Freyr

Árgangur

Freyr - 01.03.2004, Blaðsíða 37

Freyr - 01.03.2004, Blaðsíða 37
Stjóm Bændasamtakanna skipi starfshóp til að semja reglur fyrir sjóðinn. Jafnframt leiti hún eftir viðræðum við félagsmálaráðherra um að hluti af ijármunum, sem bændur greiða í tryggingasjóð sjálfstætt starfandi einstaklinga, renni í þennan sjóð. Þá samþykkir búnaðarþing að veija 10 millj. kr. af arði hótelanna til sjóðsins sem stoíhffamlag. Samþykkt samhljóða. Fagráða- og búfjárrækt- arnefnd Endurskoðun BÚNAÐARLAGASAMNINGS Búnaðarþing 2004 leggur til að við endurskoðun búnaðarlagasamn- ings verði dagsetningum umsókna í 11. gr. breytt þannig að umsóknum sé skilað fyrir 1. mars á ffam- kvæmdaári og svömm við þeim skilað fyrir 15. apríl. Komrækt skal undanþegin umsóknum en haustút- tekt látin gilda til styrkveitingar. Þingið minnir einnig á a-lið í máli nr. 18 ffá Búnaðarþingi 2003. Samþykkt samhljóða. Hagtölusöfnun í landbúnaði Búnaðarþing 2004 telur nauð- synlegt að endurskoðað verði hvaða upplýsinga er aflað um af- komu og efnahag rekstrareininga í landbúnaði og hvemig verður best að því staðið. Þingið felur stjóm Bændasamtaka Islands að vinna að framgangi málsins. Greinargerð: Nauðsynlegt er að bæta upplýs- ingar um afkomu og efnahag rekstrareininga i landbúnaði. Þær upplýsingar geta nýst með marg- víslegum hætti, svo sem við bú- stjóm bænda, lagt gmnn að mati á afkomu í einstökum búgreinum og landbúnaðinum i heild og sem nauðsynlegur gmnnur undir fag- legt starf og/eða almennar ákvarð- anir er snerta viðkomandi bú- grein. I þessu sambandi er ástæða til að líta einnig til þess hvemig nágrannaþjóðir okkar standa að hliðstæðri upplýsingaöflun. Samþykkt samhljóða. Rafræn skráning kúasæðinga Búnaðarþing samþykkir að vísa þessu máli til Fagráðs í nautgripa- rækt. Samþykkt samhljóða. Landsmarkaskrá Búnaðarþing 2004 beinir því til stjómar Bændasamtaka Islands að hin tölvutæka landsmarkaskrá verði sem fýrst gerð aðgengileg á veraldarvefnum. Tilraunir með eldi SLÁTURLAMBA Búnaðarþing 2004 lýsir ánægju sinni með öflugt rannsóknarstarf sem unnið hefur verið á síðustu ámm í sambandi við eldi slátur- lamba til að mæta kröfum um lengingu sláturtíðar. Mikilvægt er að tryggja framhald kraftmikillar þekkingaröflunar á þessu sviði. Aukinn flutningur sláturfjár um langan veg kallar á frekari rann- sóknir sem tengjast flutningum og meðferð ljárins. Mjög brýnt er að tryggja sívirka og fjölbreytta miðlun á leiðbeiningum og á nið- urstöðum rannsókna á þessu sviði. Samþykkt samhljóða. WorldFengur Greinargerð: Bændasamtök Islands hafa um- sjón með útgáfu markaskráa. Ver- ið er að undirbúa útgáfii þeirra í öllum markaumdæmum og verða þær prentaðar og þeim dreift í tæka tíð fyrir réttir haustið 2004. BÍ hefiir tvívegis gefið út lands- markaskrá, 1989 og 1997, og hafa þær notið vaxandi vinsælda. Bæði upplögin seldust upp og seinni út- gáfan af 1997 skránni seldist einn- ig upp. Því er stefnt að útgáfu landsmarkaskrár í árslok 2004 með svipuðu sniði og áður. Einnig hefur um tveggja ára skeið verið áformað að gera hina tölvuvæddu landsmarkaskrá aðgengilega á veraldarvefnum. Slíkt krefst nokkurs kostnaðar vegna forritun- ar og er ráðgert að nota hluta hagnaðar af útgáfii landsmarka- kráa til að standa straum að þeim kostnaði. Landsmarkaskráin er í stöðugri endumýjun þannig að tölvuaðgengi tryggir uppflettingu allra skráðra búfjármarka í land- inu á hverjum tíma, þar með frost- marka hrossa, og er eðlileg þróun í útgáfii markaskráa. Samþykkt samhljóða. Búnaðarþing 2004 lýsir yfir sér- stakri ánægju með WorldFeng og hvetur til að hann verði í sífelldri þróun með það fyrir augum að halda sem best utan um allar skýrslur og upplýsingar er varða íslenska hestinn hérlendis sem er- lendis. WorldFengur er stórt afl í markaðssetningu íslenska hestsins sem eykur hróður hrossaræktar- innar og Bændasamtaka Islands innanlands sem utan. Tryggja þarf að hægt sé að sinna nauðsynlegu viðhaldi og endurbótum á kerfinu og svara óskum viðskiptaþjóða okkar eins og frekast er kostur. Samþykkt samhljóða. Rannsókn á sérstöðu ÍSLENSKS KJÖTS Búnaðarþing 2004 leggur áherslu á mikilvægi þess að afla og og miðla upplýsingum um sér- stöðu íslensks kjöts varðandi gæðaeiginleika, hollustu og nær- ingargildi, ekki síst með tilliti til notkunar í markaðsstarfi. Greinargerð: Fullyrðingar um bragðgæði, næringar- og hollustugildi em mikið notaðar í markaðssetningu Freyr 2/2004 - 371

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.