Prentarinn - 01.01.1968, Blaðsíða 34

Prentarinn - 01.01.1968, Blaðsíða 34
ég tók mér leigubíl á hótelið. þar sem ég gisti fyrstu helgina. Þegar ég síðar hitti þann, sem átti að sækja mig á flughöfnina, varð hann alveg undrandi á því, að ég skyldi ekki hafa séð hann — og benti á merkið í barminum; örlítinn rétthyrning með áletruðu nafni Harris Intertype Ltd.“ „Hvar bjóstu eftir fyrstu helgina?" „Fyrirtækjið útvegaði mér húsnæði hjá írskri fjölskyldu í Burnham Beaches, stutt frá verksmiðjunni. Þetta var mikið ágætisfólk og vistin ódýr, 6 pund á viku fyrir húsnæði og mat. Þetta hverfi, sem ég bjó í, er hálfgert snobb-hill hjá þeim í London. Meðal íbúa má nefna menn eins og vandræðagripinn George Brown, kollega Gylfa Þ., og dægurlagavælu- kjóann Cliff Richard. Hins vegar var húsið, sem ég bjó í, hálfgert örverpi í öllu fíniríinu. Hjónin höfðu fengið lóðina í arf og byggt á henni lítið hús, sem varð enn minna í saman- burði við hallirnar í kring. Næsta hús var sumarhótel. Þar var bjórstofa og billiard, — ágætur staður, sem ég leit nokkrum sinnum inn á. Annars hef ég sennilega verið sá mað- urinn í Englandi þessa dagána, sem stundaði hvað mest kvikmyndahús.“ „Hvernig var iilhögun skólans?“ „Honum var skipt í tvær deildir. 1 annarri er kennd vélsetning, þ. e. a. s. fingrasetning, en í h'nni viðhald og viðgerðir vélanna, — þeir kalla það Service School, — og í henni var ég. Kennsla hefst kl. 9 á morgnana, klukkutími er í mat um hádegisbilið og matinn fær mað- ur ó staðnum; te og samlokur tvisvar á dag, og skólanum lýkur kl. 5. Ekki var kennt á laugardögum. Fyrsta daginn, sem við mættum, var farið með okkur í kynnisferð um sal nokkurn, þar sem voru hinar ýmsu gerðir véla, sem þeir framleiða. Þar má m. a. nefna Monarch tape- setjaravél, sem setur 14 línur á mínútu. Einn- ig var þarna tölvu-setjaravél, sem setti eftir gataræmu (tape) og þurfti sá, sem gataði, ekkert að hugsa um línuskiptingar eða þess háttar hégóma, — vélin sá um allt slíkt, eftir að hafa verið mötuð á upplýsingum um línu- breidd og leturstærð. Tölvan meira að segja leiðrétti ræmuna, áður en hún fór í gegnum „unitið“, þ. e. tækið, sem les á hana. Það vakti athygli mína, að við vorum að- eins fjórir nemendurnir í deildinni. Mér var sagt, að þannig væri það alltaf, en stafaði ekki af skorti ó eftirspurn. Þessi háttur væri hafður á, til að skapa sem nánast samband milli kennarans og nemandanna. Tveir skólafélaga minna voru Englendingar og hafði annar þeirra beðið í sex mánuði eftir að komast að, en hinn í átta mánuði. Þriðji nemandinn var kolsvartur negri frá Uganda. Leiðbeinandinn var búinn að starfa hjá fyr- irtækinu i 30 ár og þekkti, eins og nærri má geta, vélina eins vel og vasana sína. Hann hafði m. a. það starf að reyna vélarnar áður en þær fóru úr verksmiðjunni til kaupenda. Fyrst var farið með okkur í gegnum starf vélarinnar, frá því að stutt er á lykilinn, unz línan fellur í skipið. Hringrásin var skýrð vandlega og hlutverk hvers smóhlutar útskýrt. Þessi fyrsti þáttur námsins var bóklegur að mestu og við gerðum ekki annað en að fylgj- ast með kennaranum og skrifa niður minnisat- riði. Þessi hluti tók u. þ. b. tvær vikur. Þegar álitið var, að þessi fræðsla hefði komizt til skila, var tekið til við aðalatriðið. Við fjórmenningarnir vorum látnir hafa tvær vélar, tveir um hvora. Þær voru afstilltar á einhvern hátt, sem við fengum ekki að vita um. Síðan áttum við að finna og komast fyr- ir meinsemdina. Við vorum látnir stjórna verkinu til skiptis og höfðum heljarmikinn doðrant um vélina til hliðsjónar. Næst voru svo vélarnar rifnar í sundur, stykki fyrir stykki, unz ekkert stóð eftir nema fóturinn, og síðan áttum við að setja þær saman og stilla þær. Að síðustu rifum við svo vélarnar í sund- ur og settum þær saman. I þessu vorum við í tæpar tvær vikur. Þá voru eftir um tíu dagar af námskeiðinu og þeir áttu að fara í æfingar og þjálfun í því, sem við höfðum verið að læra. Þá fékk ég leyfi til að hætta í setjaravélunum og fara í þá deild, sem helguð er „Tape-setter“ frá Fair- child-fyrirtækinu, eins og menn sjálfsagt vita. 32 PRENTARINN

x

Prentarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Prentarinn
https://timarit.is/publication/732

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.