Freyr - 01.09.2001, Blaðsíða 22
fjárbænda 2001 beinir til yfirdýra-
læknis að sjá til þess að gama- og
heilasýni séu tekin í sláturhúsum af
samviskusemi og þess gætt að ekki
ruglist milli bæja og héraða. Jafn-
framt skorar fundurinn á landbún-
aðarráðherra að sjá til þess að nægt
fjármagn fáist til rannsókna á heila-
sýnum vegna riðuveiki.
Greinargerð:
Það er vitað að í sumum húsum
em sýni ekki alltaf tekin og meiri
aðgát þarf að hafa þegar slátrað er
af stærri svæðum."
Reglugerð nr. 529/2000
verði breytt
„Aðalfundur Landssamtaka
sauðfjárbænda 2001 lýsir vanþókn-
un sinni á ákvæðum reglugerðar
nr. 539/2000 um heimildir dýra-
lækna til að ávísa lyfjum og skorar
á heilbrigðis- og tryggingaráðherra
að taka hana til endurskoðunar. Það
sem kemur fjárbændum einkum illa
eru ákvæði um sýklalyf, svampa til
samstillingar gangmála, garna-
veikibólusetningu og fleira mætti
MoU
Molar um sojabaunir
Sojabaunir eru mikilvægasti
próteingjafi og útbreiddasta
belgjurt í heimi. Baunirnar
innihalda 37-46% prótein, um
24% kolvetni og 31% fitu, sem
er nálægt því að vera jafnmikið
prótein og í kjöti.
Stærstu framleiðslulöndin em
Bandaríkin, Brasilía, Argentína
og Kfna og mesta ársframleiðsla
á sojabaunum var uppskeruárið
1999/2000 eða rúmlega 150
milljón tonn. Það er meira en
helmingur heimsframleiðslu á
olíufræi. I Evrópu er samdráttur
í ræktun olíufræs og nemur sú
ræktun þar aðeins um 5% af
heimsframleiðslunni.
(Landsbladel/Bondebladet
nr. 25-26/2001).
telja. Þetta hefur í för með sér mikil
óþægindi og gífurlegan kostnaðar-
auka. Ekki hefur verið sýnt fram á
að þessir hlutir hafi verið í slæpiu
ástandi á sauðfjárbúum.
Þá vill fundurinn skora á yftrdýra-
lækni og héraðsdýralækna að standa
fyrir átaki í fræðslu varðandi lyf,
sjúkdóma, greiningu þeirra og með-
höndlun, fundurinn telur það mun
árangursríkara en boð og bönn.“
LS fái fastan dálk
í Bændablaðinu.
„Aðalfundur Landssamtaka sauð-
fjárbænda 2001 beinir því til stjóm-
ar LS að LS fái fastan dálk á síðum
Bændablaðsins.21
Fjármunir til styrktar sauð-
fjárbúskap á jaðarsvæðum
„Aðalfundur Landssamtaka sauð-
fjárbænda 2001 beinir því til land-
búnaðarráðherra að hraðað verði út-
hlutun á þeim fjármunum sem em
ígildi 7.500 ærgilda og verja á til
styrktar sauðfjárbúskap á jaðar-
svæðum. Aðalfundurinn væntir
þess að úthlutunarreglumar verði
þannig úr garði gerðar að stuðning-
urinn nái tilgangi sínum.“
Fyrirkomulag afurðalána
til sauðfjárræktar
verði endurskoðað
„Aðalfundur Landssamtaka sauð-
fjárbænda 2001 skorar á stjóm LS
að taka höndum saman við samtök
sláturleyfishafa og beita sér fyrir að
afurðalánum verði komið í viðun-
andi horf.
Greinargerð:
Fundurinn bendir á að þegar af-
urðalánum var breytt í núverandi
horf var það að ósk bankanna að
taka yfir afurðalánin til að lækka
bindiskyldu í Seðlabankanum. Síð-
an hefur þróunin orðið sú að bankar
hafa ekki staðið sig gagnvart af-
urðastöðvunum og ekki haft áhuga
á lánafyrirgreiðslu til þeirra.“
Viðmiðunarverð á dilkakjöti
„Aðalfundur Landssamtaka sauð-
fjárbænda 2001 samþykkir að við-
miðunarverð Landssamtaka sauð-
fjárbænda á dilkakjöti verði hækkað
um 10%. Þetta yrði lágmarksverð
sem gilti í fjórar vikur um miðbik
sláturtíðar. Stjórn Landssamtaka
sauðfjárbænda er falið að gefa út
töflu um álagsgreiðslur sem giltu
utan þessa tíma. Ný verðskrá taki
gildi l.júlí"
Sala á gærum
„Aðajfundur Landssamtaka sauð-
fjárbænda 2001 beinir því til stjóm-
ar LS að beita sér fyrir að gæmr
verði seldar á þann markað sem best
býður hverju sinni og að bændum
verði greitt skv. þunga hverrar gæm
en ekki stykkjaverð eins og nú er.“
Framkvæmd gæðastýringar
„Aðalfundur Landssamtaka sauð-
fjárbænda 2001 ályktar að beina því
til starfshóps um gæðastýringu að
áfram verði leitað eftir athugunum
meðal bænda um framkvæmd
gæðastýringar. Fundurinn beinir því
til fagráðs í sauðfjárrækt að gera til-
lögu að nýjum samþykktum fyrir
fjárræktarfélögin, þar sem m.a.
verði gert ráð fyrir hópstarfi vegna
gæðastýringar.“
Númer sláturfjár komi
fram á vigtarseðli
„Aðalfundur Landssamtaka sauð-
fjárbænda 2001 beinir því til slátur-
leyfishafa að koma upp lyklaborði
svo hægt sé að skrá númer sláturfjár
við slátrun þannig að númerin komi
fram á vigtarseðli.“
Fjármagn til ræktunar-,
rannsókna- og kynbótastarfa
„Aðalfundur Landssamtaka
sauðfjárbænda 2001 beinir því til
stjómar L.S. og Bændasamtaka ís-
lands að tryggt verði fjármagn til
alhliða ræktunar-, rannsókna-, og
kynbótastarfa í sauðfjárrækt. Hér er
t.d verið að hugsa um stór verkefni
sem eru í vinnslu; til að mynda nýtt
kynbótamats- og skýrsluhaldskerfi
og rannsóknastarfsemi á Hestbú-
inu.“
22 - FR6VR 10/2001