Freyr

Årgang

Freyr - 01.09.2001, Side 22

Freyr - 01.09.2001, Side 22
fjárbænda 2001 beinir til yfirdýra- læknis að sjá til þess að gama- og heilasýni séu tekin í sláturhúsum af samviskusemi og þess gætt að ekki ruglist milli bæja og héraða. Jafn- framt skorar fundurinn á landbún- aðarráðherra að sjá til þess að nægt fjármagn fáist til rannsókna á heila- sýnum vegna riðuveiki. Greinargerð: Það er vitað að í sumum húsum em sýni ekki alltaf tekin og meiri aðgát þarf að hafa þegar slátrað er af stærri svæðum." Reglugerð nr. 529/2000 verði breytt „Aðalfundur Landssamtaka sauðfjárbænda 2001 lýsir vanþókn- un sinni á ákvæðum reglugerðar nr. 539/2000 um heimildir dýra- lækna til að ávísa lyfjum og skorar á heilbrigðis- og tryggingaráðherra að taka hana til endurskoðunar. Það sem kemur fjárbændum einkum illa eru ákvæði um sýklalyf, svampa til samstillingar gangmála, garna- veikibólusetningu og fleira mætti MoU Molar um sojabaunir Sojabaunir eru mikilvægasti próteingjafi og útbreiddasta belgjurt í heimi. Baunirnar innihalda 37-46% prótein, um 24% kolvetni og 31% fitu, sem er nálægt því að vera jafnmikið prótein og í kjöti. Stærstu framleiðslulöndin em Bandaríkin, Brasilía, Argentína og Kfna og mesta ársframleiðsla á sojabaunum var uppskeruárið 1999/2000 eða rúmlega 150 milljón tonn. Það er meira en helmingur heimsframleiðslu á olíufræi. I Evrópu er samdráttur í ræktun olíufræs og nemur sú ræktun þar aðeins um 5% af heimsframleiðslunni. (Landsbladel/Bondebladet nr. 25-26/2001). telja. Þetta hefur í för með sér mikil óþægindi og gífurlegan kostnaðar- auka. Ekki hefur verið sýnt fram á að þessir hlutir hafi verið í slæpiu ástandi á sauðfjárbúum. Þá vill fundurinn skora á yftrdýra- lækni og héraðsdýralækna að standa fyrir átaki í fræðslu varðandi lyf, sjúkdóma, greiningu þeirra og með- höndlun, fundurinn telur það mun árangursríkara en boð og bönn.“ LS fái fastan dálk í Bændablaðinu. „Aðalfundur Landssamtaka sauð- fjárbænda 2001 beinir því til stjóm- ar LS að LS fái fastan dálk á síðum Bændablaðsins.21 Fjármunir til styrktar sauð- fjárbúskap á jaðarsvæðum „Aðalfundur Landssamtaka sauð- fjárbænda 2001 beinir því til land- búnaðarráðherra að hraðað verði út- hlutun á þeim fjármunum sem em ígildi 7.500 ærgilda og verja á til styrktar sauðfjárbúskap á jaðar- svæðum. Aðalfundurinn væntir þess að úthlutunarreglumar verði þannig úr garði gerðar að stuðning- urinn nái tilgangi sínum.“ Fyrirkomulag afurðalána til sauðfjárræktar verði endurskoðað „Aðalfundur Landssamtaka sauð- fjárbænda 2001 skorar á stjóm LS að taka höndum saman við samtök sláturleyfishafa og beita sér fyrir að afurðalánum verði komið í viðun- andi horf. Greinargerð: Fundurinn bendir á að þegar af- urðalánum var breytt í núverandi horf var það að ósk bankanna að taka yfir afurðalánin til að lækka bindiskyldu í Seðlabankanum. Síð- an hefur þróunin orðið sú að bankar hafa ekki staðið sig gagnvart af- urðastöðvunum og ekki haft áhuga á lánafyrirgreiðslu til þeirra.“ Viðmiðunarverð á dilkakjöti „Aðalfundur Landssamtaka sauð- fjárbænda 2001 samþykkir að við- miðunarverð Landssamtaka sauð- fjárbænda á dilkakjöti verði hækkað um 10%. Þetta yrði lágmarksverð sem gilti í fjórar vikur um miðbik sláturtíðar. Stjórn Landssamtaka sauðfjárbænda er falið að gefa út töflu um álagsgreiðslur sem giltu utan þessa tíma. Ný verðskrá taki gildi l.júlí" Sala á gærum „Aðajfundur Landssamtaka sauð- fjárbænda 2001 beinir því til stjóm- ar LS að beita sér fyrir að gæmr verði seldar á þann markað sem best býður hverju sinni og að bændum verði greitt skv. þunga hverrar gæm en ekki stykkjaverð eins og nú er.“ Framkvæmd gæðastýringar „Aðalfundur Landssamtaka sauð- fjárbænda 2001 ályktar að beina því til starfshóps um gæðastýringu að áfram verði leitað eftir athugunum meðal bænda um framkvæmd gæðastýringar. Fundurinn beinir því til fagráðs í sauðfjárrækt að gera til- lögu að nýjum samþykktum fyrir fjárræktarfélögin, þar sem m.a. verði gert ráð fyrir hópstarfi vegna gæðastýringar.“ Númer sláturfjár komi fram á vigtarseðli „Aðalfundur Landssamtaka sauð- fjárbænda 2001 beinir því til slátur- leyfishafa að koma upp lyklaborði svo hægt sé að skrá númer sláturfjár við slátrun þannig að númerin komi fram á vigtarseðli.“ Fjármagn til ræktunar-, rannsókna- og kynbótastarfa „Aðalfundur Landssamtaka sauðfjárbænda 2001 beinir því til stjómar L.S. og Bændasamtaka ís- lands að tryggt verði fjármagn til alhliða ræktunar-, rannsókna-, og kynbótastarfa í sauðfjárrækt. Hér er t.d verið að hugsa um stór verkefni sem eru í vinnslu; til að mynda nýtt kynbótamats- og skýrsluhaldskerfi og rannsóknastarfsemi á Hestbú- inu.“ 22 - FR6VR 10/2001

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.