Freyr

Árgangur

Freyr - 01.09.2001, Blaðsíða 41

Freyr - 01.09.2001, Blaðsíða 41
hjálpartæki fyrir framleiðendur til þess að ná betri árangri í rekstri sín- um. Gæðahandbók sauðfjárbænda inniheldur eftirtalda þætti: Grunnupplýsingar. Þessi þáttur felur í sér að ákveðn- um staðreyndum um reksturinn er safnað saman og þær geymdar á einum stað. Staðsetning þessara gagna er fremst í gæðahandbókinni. Tilgangur þessa í gæðakerfmu er sá að á einum stað séu aðgengilegar allar helstu grunnupplýsingar um reksturinn og umhverfi hans. Með því að líta yfir grunnupplýsingamar er þannig auðvelt að átta sig á skráningum á hinum og þessum hlutum í gæðakerfið. Hluti af vott- unarupplýsingum eru upplýsingar um aðbúnað og aðstæður og þær upplýsingar verða því unnar að hluta upp úr þessum þætti. Atburðaskráning. Byggt upp eins og útdráttur úr dagbók. Varpar ljósi á tímasetning- ar á hinum og þessum búsverkum. Nokkurs konar yfirlitsblað um reksturinn og gagnast sem slíkt. Sauðfjárskýrsluhald. Markvisst kynbótastarf eykur tekj- ur búsins líklega meira en nokkuð annað. Skýrsluhaldið tryggir einnig rekjanleika afurðanna en það er lykilatriði í gæðastýringunni og grunnur að flestum skráningum í gæðakerfinu. Einstakl- ingsmerkingar em forsenda rekj- anleikans sem og kynbótastarfsins. Landnýting og beitarskráning. Grunnskilyrðið er að beitiland sé í ásættanlegu ástandi og í jafnvægi eða framför. Skráning á beit hefur því þann tilgang að bera beitarálag saman við breytingar á ástandi lands og að sjálfsögðu að hámarka afurðasemi með beitarstýringu þannig að beitiland standi undir þeirri framleiðslu sem því er ætluð. Þessi þáttur gæðastýringarinnar er einnig talinn vera mikilvægur gagnvart markaðssetningu afurð- anna á innanlandsmarkaði. Jarðrœkt. Skjalfesting jarðræktampplýsinga hefur það að meginmarkmiði að halda utan um upplýsingar um fóð- uröflun búsins, bæði faglega og í hagkvæmnisskyni. Ekki em gerðar sérstakar kröfur um magn áburðar- efna, heldur reiknað með að skrán- ingar upplýsinga og notkun þeirra leiði til skynsamlegrar nýtingar áburðarefna. Uppskera. Skráning þessara upplýsinga er eðlilegt framhald af skráningu á jarðræktarupplýsingum og úr- vinnsla á skráningum þessara tveggja þátta er oftast samtengd. Þannig segir það bóndanum mun meira um hagkvæmni heyöflunar- innar að vita um áburðarkostnað á hvert tonn af heyi heldur en á hvem hektara. Þær upplýsingar, sem hér er safnað, nýtast einnig vegna forðagæslu. Fóðrun. Þessi þáttur felur í sér skjalfest- ingu á fóðran fjárins. Skráningarn- ar miðast við magn fóðurs og einn- ig næringargildi að því marki sem það er þekkt. Meðferð og aðbúnaður. Þessi hluti gæðastýringarinnar innifelur ekki reglulega skráningu en felur í sér gátlista sem ætlað er að auðvelda mönnum yfirsýn yfir helstu kröfur varðandi meðferð og aðbúnað í lögum og reglugerðum og hvemig þeim sé fullnægt. Lyfjanotkun. Lyfjanotkun skal skráð nákvæm- lega og em kröfumar þær að unnt sé að rekja alla lyfjanotkun á ein- staklinga í hjörðinni. Það eru ekki fleiri þættir í hand- bókinni sem krefjast skráninga á upplýsingum en hún inniheldur þó meira efni. Reglur um eftirlit og vottun. Þær eiga að innihalda allar upp- lýsingar um það til hvers er ætlast og hvemig verður litið eftir því að því sé framfylgt. Einnig upplýs- ingar um það hvað gerist ef brota- löm er í notkun kerfisins. Með eft- irliti er átt við að könnuð er rétt notkun gæðahandbókar. Eftirlit í gæðastýringu tekur ekki yfir annað lögbundið eftirlit með búrekstrin- um, enda væri það tvíverknaður, en lítur eftir því hvort athugasemdir hafi komið fram. Þessi kafli inni- felur einnig upplýsingar um það hvemig verður staðið að vottun bú- greinarinnar og hvemig þær upp- lýsingar, sem fram koma í vottun- inni, verða notaðar. Rekstur sauðfjárbúsins. Kafli fyrir alls kyns fróðleik um fjármálahlið rekstrar búsins. Ætlað fyrir fræðsluefni og fleira að vild hvers og eins. Hópstarf. Einn af mikilvægu þáttunum í að ná árangri í rekstri er samanburður og samvinna. í tengslum við gæða- stýringuna er reiknað með að myndaðir verði hópar sem ætlað er að vinna að hvers kyns framfömm í rekstrinum. Hugmyndin er sú að fjárræktarfélögin verði virkjuð sér- staklega til þessa starfs. Lög og reglugerðir. Gæðahandbókin inniheldur helstu lög og reglugerðir viðkom- andi búrekstrinum. Þátttöku í gæðastýringunni fylgir yfirlýsing um að fara að þeim lögum og regl- um, sem um starfsemina gilda, og það var talið nokkuð hagræði af því að gera ráð fyrir staðsetningu þeirra í gæðahandbókinni. Þegar þetta er ritað hefur megin- þorri sauðfjárbænda sótt eins dags námskeið í gæðastýringu, fengið afhenta gæðahandbók og margir hverjir eru byrjaðir að nota hana að einhverju leyti. Nú í haust verður lokið við þá þætti gæðahandbókar- pR€VR 10/2001 - 41
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.