Prentarinn - 01.01.1968, Blaðsíða 25

Prentarinn - 01.01.1968, Blaðsíða 25
Hartvig Meyer, aðalgjaldkeri danska prentarasam- bandsins. (Ljósm.: Pjetur Stejánsson). langan tima, en að lokum náðist víðtækt sam- komulag. Það náði til margra sérkrafna og launauppbóta við ýmis sérstörf. Veikinda- og ellilaun hækkuðu. Nýr sjóður var stofnað- ur til styrktar aðlögun prentverksins að nýj- um og breyttum framleiðsluaðstæðum og að- ferðum. Skal hann vinna að endurhæfingu og framhaldsmenntun prentaranna. Atvinnurek- endur greiða til sjóðsins eina krónu á viku af hverjum starfsmanni og þegar sjóðurinn hef- ur náð kr. 5000 má hefja greiðslur úr honum samkv. ákvörðun félaganna. Á Kaupmanna- hafnarsvæðinu var samið um námskeið fyrir prentara, steypara (stereotypörer) auk þeirra sem vinna að filmsátri og við upplímingu (montageteknik). Við greiðslu atvinnurek- enda til slíkra námskeiða bætist framlag rík- isins, þannig að þátttakendur njóta fullra launa meðan á námi stendur. Þá var af prent- ara hálfu leyfð aðstaða til vinnurannsókna í samstarfi við hagræðingarsérfræðing, og leyft að koma á ábatakerfi (bónus) svo fremi stjórn fyrirtækis og meiri hluti verkafólksins gefur samþykki sitt. Til þess að öðlast gildi verður ábatakerfi að fá staðfestingu prentarafélags- ins. „Ráðstefnan kann að halda“, sagði Niel- sen, „að við höfum breytt afstöðu okkar til launakerfa, sem knýja á um aukna framleiðni, en við höfum gefið atvinnurekendum skýr svör um að við erum andvígir ákvæðisvinnu.“ Þar sem samningar höfðu ekki náðst um aðalkröfurnar, þegar tíminn til samninga var útrunninn, lögðu hin ýmsu sambönd, þ. á m. prentarasambandið, fram verkfallsboðun. Sáttasemjari notaði heimild í lögum til að fresta verkfallinu um 14 daga. Nokkrum dög- um áður en það skyldi hefjast tókst sáttasemj- ara að koma fram með tillögu, sem stjórnir landssambandanna vildu mæla með. Tillaga sáttasemjara var þannig, að stjórn prentara- sambandsins hvatti meðlimi sína til að hafna henni, og var hún felld af miklum meiri- hluta prentaranna, en samþykkt af öðrum fé- lögum sem heild, og með tilliti til samteng- ingarreglunnar var tilboð sáttasemjara því samþykkt. Tilboð sáttasemjara gildir fyrir 2 ár. Það felur í sér lítils háttar launahækkun fyrir prentara, stighækkun á dýrtíðaruppbót kvenna, er í áföngum skal verða hin sama og hjá karl- mönnum. Þá skyldi greiðast fyrirfram dýrtíð- aruppbót, sem vitað var að kæmi, og því ekki hægt að líta á sem sérstakan ávinning. Stytt- ing vinnutímans var ákveðin í 42)4 klst. á viku frá 1. júní 1968 (áður44). Eftir að samn- ingum lauk hefur tekizt að fá hækkun nem- endalauna til samræmis við laun nemenda i offsetprentun. Að lokum sagði Henry Nielsen að þing danska prentarasambandsins í september mundi verða mjög þýðingarmikið, þar yrði m. a. tekin afstaða til aðildar að Alþýðusam- bandinu á ný, tækniþróunarinnar og afleið- inga hennar. PRENTARINN 23

x

Prentarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Prentarinn
https://timarit.is/publication/732

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.