Freyr - 01.03.2004, Blaðsíða 13
unnar. Loðdýrabændum fækkar
hins vegar, en þeir voru 135 fyrir
sjö árum en eru nú einungis 35. I
því felst mikil ógn fyrir stéttina
því að sameiginleg verkefni eru
mörg, sérstaklega fóðurgerðin.
Framleiðslumagnið er hins vegar
svipað og verið hefúr, þ.e. búin
hafa stækkað. Lítil endumýjun
hefúr hins vegar verið í búnaði
þeirra. Gengismálin hafa verið
greininni óhagstæða, en markað-
urinn hefúr verið stöðugur með
hækkandi verði. Hann vakti at-
hygli á tillögu sem liggur fyrir
þinginu frá SIL, en hún gengur út
á það að setja það markmið að
greinin tvöfaldist í umsvifum á
næstu 5-7 árum. Slíkt tækifæri
gefst ekki í mörgum greinum án
þess að það komi niður á öðmm
búgreinum. Þannig verða til ný
störf án mikils kostnaðar ,auk
þess sem þetta er hagstætt fyrir
hagkerfið, enda tekjumar sóttar út
fyrir það með útflutningi fram-
leiðslunnar. Þá hefúr greinin hlut-
verki að gegna í umhverfismálum
við förgun sláturúrgangs. Kostn-
aður sláturhúsanna á Suðvestur-
hominu við förgunina er talinn
nema u.þ.b. 8-9 kr. á kg. En til
þess að loðdýraræktin komi að
notum í þessu efni þarf að koma
til fjármagn frá hinu opinbera,
lánastofnunum, Byggðastofnun
o.fl. Viðræður við ríkisvaldið um
þetta atriði em á döfinni. Ræðu-
maður gat þess síðan að hann
hyggðist gefa kost á sér til setu í
stjóm Bændasamtakanna. Hann
kvað það sína skoðun að búgrein-
amar ættu sem mest að marka
stefnuna í hverri grein og Bænda-
samtökin að einbeita sér að sam-
eiginlegum hagsmunamálum allra
bænda. Viðfangsefni Bændasam-
takanna taldi hann felast í að efla
fæmi bænda og þekkingu, efla
upplýsingaflæðið til þeirra, samn-
ingamál um starfsumhverfið inn-
anlands og fylgjast með og hafa
Guðrún Stefánsdóttir, Hlíðarendakoti, t.v. og Helga Jónsdóttir, Þykkvabæ í
Landbroti t.h.
áhrif á alþjóðlega samninga, auk
markaðsmálanna. Þó að ræðu-
maður kæmi úr hinum svokallaða
búgreinagrunni samtakanna
kvaðst hann ekki lita á sig sem
fúlltrúa sérstakra hagsmuna held-
ur bænda allra. Hlutverk okkar er
að verja landbúnaðinn og efla
hann með því að nýta þau mörgu
sóknarfæri sem vissulega em til
staðar.
5. Sigurður Jónsson. Ræðumað-
ur kvaðst nú sitja sitt annað kjör-
tímabil sem búnaðarþingsfúlltrúi
skógarbænda og sagðist rétt vera
að komast í takt við kerfið. Hann
kvað bjart vera framundan í skóg-
ræktinni og fastari gmnnur væri
nú kominn á ijárveitingar til
greinarinnar. Asókn hefur verið
mikil í þátttöku í skógræktarverk-
efnum um land allt en talsvert hef-
ur þó áunnist í að stytta biðlistana.
Hann kvaðst alltaf hafa átt heima í
sveit og því telja sig þekkja vel til
flestra greina landbúnaðarins, þó
að hann hefði aðal lífsviðurværi
sitt af loðdýrarækt. Gengismálin
hafa verið loðdýrabændum erfið
að undanfömu, en markaðsmálin
jákvæð. Framkvæmdalán við
Sigurður Jónsson, Ásgerði, Hrun.
Freyr 2/2004 - 13 |