Prentarinn


Prentarinn - 01.01.1968, Qupperneq 18

Prentarinn - 01.01.1968, Qupperneq 18
Síðasta vígi kvenþjóðarinnar vestur-ís- lenzku, tímaritið Ardís, féll á næstliðnu ári, þá að meginefni á ensku, eftir 34 ára giftudrjúgt starf í þágu íslenzkrar menningarviðleitni. — Geta má þess, svona í lokin, að vestur-íslenzk kona stofnaði fyrsla íslenzka kvennahlaSið, líklega fyrsta kvennablaðið í Kanada. Enn er ógetið margra blaða og tímarita, •— og koma prentarar þar eigi óvíða við sögu. Nú verður rakið einskonar prentaratal, í mörgu áfátt og ófullkomið: Merkasti bókagerðarmaður og bókaútgef- andi í Winnipeg var Olafur S. Thorgeirsson prentari. Hann vann ómetanlegt brautryðj- endastarf með útgáfu almanaks síns. I því er að finna ótæmandi fróðleik um ýmisleg efni úr sögu frænda vorra, m. a. hin stórmerku drög til landnámssögunnar vestan hafs, sögur og greinar almenns efnis og mannalát. — Ars- rit þetta kom út í sextíu ár. Það hóf göngu sína árið 1894, og var hann ritstjóri þess frá upphafi til dánardægurs, 1937, en þá tók við ritstjórninni dr. Richard Beck, en synir Ólafs, Geir og Olafur, sem báðir gerðust prentarar, tóku við útgáfunni. Olafur S. Thorgeirsson var fæddur á Akur- eyri 16. sept. 1864. Hann hóf prentnám 14 ára gamall hjá Birni Jónssyni og starfaði í Prent- smiðju Norðuramtsins þangað til hann fluttist til Kanada árið 1887. I þann mund var Lag- berg að hefja göngu sína og gerðist hann einn af stofnendum þess og jafnframt fyrsti setjari blaðsins. Ólafur stofnaði eigin prentsmiðju árið 1905 og lét brátt til sín taka sem um- svifamikill bóka- og tímaritaútgefandi. Gaf m. a. út fíreiSablik (1906—1914) og Syrpu (1911—1922). Hann þótti mikill athafnamað- ur og naut almennra vinsælda. Dr. Rögnvaldur Pétursson lýsir Ólafi og hæfileikum hans á þessa leið: „Ólafi sóttist námið vel. Var honum verk þetta mjög að skapi. Kom strax í Ijós hjá hon- um listgáfa hans og fegurðarsmekkur sá, er hann bjó yfir. Stóð hann í því efni mörgum framar. Unni hann sérstaklega smekklega út- gefnum bókum eða ritum. Prentiðnin var ávallt í hans augum ekki eingöngu handiðn „Nú er hún Snorrabúð stekkur“. — Hér var til liúsa síðasta íslenzka bókaverzlunin í Winnipeg. DavíS Björnsson ralc þarna bókasólu í 20 ár og studdi að samskiptum Islendinga austan hajs og vestan. Hann er mesta snyrtimenni og hirðusamur á allar íslenzkar minjar; liejur t. d. tekið Ijósmyndir aj jlestum bygg- ingum og íbúðarhúsum Islendinga í Winnipeg, búið ]>œr í smekklegan búning og sent Landsbókasajni Islands til varðveizlu. eða atvinnugrein, heldur sérstæð list, sem leggja bar alla alúð við. Kippti honum þar í kyn til hinna fyrri Islendinga, er hófu hand- ritagjörð sína upp í veldi lista og fegurðar. Hann var list-prentari að eðlisfari." Ólafi var fleira til lista lagt en svartlistin. Fyrir forgöngu Einars H. Kvaran var íslenzkt leikfélag stofnað í Winnipeg árið 1886. I þeim félagsskap gerðist Ólafur brátt liðtækur liðs- maður, og fær hann lofsamlega dóma í Winni- peg-blöðunum fyrir mikla leikhæfileika. Gísli Jónsson, prentari, ritstjóri, skáld og rithöfundur, er fæddur 9. febrúar 1876 að Háreksstöðum á Jökuldal. Hann hóf prentnám hjá Birni Jónssyni á Akureyri 1898, en hvarf 16 1’RENTAIilNN

x

Prentarinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Prentarinn
https://timarit.is/publication/732

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.