Freyr - 01.09.2001, Qupperneq 43
Haustbötun sláturlamba
á ræktuðu landi
. Gamalt vín á nýjum belgjum?
Aundanfömum ámm hef-
ur áhugi sauðfjárbænda
á haustbötun lamba á
ræktuðu landi vaknað á
ný eftir nokkra ládeyðu í þeim efn-
um um tíma. Með breyttu kjöt-
mati skiptir töluverðu máli að
lömbum sé ekki slátrað fyrr en að
fullnægjandi holdfyllingu er náð og
getur haustbötun verið leið til að
bæta flokkun lamba sem ekki hafa
náð fullnægjandi þroska á úthaga.
Nokkrir bændur hafa náð mjög
góðri flokkun dilkafalla með skipu-
legri notkun haustbeitar. Má þar
sérstaklega nefna búið á Syðra-
Skörðugili þar sem afburða árangur
hefur náðst með markvissu ræktun-
arstarfi og haustbeit á ræktað land
(Jón Viðar Jónmundsson, 2001)
Haustbeit sláturlamba á græn-
fóðri, aðallega fóðurkáli, var al-
geng fyrir 20-30 ámm en nokkuð
bar á umræðu um að lömb fitnuðu
óhóflega á kálbeitinni og að kjöt af
kállömbum væri lakara að gæðum
en kjöt af úthagabeit. Þessi um-
ræða virðist hafa komið nokkm
óorði á notkun fóðurkáls til haust-
bötunar, sem er í raun óverðskuld-
að.
Margar tilraunir voru gerðar með
beit á grænfóður og há á þessu
tímabili og byrjuðu raunar mun fyrr
eða fyrir 1960. Niðurstöður þess-
ara rannsókna hafa verið teknar
saman í yfirlitsgreinum oftar en
einu sinni (sjá t.d. Halldór Pálsson,
Ólafur Guðmundsson og Stefán
Sch. Thorsteinsson, 1981; Ólafur
Guðmundsson og Ólafur Dýr-
mundsson, 1983; Ólafur R. Dýr-
mundsson og Ólafur Guðmunds-
son, 1987; Ólafur Guðmundsson
og Ólafur R. Dýrmundsson, 1989;
Sigurgeir Þorgeirsson, Stefán Sch.
Thorsteinsson og Guðjón Þorkels-
Emma
Eyþórsdóttir
og
Jóhannes
Sveinbjörnsson,
Rannsókna-
stofnun
land-
búnaðarins
son, 1990). Þar sem nokkuð er um
liðið síðan þessar þessar greinar
birtust, er tímabært að rifja upp
þessar niðurstöður á ný og skoða
þær í ljósi þeirra aðstæðna sem
sauðfjárbændur búa við nú.
Helstu tilraunir
Fyrstu tilraunimar með haustböt-
un lamba vom gerðar á vegum
Búnaðardeildar Atvinnudeildar há-
skólans á tilraunastöðinni á Hesti
og víðar á tímabilinu 1956- 1959
(Halldór Pálsson og Pétur Gunnars-
son, 1961). Áfram var safnað
gögnum um haustbeit, aðallega á
fóðurkál, á Hesti á tímabilinu
1965-1977 (Halldór Pálsson, o.fl.,
1981) og gerð var sérstök tilraun
haustið 1968 þar sem mældir vom
ýmsir blóðþættir og fleira (Sigurjón
Jónsson Bláfeld, 1976). Átilrauna-
stöðinni á Skriðuklaustri vom gerð-
ar tvær tilraunir 1977 og 1978 með
haustbeit og innifóðrun á sama
tíma, þar sem m.a. var lagt mat á
bragðgæði kjötsins og hluti af
skrokkum kmfinn (Stefán Aðal-
steinsson o.fl., 1978; Stefán Aðal-
steinsson og Jón Tr. Steingrímsson,
1979; Guðjón Þorkelsson o.fl.,
1979). Tilraunir sem beindust að
áhrifum sníkjudýrasmits á ræktuðu
landi á haustin vom gerðar á Hesti
1979-1981 (Halldór Pálsson o.fl.,
1981; Sigurður Richter o.fl., 1983;
Ólafur Guðmundsson og Ólafur
Dýrmundsson, 1983). Loks voru
gerðar tilraunir með haustbötun
lamba á Hesti og Skriðuklaustri
1986, í tengslum við afkvæmarann-
sóknir með tilliti til kjötgæða (Sig-
urgeir Þorgeirsson, o.fl., 1990).
Þessi listi er ekki tæmandi yfir allar
tilraunir og athuganir sem gerðar
hafa verið, t.d. var kálbeit fléttað
inn í beitartilraunir sem gerðar vom
víða um land á 8. áratugnum og
kálbeit hefur verið nýtt á tilrauna-
stöðinni á Hesti í flestum árum þó
að ekki væri um að ræða skipulegar
tilraunir.
Vöxtur lamba og vefjahlutföll
Samanburður á úthaga- og grœn-
fóðurbeit.
í tilraunum Halldórs Pálssonar á
Hesti á 6. áratugnum vom þrif og
vöxtur lamba á kálbeit undantekn-
ingalaust mun betri en á úthaga og
í flestum ámm skilaði kálbeitin
meiri vaxtarauka en háarbeit. Ein
tilraun var gerð með beit á blöndu
af höfrum og rúgi og þar var vöxtur
mjög góður. Nokkur munur var á
niðurstöðum milli ára, sem m.a.
mátti rekja til veðurfars á beitartím-
anum og eitt árið spratt kálið illa og
beit þraut áður en tilraun lauk,
þannig að árangur varð mjög léleg-
ur. I öllum tilraununum höfðu
lömb, sem beitt var á kál, aðgang
að úthaga og/eða há með kálinu.
Kjöthlutfall lamba af grænfóður-
beit var mun hærra en lamba af
annarri beit og hrútar uxu yfirleitt
betur en gimbrar. Vaxtarauki á
hvert lamb á 30 daga beit var að
meðaltali um 2,7 kg af kjöti á kál-
pR€VR 10/2001 - 43