Freyr

Árgangur

Freyr - 01.09.2001, Síða 37

Freyr - 01.09.2001, Síða 37
mælingamanna hver á sínu svæði og eru mörg dæmi þess að gott skipulag og samvinna heimamanna hafi skilað verulegum árangri í vinnu- og tímaspamaði við lamba- mælingar. Skráning og gagnavinnsla Tölvueign og notkun á skýrslu- haldsforritinu Fjárvísi hefur aukist verulega á síðustu árum. Til að þessi tækni nýtist bóndanum á sem fljótvirkastan hátt í lambavali, af- kvæmarannsóknum og kynbóta- starfinu almennt, hefur leiðbein- ingaþjónustan á síðustu árum verið að taka fartölvur í þjónustu sína við skráningu á lambadómum heima á bæjum. Gögnin eru síðan prentuð út og/eða vistuð beint inn í Fjárvísi. Skil á vorbókum eru megin for- senda þess að að slík tölvuskráning nýtist markvisst. Tölvukerfi sláturhúsanna í land- inu eiga öll að geta afhent fall- þungatölur lamba í sláturröð á tölvutæku formi, strax að lokinni dagsslátrun á viðkomandi búi. Bændur yftrfæra síðan þessi gögn í Fjárvísi og skrá lambsnúmerin á móti sláturraðnúmeri. Hverjum sláturleyfishafa ætti að vera metn- aðarmál að hafa þessa þjónustu við bændur í lagi, en því miður hefur verið misbrestur þar á. Tölvuvædd- ir bændur, sem njóta ekki þessarar þjónustu nú þegar, ættu því að kalla eftir henni hjá sínu sláturhúsi. Von- andi kemur að því fljótlega að bændur geti stimplað lambanúmer- in inn í tölvukerfi sláturhúsanna strax þegar númer eru tekin og/eða lesin í sláturrétt, lambanúmerin gætu þá birst á vigtarseðli sem myndi auðvelda mjög allar fall- þungafærslur í skýrsluhaldinu. Auk þess gerir slíkt kerfi allan rekjan- leika afurðanna auðveldari, en það er eitt af markmiðum gæðastýring- ar í sauðfjárrækt. Aðstaða utan dyra- girðingar og hólf Til þess að allt fjárrag að haust- inu gangi sem greiðast og engin mikilvæg verk verði útundan þarf að vera sem auðveldast að reka féð á hús og milli hólfa. Gott skipulag nánasta umhverfis fjárhúsanna er þar lykilatriði. Mikilvægt er að koma sér upp skilvirku og stöðluðu kerfi, sem notað er ár eftir ár, en vera ekki að tildra upp tækjum og tólum, hlerum og spýtnabraki með vafasömum árangri. Umferðar- renna meðfram fjárhúsum er mjög af hinu góða, jafnvel hringinn í kringum húsin ef aðstæður gefa til- efni til. Inn í þá rennu þarf að vera hægt að reka fjárhópinn með auð- veldum hætti. Þar skiptir miklu máli staðsetning hliða og að hliðin séu nægilega stór. Almennt hlýtur að vera best að hafa hlið í homum girðinga því að þar er sjálfkrafa að- hald að fénu frá báðum hliðum og það getur því tæpast farið neitt ann- að en út um hliðið. Algengt er að menn hafi nokkur lítil hólf nálægt fjárhúsum, sem eru mest notuð fyrir fé að vorinu og svo til sláttar eða stórgripabeitar að sumrinu. Vegna orma- og hnísla- smits er ekki heppilegt að nota þessi hólf til sauðfjárbeitar að haustinu, heldur er féð þá yfirleitt í stærri hólfum lengra frá bænum. Girðingum er æskilegt að koma þannig fyrir að ekki þurfi að reka féð í gegnum mörg hlið. Því er oft heppilegt að girða rennu umhverfis túnveg sem féð er rekið eftir úr þessum stærri og fjarlægari hólfum og heim að fjárhúsum. Ur þessari rennu geta svo verið hlið inn í litlu hólfin ef svo háttar til, og auðveldar það þá flutning í og úr þeim að vor- inu. Að lokum Fyrirkomulag girðinga og girð- ingarefni er efni í langan pistil sem við ætlum að láta aðra um að skrifa sem fróðari eru um þau málefni. Ekki síður er notkun fjárhunda mikilvægt málefni sem fellur undir fjárragsmálaflokkinn, en þar verðum við líka að vísa á aðra. Við vonum hins vegar að þær vangaveltur, sem hér hafa verið settar á blað, verði einhverj- um að gagni, því að öll þessi verk, sem flokkast undir fjárrag, eiga það sameiginlegt að vera mikil- væg fyrir afkomu sauðfjárbúsins. Þau þarf því að vera hægt að vinna hratt en örugglega svo að ekkert verði útundan sem máli skiptir. Mol/ Mjólk dregur úr hættu á brjóstakrabbameini Konur sem drekka mikið af mjólk eru í minni hættu á að fá brjóstakrabba en konur sem drekka ekki mjólk. Þetta er niðurstaða doktorsrit- gerðar sem Anette Hjartáker varði við Háskólann í Tromsö í Noregi. Rannsóknir hennar hafa staðið frá því 1991 og fjalla einkum um matarvenjur kvenna á aldrinum 34-69 ára, alls um 100 þúsund kvenna. Þar kom m.a. fram að konur á aldrinum 45-69 ára neyttu meiri fisks og kartaflna en hinar yngri, sem neyttu aftur meira kjöts en hinar eldri, jafnframt því sem þær neyttu meira áfengis og drukku meira kaffi. Samhengi brjóstakrabbameins og mjólkurneyslu var kannað hjá 52 þúsund konum á aldrinum 34-49 ára. Þar kom fram nokkuð lægri tíðni brjóstakrabbameins hjá konum sem drukku minnst þrjú glös af mjólk á dag. Hins vegar kom í því sambandi enginn munur fram milli tegunda mjólkur né magns mjólkurfitu, segir í fréttatilkynningu frá há- skólanum. (Land nr. 34/2001). FR€VR 10/2001 - 37

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.