Freyr - 01.03.2004, Blaðsíða 18
Jóhannes Eggertsson, Sléttabóli,
Skeiðum.
á það reyna hvort ekki sé hægt að
gera hlutlausa könnun á skilaverði
útflutnings til framleiðendanna.
Varðandi sláturhúsamálin kvaðst
hann skilja vel ástæður tillögu-
flutnings þeirra Vopnfirðinga, en
hann gerði þó athugasemd við
orðalag hennar. Reglugerðin
skuldbindir sláturhúsin ekki til
þess að verða sér úti um útflutn-
ingsleyfi, en heilbrigðisreglugerð-
imar vom hins vegar hertar með
henni. Stjómvöld gáfu upp bolt-
ann varðandi endurskoðun sauð-
ijársamnings í framhaldi af starfi
þeirrar nefndar, sem skilaði tillög-
um um lausn á vanda sauðijár-
bænda sl. haust, og stjórn LS
óskaði eftir afstöðu aðildarfélaga
sinna til hennar. Eftir að hafa far-
ið vandlega yfir svörin varð það
niðurstaða stjómar Landssamtaka
sauðijárbænda að ekki væri meiri-
hluti fyrir því að taka ákvæði
samningsins til endurskoðunar nú
og því samþykkti formannafundur
að hann skyldi áfram gilda
óbreyttur en kröftunum þess í stað
beint að stefnumörkun fyrir næsta
samning. Að síðustu þakkaði
hann fráfarandi formanni Bænda-
samtakanna fyrir gott samstarf í
málefnum sauðfjárbænda. Um
formannskjörið framundan hafði
hann þetta að segja:
„ Víst þó báði virði ég jafnt
og við þá dável kitnni,
fjósaþefur finnst mér samt
af formannskosningunni. “
14. Guðbjartur Gunnarsson.
Ræðumaður bauð nýja fulltrúa
velkomna til starfa og kvaðst
vænta þess að þeir hefðu nýja sýn
á málefni landbúnaðarins. Hann
kvað fráfarandi formann hafa
þekkt málin vel frá báðum hliðum
er hann tók að sér formennsku í
Bændasamtökunum fyrir níu árum
í kjölfar sameiningar Búnaðarfé-
lagsins og Stéttarsambands bænda
og því hafi hann verið einstaklega
vel til formennskunnar fallinn.
Fyrsta stjóm Bændasamtakanna
setti sér það markmið að hugsa
málin upp á nýtt og koma með
nýja sýn á málin. Það sama verð-
ur vafalaust uppi á teningnum með
verðandi stjóm. Bændur hafa lengi
staðið í vamarbaráttu og því eðli-
legt að menn hafi ekki alltaf verið
sammála um leiðir i þeirri baráttu
en í heildina þá hefúr starfíð verið
farsælt. Hann velti því síðan fyrir
sér hver væri ffamtíðarsýn þeirra
tveggja sem nú byðu fram starfs-
krafta sína fyrir Bændasamtökin.
Búnaðarþingsfulltrúar þurfa að
gera það upp við sig hvort sú
framtíðarsýn samræmist þeirra
eigin. Starfsumhverfi landbúnað-
arins mun taka miklum breyting-
um á komandi ámm með opnarar
viðskiptaumhverfi í kjölfar al-
þjóðasamninga. Enn er hins vegar
óljóst hvemig málin munu þróast
og það er þvi hlutverk nýrrar for-
ystu að móta stefhuna sem bændur
þurfa að taka í samvinnu við
stjómvöld á hverjum tíma. En
hvað með Bændasamtökin sjálf?
Hvemig vilja fúlltrúar sjá þróun
þeirra á komandi ámm. Hversu
hratt á sú þróun að fara? Menn
vilja aukið samstarf rannsókna,
leiðbeininga og kennslu, en heldur
hefúr hægt miðað í þá átt. Við
þurfúm að einhenda okkur i þá
vinnu að tvinna betur saman leið-
beiningar á landsvísu, kennslu og
rannsóknir og í þeim efnum hljót-
um við jafnframt að þurfa að end-
urmeta staðsetningu sjálfra
Bændasamtakanna. Taka verður til
grundvallarskoðunar hlutverk
Bændasamtakanna almennt og
jafnframt málefhi einstakra bú-
greina í nánu samstarfi við bú-
greinasamtökin á komandi ámm.
15. Jóhannes Eggertsson. Ræðu-
maður þakkaði fýrir góða setning-
arathöfn. Hann kvaðst kjörinn til
þings sem fulltrúi svínabænda, en
í þeim ranni hafi margt gerst að
undanfömu sem síður skyldi. En
það tjóar lítið að iðrast, setja verð-
ur stefnuna fram á við. Menn em
búnir að átta sig á því að sigur
vinnst ekki í baráttunni á kjöt-
markaðnum með því einu að reyna
að koma nágrannanum á hausinn.
Samstaða er lykilorðið. Verð
svínakjöts til bænda fór niður í kr.
0-140 ákg. Svínabændur lifajafn-
ffamt við allt annan raunvemleika
en sauðljárbændur varðandi af-
setningu afúrðanna því að fram-
leiðsla þeirra síðamefndu er alltaf
tekin í hús. Það sauð upp úr hjá
mörgum svínabændum þegar
sauðfjárbændur fengu greiddan
svokallaðan “fátækrastyrk” nú í
vetur og mörgum þeirra hefúr þótt
samstarfið við Bændasamtökin
skrýtið þegar á reynir. Svínarækt-
arfélag Islands hyggst hins vegar
starfa áfram innan vébanda
Bændasamtakanna og þar ríkir nú
betri andi þar sem menn em ein-
huga um að fara að starfa saman
að hagsmunamálum sínum. Fyrir
118 - Freyr 2/2004