Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 15.05.1999, Qupperneq 36

Freyr - 15.05.1999, Qupperneq 36
Sjálfbær nýting lífræns úrgangs frá matvæla- fyrirtækjum til áburðargerðar Inngangur Lífrænn búskapur hefur rutt sér til rúms hér á landi á undanfornum árum. A Búnaðarþingi 1999 var samþykkt ályktun þar sem lýst var yfir stuðningu við lífrænan bú- skap. Hreinleiki lands, lítil notkun lyfja, hófleg notkun tilbúins áburðar og næg ómenguð beiti- lönd gera Island sérlega ákjósan- legt til lífræns búskapar. Tölu- verður og vaxandi markaður er fyrir þessar afurðir bæði hérlendis og erlendis. Það sem hefur m.a. staðið þess- um búskaparháttum fyrir þrifum er skortur á góðum lífrænum áburði. Óheimilt er að nota til- búinn áburð í lífrænni ræktun. Húsdýraáburður er góður, svo langt sem hann nær, en meira þarf til. Reynt hefur verið að notast við aðra áburðargjafa, s.s. fískimjöl, slóg og þangmjöl, en kostnaður er oftast of mikill. Á íslandi fellur til mikið magn lífræns efnis sem er ýmist leitt með frárennsli beint til sjávar eða urðað sem sorp. Hér er m.a. átt við lífrænan úrgang frá heimilum og fyrirtækjum, frárennsli frá fisk- vinnslustöðvum, sláturhúsum og mjólkurbúum. Áætlað hefur verið að um 10.000 tonn á ári af lífrænu efni fari með fráveituvatni fisk- vinnslunnar til sjávar og sláturúr- gangur er talinn nema alls um 1200 tonnum á ári. Mikinn hluta þessa lífræna verðmætis er hægt að flokka eða hreinsa þannig að nýta megi það til verðmætasköp- unar sem lið í sjálfbærri þróun. Bændur í lífrænni ræktun ættu því ekki að þurfa að örvænta um fram- tíð sína í greininni því að af nógu eftir Gunnar Hjartarson umhverfis- verkfræðing hjá Almennu verkfræði- stofunni hf. lífrænu efni er að taka. í þessari grein er leitast við að varpa ljósi á þá möguleika sem bændur með lífrænan búskap eiga á að nálgast lífrænan áburð. Útreikningar og tölur í þessari grein eru byggðar á ýmsum meðaltölum og ber að hafa það í huga. Vandi sveitarfélaga Mengunarvamareglugerð nr. 48 frá 1994 kveður á um að bæjarfé- lög skuli hreinsa frárennsli sitt fyrir lok ársins 2005. Stefnan hingað til hefur verið sú að byggja eina hreinsistöð fyrir hvert bæjar- félag þar sem hreinsað er bæði frárennsli frá íbúum og matvæla- iðnaði. Kostnaður við skólp- hreinsun er mikill og ofviða mörg- um sveitarfélögum og af þeim sökum hafa sveitarfélög „dregið lappirnar“ í máli þessu. Svo virð- ist sem það vanti frekari stefnu- mörkun sveitarfélaga um hreinsun frárennslis frá þeim. Matvælaiðnaðurinn er oftast mesti mengunarvaldurinn í minni bæjarfélögum varðandi losun líf- ræns efnis og því ljóst að þessi fyrirtæki verða að taka þátt í kostnaði við fráveituhreinsun við- komandi sveitarfélags ef um sam- eiginlega hreinsun er að ræða. Önnur og betri leið er fær til að uppfylla kröfur mengunarvarna- reglugerðar, sem jafnframt er hag- stæðari bæði fyrir sveitarfélög og matvælafyrirtæki, auk þess að vera mun vistvænni. Hér er átt við aðskilda hreinsun frárennslis frá íbúðabyggð og matvælafyrirtækj- um. Einn af ókostum við sameigin- lega hreinsun írá byggðarlagi er sá að þar verður til botnfall sem inni- heldur bakteríur með sýkingar- hættu. Ef nota á þetta botnfall sem áburð er nauðsynlegt að með- höndla hana sérstakleg. Hætta er á að þetta muni valda því að stór hluti hennar verði urðaður. Auk þess mun stór hluti lífræns efnis frá fískvinnslum enn fara í sjóinn vegna þess hve hreinsikröfur eru enn vægar. Ef aftur á móti fráveituvatn frá matvælafyrirtækjum er aðskilið fráveituvatni frá íbúðabyggð er mögulegt að vinna stærstan hluta þess lífræna efnis sem annars færi í hafíð eða blandaðist íbúðaskólpi. Þetta er gert með því að setja upp hreinsistöðvar við matvælafyrir- tækin þar sem lífræn efni eru hreinsuð úr vatninu en því má síð- an veita beint í viðtaka um stutta útrás. Ein af forsendum fyrir þessu er að frárennsli frá salemum í matvælafyrirtækjum sé aðskilið öðru skólpi. Almenna verkfræðistofan hefur reiknað út að sveitarfélag getur sparað allt að 30% af kostnaði við fráveituhreinsun ef fráveituvatn frá iðnfyrirtækjum er aðskilið íbúðaskólpi en rekstrarkostnaður minnkar einnig verulega. Hag- 36 - FREYR 7/99

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.