Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.03.2004, Qupperneq 42

Freyr - 01.03.2004, Qupperneq 42
Bændur hafa eignarhald og umráð yfir mestum hluta gróins lands og ræktaðs lands, ásamt skóg- og kjarrlendi á Islandi, og allt þetta land gegnir hlutverki við bindingu kolefnis Samþykkt samhljóða. Úrvinnslugjald Búnaðarþing 2004 lýsir yfir stuðningi við samstarf Bænda- samtaka Islands og Urvinnslu- sjóðs um mótun starfshátta í með- ferð úrvinnslugjalds á heyplasti. Greinargerð: Urvinnslugjald á heyplast var sett á með lögum nr. 162, 20. des- ember 2002 og kom til fullrar framkvæmdar 1. janúar sl. og hefst söfnun á plasti 1. júlí nk. Miklu máli skiptir að söfnunar- leiðir séu skilvirkar og afsetning einföld. Slíkt er forsenda fyrir lækkun gjaldsins. Skilagjald á plastið krefst vigt- unar og endurgreiðslukerfis til bænda sem hefur í för með sér kostnaðarauka. Þess í stað er lýst yfir stuðningi við að hafa kerfið einfalt og gjaldið lægra. Samþykkt samhljóða. Veiðar á mink Búnaðarþing 2004 skorar á um- hverfisráðherra að leita allra leiða til þess að útrýma villimink úr ís- lenskri náttúru. Minkurinn er mik- ill skaðvaldur og veldur ómældu tjóni á fuglalífi og á seiðum og fiski í ám og vötnum. Mikilvægt j er að nýta þann meðbyr og skiln- ing sem virðist vera í þjóðfélaginu um að taka á þeim vanda sem minkurinn er. Greinargerð: Skipuð hefur verið 9 manna nefnd á vegum umhverfisráðherra sem er að skoða mögulega herferð á hendur minks í náttúru Islands. Um leið og þessari nefndarskipan er fagnað þá er sú ósk látin í ljós að starfi hennar ljúki með tillög- um um útrýmingu hans. Samþykkt samhljóða. Veiðar á ref Búnaðarþing 2004 skorar á um- hverfisráðherra að beita sér nú þeg- ar fyrir þvi að útvega nægilegt fjár- magn til þess að Umhverfisstofhun geti staðið við að greiða sama hlut- fall út á refaveiðar eins og áður. Greinargerð: A síðasta ári sendi Umhverfis- stofnun út orðsendingu til sveitar- félaga þar sem fram kom að 2003 myndi endurgreiðsla ríkisins verða 30% af greiðslu fyrir skot- veiði í stað 50%. Þetta eru óþol- andi vinnubrögð sérstaklega í ljósi þess að umhverfisráðherra skipaði í desember 2003 nefnd sem skoða á leiðir til að halda refastofninum í skeíjum. Það yrði skelfilegt um- hverfisslys ef ekkert eða lítið yrði unnið af ref á þessu ári en nú þeg- ar hafa mörg sveitarfélög sagt upp ráðnum refaveiðimönnum. Búnaðarþing ætlast til þess að nú náist samstaða með þessum að- ilum um hertar aðgerðir á þessu sviði. Þá fagnar þingið skipan of- angreindrar nefndar. Samþykkt samhljóða. VIRÐISAUKASKATTUR AF REFA- OG MINKAVEIÐUM Búnaðarþing 2004 beinir því til fjármálaráðherra að hann beiti sér fyrir því að virðisaukaskattur af veiðum á mink og ref verði endur- greiddur. Engin rök eru fyrir því að sveitarfélög þurfi að greiða virðisaukaskatt af þessari þjónustu umfram aðra aðkeypta þjónustu, t.d. snjómokstur og sorphirðu. Samþykkt samhljóða. Friðun rjúpunnar Búnaðarþing 2004 ályktar að nú þegar þurfi að móta stefnu um vemd rjúpnastofnsins þegar yfir- standandi veiðibanni lýkur. Hug- myndir um sölubann á rjúpum tel- ur búnaðarþing óraunhæfar og leggst gegn þeim. Til að tryggja velferð rjúpna- stofnsins álítur búnaðarþing afar nauðsynlegt að fækka verulega refum, minkum og mávum, sem á rjúpuna herja. Samþykkt samhljóða. Ágangur álfta OG FÆKKUN ÞEIRRA Búnaðarþing 2004 áréttar fyrri ályktun sína frá 2003 um tjón af völdum álfta og skorar á stjóm BI að fylgja málinu eftir. Greinargerð: Náttúrufræðistofnun dregur í efa að álftum hafi fjölgað. Bænd- ur vita betur. Vandann verður að viðurkenna og bæta úr áður en í óefni er komið. Samþykkt samhljóða. Frumvarp til laga um vernd- un Mývatns og Laxár í Suður-Þingeyjarsýslu Búnaðarþing 2004 samþykkir að þar sem gott samkomulag hafði náðst um frumvarp til laga um vemdun Laxár og Mývatns áður en bráðabirgðaákvæði III var bætt við frumvarpið beri að fella bráðabirgðaákvæðið brott og af- greiða frumvarpið án þess. Samþykkt samhljóða. Frumvarp til laga um breyt- INGU Á LÖGUM NR. 64/1994, UM VERND, FRIÐUN OG VEIÐAR Á VILLTUM FUGLUM OG VILLTUM SPENDÝRUM, MEÐ SÍÐARI BREYTINGUM Búnaðarþing 2004 hefur fengið til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 64/1994 um vemd, ffiðun og veiðar á villtum fuglum og spendýmm, með síðari breytingum. 142 - Freyr 2/2004

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.