Freyr

Árgangur

Freyr - 01.03.2004, Blaðsíða 21

Freyr - 01.03.2004, Blaðsíða 21
nauðsynlegt að þingið kysi Bændasamtökunum góða framtíð- arstjóm, enda væm margir góðir fulltrúar í framboði. Efitirfarandi kvað hann síðan í orðastað starfs- fólks Bændasambandanna í tilefni af stjómarkjörinu: „Þó áfram stanzlaust tíminn streymi stöðugt eitthvað til að hlakka jjósalykt frá Vestri-Reyni eða Ferjubakka. “ 21. Sigurgeir Sindri Sigurgeirs- son. Ræðumaður tjallaði fyrst um núgildandi sauðijársamning og kvað mikið hafa verið þrefað um málið allt frá 1999, bæði á aðal- fúndum Landssamtaka sauðfjár- bænda og búnaðarþingum. Gildis- tími samningsins er nú hálfnaður og þar verða menn einfaldlega að sætta sig við orðinn hlut. Lands- samtök sauðfjárbænda vilja ekki að gerðar séu á honum breytingar og við það verðum við að una. Því þurfa þeir, sem hafa eitthvað við samninginn að athuga, að beina kröftum sínum að stefnumótun fyrir þann næsta. Marg gott er nú að gerast í útflutningsmálum lambakjöts, sérstaklega á Banda- ríkjamarkað, þar sem íslenskt lambakjöt er markaðssett sem lúx- usvara, en þar er gert ráð fyrir áframhaldandi aukningu og því jafnvel spáð að hægt verði að selja þangað 1000 tonn árið 2008. Hin árlega “Food and Fun” hátíð var einstaklega glæsileg þar sem þús- undir manna fylgdust með meist- arakokkum frá fímmstjömu veit- ingahúsum keppa í matreiðslu há- gæða landbúnaðarvara. Um 400 útlendingar komu til landsins gagngert út af hátíðinni, auk þess sem gert er ráð fyrir að á milli 8 og 9 þúsund landsmanna hafi not- ið snilli þessara kokka á hérlend- um veitingastöðum. Hann taldi að Landssamtök sauðfjárbænda og Bændasamtökin verði að veita sláturhúsunum aðhald, s.s. með birtingu ýmissa hagtalna. Bændur þurfa að hafa aðgang að slíkum upplýsingum þannig að þeir geti verið meðvitaðir um það verð sem sláturleyfishafar fá fyrir útflutn- ing. Þá greindi hann frá því að enskur aðili hafi lýst áhuga á að kaupa 50 þúsund gæmr á Islandi fyrir ágætis verð en engar getað fengið. Stjómarmenn í afurða- stöðvunum verða að muna hverj- um þeir em að þjóna. I því sam- bandi velti hann einnig fyrir sér hvort skynsamlega væri staðið að fjármálum afúrðastöðva í mjólk. Að síðustu kvað hann Bændasam- tökin verða að standa sig vel í hagsmunagæslunni gangvart hlunnindum bænda, t.d. varðandi rjúpuna, en þó að bændur geri kannski ekki miklar athugasemdir við friðun hennar í einhver ár þá verðum við að standa gegn sölu- banni verði friðun aflétt, enda miklir hagsmunir í húfi fyrir bændur í þeim efnum. 22. Anna Bryndís Tryggvadótt- ir. Ræðumaður kvaðst vera nýliði á þinginu og hefði því kosið betri kynningu á fulltrúum við staðfest- ingu kjörbréfa. Þá fjallaði hún um pappírsflóðið sem helltist yfir bændur í tengslum við þróunar- sfyrkina, en svo virðist sem það aukist bara með aukinni tölvu- væðingu. Hún taldi ekki rétt að eyða kröftum þessa þings í að fjal- la um endurskoðun núgildandi sauðfjársamnings og að kröftun- um væri betur varið í stefnumótun vegna næsta samnings. Þá kvaðst hún óttast að þekking á ýmsu hvað varðar heimanot afurða, heimaslátrun og heimaræktun væri að týnast. Menntun bænda væri vel sinnt á bændaskólunum þar sem við lærðum að fóðra skepnumar þannig að þær skili góðum afúrðum, en bændunum sjálfúm gæfúm við jafhvel “msl” Anna Bryndís Tryggvadóttir, Brekku, Fljótsdal. að éta. Bæði kynin þurfi því að viðhalda þeirri þekkingu sem kyn- slóðimar hafa nýtt sér við hvers konar úrvinnslu matvæla heima á sveitaheimilunum. 23. Kristín Linda Jónsdóttir. Ræðumaður fjallaði fyrst um al- þjóðlegan baráttudag kvenna sem væri í dag. Hún óskaði síðan ís- lenskum bændum til hamingju með það að í íslenskri bændastétt ríkti launajafnrétti milli kynjanna, enda fara laun bænda eingöngu eftir því sem þeir fá greitt fyrir af- urðir sínar eða þjónustu. Þá þakk- aði hún Sigríði Bragadóttur fyrir þrautseigju við verkefnið “Lifandi landbúnað”. I ár veitum við nýj- um mönnum brautargengi til star- fa hjá samtökunum og mikið er horft til hvemig okkur famast í þeim efnum. Það er flókið starf að vera formaður Bændasamtak- anna og þurfa að gæta hagsmuna fjölmargra atvinnugreina sem starfa undir samheitinu landbún- aður. Atvinnugreinin er dreifð úti um allt land og inniheldur mjög fjölþætta starfsemi. Mörg ljón em nú sem fyrr í vegi okkar, WTO- Freyr 2/2004 - 21 |

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.