Freyr

Árgangur

Freyr - 01.09.2001, Blaðsíða 24

Freyr - 01.09.2001, Blaðsíða 24
Dagar frá 1. nóvember 1. mynd. Dreifing gangmála í viðmiðunarhópnum (hópi 3) á Hesti. flýta fengitímanum. Hérlendis hafa progestagen-svampar verið notaðir til að samstilla gangmál. Pro- gestagen er tilbúið efni sem hefur virkni progesteróns og stillir gang- ferilinn. Þessir svampar gefa mjög góðan árangur í samstillingu, þar sem yfir 95% ánna verða blæsma við meðferðina (Gordon, 1997; Ólafur R. Dýrmundsson, 1977). Framkvæmd Hvíti erfðavísirinn Úr hjörðinni í Hallkelsstaðahlíð voru valdar 150 ær, 75 hvítar og 75 mislitar. Þrír aldurshópar voru í at- huguninni, 2ja, 3ja og 4ra vetra og hlutföll aldurshópanna voru þau sömu í hvíta og mislita hópnum. Æmar voru teknar á hús í lok október og rúnar 27.-29. okt. Leit- að var frá 2. nóvember til 6. desem- ber en þá voru allar æmar, utan tvær, gengnar. Notaðir vom tveir ófrjóir leitarhrútar og voru þeir látnir ganga með ánum allan tím- ann. Hrútamir voru með krítarbelti og vaxlit en með honum merktu þeir æmar sem þeir stukku á. Nán- ari lýsingu á þessum búnaði er að fínna hjá Ólafi R. Dýrmundssyni (1979b). Anum var ekki haldið á tilraunatímanum. Áhrif samstillingarsvampa á upphaf gangmála A Tilraunabúinu á Hesti voru notaðir Veramix-svampar (Upjohn) sem mest hafa verið notaðir hér- lendis. Sótthreinsandi krem var sett á svampana fyrir ísetningu, til að koma í veg fyrir sýkingu. Ærnar á Hesti vom reknar inn 15. október til að skipa í tilraunahóp- ana. Valdar voru 180 hvítar ær, 2ja, 3ja og 4ra vetra og þeim skipt af handahófi í þrjá hópa, þó þannig að aldursdreifingin væri sú sama í öll- um hópunum. Svampar voru settir í fyrsta hópinn 16. október. Fénu var svo sleppt út á tún en tilrauna- æmar voru teknar á hús 31. októ- ber. Þá voru svamparnir fjarlægðir úr hópi 1. Hinn 3. nóvember voru svampar settir í hóp 2 og teknir úr 17. nóvember. Hópur 3 var við- miðunarhópur, fékk ekki svampa en að öðm leyti sömu meðferð. Æmar voru allar rúnar 3. nóvem- ber. Byrjað var að leita í hópum 1 og 3 strax 2. nóvember en í hóp 2 hinn 19. nóvember. Leitað var í öllum hópunum tvisvar á dag til 6. desem- ber en eftir það var leitað í þeim ám sem þá áttu eftir að ganga. Notaðir vom tveir ófrjóir forystuhrútar með vaxlitabelti, sams konar og notað var í Hallkelsstaðahlíð. Anum var ekki haldið á tilraunatímanum. Fanghlutfall ogfrjósemi Á Kjarlaksvöllum voru valdar 100 ær á aldrinum 2ja til 7 vetra og þeim skipt í tvo hópa með sömu aldursdreifingu og sömu meðalfrjó- semi. Svampar voru settir í annan hópinn þann 2. nóvember en æmar vom síðan úti fram að rúningi 10. - 13. nóvember. Svampamir voru teknir úr 17. nóvember og ánum haldið 19.-21. nóvember. I hinum hópnum var ánum haldið eftir því sem þær gengu í desember og fengu flestar á tímabilinu 17. - 30. des. Fylgst var með fóðmn og þrif- um ánna um veturinn, frjósemi og afkomu lamba um vorið og loks heildarafurðum hópanna. Allar ær voru á húsi fram yfir burð. Lömb- um undan ám í hópnum, sem bar snemma, var flestum slátrað fyrri hluta ágúst en lömbum undan ám í samanburðarhópnum var slátrað í þrennu lagi í september, október og nóvember. Tilraunin á Kjarlaksvöllum var gerð ári síðar en á Hesti og var tek- ið tillit til reynslunnar þaðan við framkvæmdina. Niðurstöður Upphaf gangmála, hvíti erfðavísirinn Fyrsta gangmál var að meðaltali 21. nóv. (6. nóv. - 2. des.) hjá hvítu ánum, en 23. nóv. (9. nóv. - 5. des.) hjá þeim mislitu. Þessi munur var tölfræðilega marktækur en svo óverulegur að hann hefur ekki hag- nýtt gildi. Enginn munur reyndist 24 - FR€VR 10/2001
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.