Freyr

Árgangur

Freyr - 01.09.2001, Blaðsíða 27

Freyr - 01.09.2001, Blaðsíða 27
gengu upp 13-18 dögum síðar sem er innan eðlilegra marka og virðist svampasamstillingin því hafa heppnast vel. Beiðsliseinkenni voru mjög greinileg hjá langflest- um ánum og og má því ætla að egg- losið hafi verið eðlilegt enda bendir tíminn til næsta beiðslis einnig til þess. Niðurstöðumar frá Kjarlaks- völlum staðfestu þetta en þar var samstilling tímasett í samræmi við reynsluna á Hesti árið áður. Árangurinn af ísetningu svampa hinn 16. október (hópur 1) var ekki eins góður og má ætla að kynstarf- semi þessa hóps hafi ekki verið komin nægilega vel af stað til þess að þær tækju við sér. Þó er aug- ljóst að svampamir hafa hreyft við ánum og virðast hafa komið af stað dulbeiðslum, þar sem nokkur hluti ánna sýndi engin einkenni fyrr en á þriðja gangmáli frá því að svamp- amir vom teknir úr. Breytileiki í lengd gangferla hjá þeim ám sem fyrst gengu var nokkuð mikill, 14- 23 dagar. Þær sem ekki sýndu ein- kenni fyrr en í kringum 20. nóvem- ber, næsta gangmál á eftir, höfðu mun minni breytileika í lengd gangferla, eða 15-18 daga. Þetta bendir til að áhrifin sem æmar urðu fyrir hafi ekki verið nógu sterk til að framkalla fullkomið beiðsli strax eftir að svampamir vom tekn- ir úr. Mögulega er sá góði árangur, sem fékkst af ísetningu svampa í byrjun nóvember, ekki einvörð- ungu svömpunum að þakka og því umhugsunarefni hvort ekki sé hægt að flýta fengitímanum með því að samstilla æmar um leið og þær eru teknar á hús og rúnar. Niðurstöð- umar benda til þess að svampa- meðferð ein sér, um miðjan októ- ber, sé ekki nothæf en ef til vill mætti ná betri árangri með fleiri að- gerðum samtímis á þessum tíma eða jafnvel fyrr. Mögulegt er að snöggar breytingar, til dæmis snemma í október, geti hrint af stað egglosi og þannig væri hægt að fá nokkuð samstillt gangmál í byrjun nóvember. Aðgerðir, sem beita mætti samhliða svampanotkun, eru rúningur, hýsing og hrútaáhrif. Hugsanlega geta allar þessar að- ferðir lagst á eitt með að framkalla beiðsli, jafnvel í október. Gerð var tilraun til að meta hag- kvæmni þess að flýta sauðburði og slátra að sumri í samanburði við hefðbundinn sauðburð og slátrun, út frá niðurstöðunum á Kjarlaks- völlum. Þetta mat var miðað við verðlagningu afurða sem var í gildi þegar athugunin var gerð. Niður- staðan varð sú að sumarslátrunin skilaði ívið meiri tekjum af hverju lambi en haustslátrunin, eftir að kostnaður hafði verið dreginn frá, þrátt fyrir að lömbin sem slátrað var í ágúst skiluðu að jafnaði 1,7 kg léttara falli. Þama munar mest um álagsgreiðslur á sumarslátrun, bæði frá sláturhúsi og frá Markaðsráði, og niðurfellingu útflutningsskyldu á sumarslátrun. Kostnaður við flýt- ingu fengitíma og burðartíma var aðallega fólginn í aukinni vinnu á sauðburði og kaupum á svömpum til samstillingar. I sumum tilfellum getur hins vegar verið æskilegt að dreifa vinnuálaginu á sauðburði með því að dreifa burðartímanum og því ekki einhlítt að meta vinnu við flýtingu sauðburðar að öllu leyti sem kostnaðarauka. Ekki er ráðlegt að alhæfa um hagkvæmni þessa fyrirkomulags út frá einni athugun. Niðurstöður eru mjög háðar búskaparaðstæðum á hverju búi, þ.ám. landgæðum, hús- rými fyrir lambfé á sauðburði og mannafla til að sinna aukinni vinnu á sauðburði. Almennt má telja að flýting sauðburðar sé vænlegust til árangurs þar sem jafnan vorar snemma, þannig að gjafatími verið ekki alltof langur að vori. Loks hefur markaðsumhverfið afgerandi áhrif á niðurstöðuna, þ.e. álags- greiðslur á slátrun utan hefðbund- innar sláturtíðar og reglur um út- flutningshlutfall. Verkefnin í heild tókust vel og niðurstöður athugunana eru skýrar. Hvíti erfðavísirinn hefur einhver áhrif á upphaf fengitíma en þau áhrif eru óveruleg og varla til hag- nýtingar. Með notkun hormóna- svampa er hægt að flýta upphafi fengitíma nokkuð og full ástæða er að kanna betur hvort aðrar aðgerðir samhliða geti flýtt fengitímanum enn frekar. Flýting fengitíma með samstillingu í byrjun nóvember hefur ekki áhrif á fanghlutfall og frjósemi. Við góðar aðstæður getur flýting sauðburðar og sumarslátrun verið hagkvæmur kostur og skilað sambærilegum tekjum og hefð- bundin framleiðsla. Þakkarorð Heimilisfólki í Hallkelsstaðahlíð og á Kjarlaksvöllum eru færðar al- úðarþakkir fyrir að veita aðgang að fjárbúum sínum og margvíslega veitta aðstoð við verkefnin. Sig- valda Jónssyni, bústjóra á Hesti, eru færðar bestu þakkir fyrir aðstoð við framkvæmd og skráningu. Framleiðnisjóður styrkti verkefnin og er það þakkað. Helstu heimildir Ásta F. Flosadóttir, 1999. Áhrif pro- gestagensvampa og hvíta erfðavísisins á upphaf gangmála áa að hausti. Aðal- ritgerð við Búvísindadeild Bændaskól- ans á Hvanneyri. Gordon, I., 1997. Controlled Repro- duction in Sheep and Goats. CAB in- ternational, Wallingford, UK. xxiv+450 s. Jón Eldon, 1993. Effect of exo- genous melatonin and exposure to a ram on the time of onset and duration of the breeding season in Icelandic sheep. Journal of Reproduction and Fertility 99: 1-6. Kristján Jónsson, 2001. Framleiðsla lamba til sumarslátrunar. Aðalritgerð við Búvísindadeild Landbúnaðarhá- skólans á Hvanneyri: O’Callaghan, D., A. Donovan, S. J. Sunderland, M. P. Boland og J. F. Roche, 1994. Effect of the presence of male and female flockmates on repro- ductive activity in ewes. Joumal of Re- production and Fertility 100: 497-503. Ólafur R. Dýrmundsson, 1977. Synchronization of oestrus in Iceland FR6VR 10/2001 -27
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.