Freyr - 01.09.2001, Page 32
Fjárrag
Inngangur
Nú fer í hönd mikill annatími hjá
bændum og ráðunautum við fjárrag
af ýmsu tagi. Undir fjárrag falla
verk eins og smalamennskur, réttir,
vigtun og flokkun líffjár og slátur-
fjár að hausti, ómmælingar og
lambadómar, hrútasýningar, orma-
lyfsgjöf, bólusetningar, merkingar,
jafnvel rúningur og fleira. Saman-
lagt er fjárragið einn af allra stærstu
vinnuliðunum á sauðfjárbúum. Og
ef hægt er að hagræða vinnu ein-
hvers staðar með litlum tilkostnaði
þá er það við fjárrag. Slík hagræð-
ing þarf ekki að koma í veg fyrir að
göngur, réttir og íslenska sauðkind-
in verði áfram menningarfyrir-
Jóhannes
Sveinbjörnsson,
RALA
og
Lárus
Birgisson,
Búnaðar-
samtökum
Vesturlands
brigði. Tilgangur þessa pistils er
meðal annars að vekja athygli á því
að ýmsir eru þegar famir að láta
u M. m
tlmv-iuMflj
1. mynd. Snorri Sigfinnson við fjárragsgang sinn. Sjá fréttabréf Búnaðarsam-
bands Suðurlands nr. 16/2000.
2. mynd. Sundurdráttargangur smíðaður af Halldóri H. Gunnarssyni og Vilhjálmi
Grímssyni. Sjá http://gangur.nett.is
verkin tala í þessu efni hér á landi,
auk þess sem minnst verður á er-
lendar fyrirmyndir.
Sundurdráttargangar.
Grunneiningin í þeirri vinnuhag-
ræðingu sem grípa má til við flestar
tegundir fjárrags er svokallaður
sundurdráttargangur. Það er mjó
renna sem kindunum er ætlað að
fara í gegnum, í einfaldri röð og án
þess að þær snúi sér við á leiðinni.
A meðan þær eru inni í ganginum
þarf að vera hægt að lesa á númer,
bólusetja, gefa ormalyf og fleira, en
um leið og þær koma út þarf að
vera hægt flokka féð í a.m.k. tvö
hólf með sk. sveifluhliði. Vigt get-
ur líka komið inn í þetta kerfi eftir
því sem við á.
Við vitum um tvo aðila hér á
landi sem hafa framleitt sundur-
dráttarganga. Annars vegar er það
Snorri Sigfinnson á Selfossi og
hins vegar Þingeyingamir Halldór
H. Gunnarsson og Vilhjálmur
Grímsson. Halla Eygló Sveinsdótt-
ir ráðunautur vakti athygli á þessari
framleiðslu og tengdum málum í
fréttabréfum Búnaðarsambands
Suðurlands (nr. 16/2000, nr. 1/2001
og nr. 11/2001). Hér verða birtar
nokkrar myndir af þessum sundur-
dráttargöngum, auk mynda af sam-
bærilegum búnaði sem er að finna á
veraldarvefnum, og vísað er til í
hverju tilviki. Ef einhverjir lesend-
ur vita um fleiri aðila sem fram-
leiða slíkan búnað þá eru þeir
hvattir til að vekja líka athygli á
því.
1. mynd sýnir búnað þann er
Snorri Sigfinnson hefur smíðað.
Gangurinn samanstendur af þremur
einingum (flokkunarhlið og tvær
rennur) sem raða má saman eftir
þörfum. Hver eining er létt þannig
að tveir geta auðveldlega borið þær
á milli sín. 2. mynd sýnir sundur-
dráttargang þeirra Halldórs og Vil-
hjálms. Gangurinn er úr fimm ein-
32 - pR€VR 10/2001