Freyr

Årgang

Freyr - 01.09.2001, Side 49

Freyr - 01.09.2001, Side 49
sóttinni. Nokkrar tilraunir hafa verið gerðar með innifóðrun lamba fram eftir vetri og er ekki rúm hér til að rekja niðurstöður þeirra en áformað er að gera það í annarri grein. Grænfóðurbeit og sumarslátrun Hérlend reynsla af grænfóðurbeit sláturlamba er aðallega bundin við haustbeit. Hins vegar hafa ýmsir kúabændur töluverða reynslu af miðsumarbeit mjólkurkúa á græn- fóður og ekkert sem segir að slíkt þurfí að vera fráleitt til þess að framleiða dilka til slátrunar um og upp úr mánaðamótum júlí/ágúst. Eftir nokkru er að slægjast þar sem Markaðsráð borgar 600 kr. álag á hvem dilk í fyrstu viku ágúst, auk þess sem t.d. Sláturfélag Suður- lands borgar þá 50 kr. yfirverð á kg, háð sömu skilyrðum um flokkun og áður voru nefnd. Miðað við 15 kg dilk er þá alls um að ræða 90 kr. yf- irverð á kg eða samtals 1.350 kr. á dilkinn. Þessar yfirborganir fara svo stiglækkandi eftir því sem líður nær hefðbundinni sláturtíð. Hins vegar er ljóst að dilkurinn nær ekki umræddri þyngd nema hann sé snemmborinn (í apríl) og sé á góðu beitilandi allt beitartímabilið. Stóru spurningarnar í þessu dæmi er hvaða beitarplöntur mætti nota í þessum tilgangi, hvenær er hægt að hefja beitina, og hvort þetta yfír höfuð borgar sig. For- sendur skortir til að leggja tölulegt mat á slíkt að sinni, en aðeins verð- ur velt upp nokkrum möguleikum. Sumarrepja, sumarrýgresi og bygg eru allt tegundir sem hafa tiltölu- lega hraðan sprettuferil, og eru til- búnar til beitar um 50-80 dögum frá sáningu. I þeim sveitum, þar sem snemma vorar og hægt er að sá um og fyrir miðjan maí, er því möguleiki á að þessar tegundir geti verið tilbúnar til beitar fyrri hluta júlímánaðar og þannig skilað allt að mánaðar beit fyrir lömb sem slátra ætti í fyrri hluta ágúst. En hvað þá með fyrri hluta sum- arsins? Lömb vaxa yfirleitt prýði- lega þar sem þau eru með mæðrum sínum á túni að vorinu. I sjálfu sér er ekkert sem segir að slíkt geti ekki haldið áfram fram eftir sumri ef vel er á málum haldið. Það sem getur þó dregið úr vexti á þessum tíma er einkum orma- og hníslasmit sem og það ef annað hvort er of mikið eða of lítið gras á tún- inu/beitarhólfinu. Sé grasið of lítið er augljóslega of lítið að éta en haldi beitin illa í við grasið þá nær það fyrr að spretta úr sér sem þýðir minna át og hægari vöxt hjá lömb- unum. Til þess að draga úr orma- og hníslasmiti er best að nota ekki sama túnið til haustbeitar og aftur til vor- og snemmsumarbeitar. Þröng beitarhólf eru ekki æskileg. Nýræktað land á að vera hnísla- og ormafrítt. Vallarsveifgras er lfk- lega heppilegasta beitargrasið af þeim túngrösum sem best eru þekkt hérlendis, en fjölært rýgresi er mik- ið notað til beitar og sláttar erlend- is. Sú ágæta jurt hefur verið í nokkrum ræktunartilraunum hér- lendis á síðustu árum (Hólmgeir Bjömsson, 2000). Helsti galli þess er takmörkuð ending en verði það ekki fyrir verulegum skakkaföllum að vetrinum getur það gefið fram- úrskarandi uppskem í a.m.k. tvö ár. Komi það þokkalega undan vetri er það fljótt til á vorin og væri því á margan hátt afar áhugavert til eldis lamba sem eiga að fara í sumar- slátrun. Vonandi á sá draumur eftir að verða að veruleika. Samandregið yfirlit Ef reynt er að draga saman það sem hér hefur verið rifjuð upp er niðurstaðan eftirfarandi: 1. Haustbötun lamba á grænfóðri hefur reynst vel, vöxtur er góð- ur svo framarlega sem nóg er af grænfóðrinu. Mest reynsla er af fóðurmergkáli og vetrarrepju en aðrar tegundir hafa einnig gefið góða raun. Grænfóður til beitar er fremur ódýrt fóður. 2. Vöxtur á grænfóðurbeit gefur sambærileg vefjahlutföll og önnur beit við sama fallþunga og ekkert hefur komið fram sem bendir til aukinnar fitu- söfnunar á grænfóðurbeit, frem- ur þvert á móti. 3. Mest hagkvæmni er í að bata smæstu lömbin á grænfóðrinu, ef ekkert sérstakt amar að þeim sem hindrar góð þrif þeirra. Einnig getur verið ágætlega hagkvæmt að bata meðalstór lömb á káli upp í 17-19 kg þyngd, svo fremi að þau fari ekki í hærri fituflokk en 3. Böt- un lamba sem endar með um og yfir 20 kg falli er ekki líkleg til að borga sig vegna hættu á að umtalsverður hluti lambanna verðfalli vegna fitu. 4. Allt eldi þarf að miðast við að lömbum sé slátrað við hag- kvæmasta fallþunga. Þau fall- þungamörk liggja mishátt eftir fjárstofnum og víða eru miklir möguleikar á að hækka þessi mörk með markvissum kynbót- um. 5. Beit á áboma há, sem hefur ver- ið friðuð fyrir beit í a.m.k eitt ár, getur gefið jafngóða raun og grænfóðurbeit. 6. Með grænfóðurbeit er mælt með að lömb hafi aðgang að út- haga eða túni til að auka fjöl- breytni og draga úr hættu á kvillum er geta fylgt einhæfri kálbeit. 7. Haustbeit á létta útjörð eina saman er gagnslaus með öllu og getur leitt til þess að vöðvar rými og fituhlutfall hækki án þess að lömbin þyngist. 8.Sníkjudýrasmit, sérstaklega hníslasótt, getur valdið vanþrif- um á túnbeit á haustin og nauð- synlegt er að gera ráðstafanir til að koma í veg fyrir hana. Þörf er nánari rannsókna á áhrifum hnísla á lömb á mismunandi beit og á mismunandi árstíma. 9.Bragðgæði kjöts af lömbum sem beitt hefur verið á græn- fóður eru ekki lakari en af jafn- gömlum lömbum sem slátrað er af úthaga. pR€VR 10/2001 - 49

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.