyri
hefur verið kennsla í lífrænum
landbúnaði frá 1995 og er aukinn
áhugi og eftirspum effir slíku námi.
Þessar stofnanir hafa starfað með
bændum að rannsóknum og þróun og
stefúa að frekara samstarfi með þeim.
Heimildir.
Conford Philip. 1998. Background to
the organic farming movement. Fyrir-
lestra við Landbúnaðrháskólann í Wag-
eningen Hollandi.
Goewie E.A. 1997.Introduction to
ecological agriculture and designing
methodologies for prototyping ecologi-
cal production systems. 16-35. Wagen-
ingen. Agricultural University of Wa-
geningegn.
Granstedt Arthur. 1998.Byodinamisk
odling. Ekologisk Lantbmk.92-96. Nat-
ur och kultur LTS Forlag. Falköping.
Lampkin Nic.1998. Policy framwork
for the development of ecological agri-
culture in Europe. Fyrirlestrar við
Landbúnaðarháskólann í Wageningen.
Niggli Urs, Lockeretz William.
1996. Development of research in org-
anic agriculture. Fundamentals of org-
anic agriculture, 11 th IFOAM intema-
tional scientific conference.9-23.
IFOAM Ökozentrum Imsbach D-
66636 Tholey-Theley.
Ólafur Dýrmundsson. 1999. Lífræn
ræktun búskapur í sátt við náttúruna.
Fyrirlestur í líffræðifélagi Islands.
Reykjavík . Bændasamtök Islands.
FREYR 7/99 - 35